Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.06.2014, Qupperneq 28

Bókasafnið - 01.06.2014, Qupperneq 28
Bókasafnið 38. árg. 2014 28 varð ekki offramboð, eins og útreikningar eftir líkaninu sögðu til um?” Og sá þá í hendi minni að það myndi vera skjalastjórnin sem tók rosalega mikið af fólki og það í mjög góð og vel launuð, ábyrgðarmikil störf. Án skjalastjórnar hefði þróun greinarinnar orðið önnur og ekki jafngóð og raun ber vitni. Starfsvettvangur skjalastjórnar varð meðal annars til vegna laga­ breytinga. Stofnanir verða að hafa reiðu á hlutunum samkvæmt lögum, en það er ekki samkvæmt lögum að þær verði að ráða bókasafnsfræðinga til starfans. Starfsvettvangur skjalastjórnar varð ekki til af sjálfu sér fyrir bókasafns­ og upplýsingafræðina. Til hans þurfti að vinna. Á níunda áratugnum komu tölvuleitir í tilvísanasöfn­ um til sögunnar og síðan beinlínuleitir um Lýðnetið, en það gerði öll tölvusamskipti mun auðveldari. Það hlaut að sjálfsögðu að hafa áhrif innan greinarinnar og á bókasöfnum, þar sem tölvunotkunin þróaðist óhjá­ kvæmilega í takt við tækniframfarir. Í lok árs 1996 hóf ég starf sem forstöðumaður bóka­ safns Landlæknisembættisins og gegndi því til ársins 1999. Í því starfi gerði ég samning fyrir hönd Land­ læknisembættisins um aðgang að Medline, sem þá var ekki í opnum aðgangi eins og síðar varð, fyrir starfs­ menn þess. Samningurinn náði jafnframt til starfsmanna á öðrum fámennum opinberum stofnunum á sviði heil­ brigðisvísinda. Stóru sjúkrahúsin sömdu sjálf fyrir sig hvert og eitt. Á þessum tíma var tæknin ekki orðin eins og núna, framkvæmd míns samnings var möguleg vegna þess að Landspítalinn leyfði góðfúslega afnot af dreifingarkerfi sínu til þess að fólk kæmist í rafræna efn­ ið sem ég samdi um. Þetta var sérstakur samningur að því leyti að fjöldi notenda var opinn. Við sömdum um tiltekið verð og síð­ an gat ég bætt við stofnunum sem höfðu aðgang eftir að samningurinn var gerður, þannig að eftir því sem fleiri tóku þátt í áskriftinni, þeim mun lægra varð verðið fyrir hverja stofnun. Þetta var alveg einstakt á þessum tíma, tímamótasamningur, slíkur samningur hafði aldrei verið gerður áður, hvorki hér á landi né erlendis, að sögn sölumannsins. Hér heima hafði hver stofnun samið fyrir sig, fram til þess tíma, greiddir voru fleiri reikningar til er­ lendra dreifingaraðila fyrir rafrænan aðgang að sömu gagnasöfnunum og aðgangur í heild varð dýrari fyrir landið en hefði þurft að vera. Árið 2001 bauðst mér starf forstöðumanns Bóka­ safns Landspítalans. Þá stóð til að vinna að sameiningu bókasafnsþjónustu á stóru sjúkrahúsunum en því verk­ efni var tímabundið slegið á frest. Í starfinu þar þróaði ég í samstarfi við aðra forstöðu­ menn bókasafna á sviði heilbrigðisvísinda hugmynd mína frekar um sameiginlega áskrift opinberra stofnana að rafrænum gagnasöfnum, tímaritum og bókum með heildartexta og gerði samning fyrir hönd stofnana á sviði heilbrigðisvísinda við fyrirtækið Ovid. Samningurinn náði aðeins til opinberra aðila vegna þess að það var mismunandi verð á aðgangi eftir því hvort samið var fyrir opinbera stofnun sem var ekki rekin í hagnaðarskyni eða einkafyrirtæki. Ef Íslensk erfðagreining hefði til dæmis verið með í þeim samningi hefði verðið hækkað mikið. Skipulag gagna í Ovid var mjög gott og leitarvél þess geysilega öflug og auðveld í notkun, enda hafði þekking og reynsla bókasafnsfræðinga á skipulagi rit­ aðrar þekkingar og reynsla af leitum í raf­rænum gagnasöfnum verið beisluð við bókfræðilegt skipulag innan gagnasafnsins og þróun leitaraðferða í Ovid. Samningurinn kostaði í heild mun minna en samningar stofnananna höfðu kostað samanlagt áður. Jafnframt samdi ég við Ovid um að fá töluleg gögn um afnot einstakra stofnana af hverju tímariti eftir gerð­ um dreifingareininganna uppgefna mánaðarlega í Excel skjali. Notkun á hverju áskriftarriti var sundurliðuð mán­ uð fyrir mánuð. Þetta var lykilorðaaðgangur sem opinn var innan stofnana fyrir alla starfsmenn og aðra safngesti, sem einnig var einstakt á þeim tíma. Gögn um notkun voru sundurliðuð eftir stofnunum og starfstétt, hvort notendur voru til dæmis læknar eða hjúkrunar­ fræðingar. Þá tíðkaðist erlendis að semja um aðgang fyrir tiltekinn fjölda starfsmanna af tiltekinni gerð. Fólk sem ekki var starfandi við viðkomandi stofnun á samn­ ingstíma mátti ekki nota rafrænu gagnasöfnin. Ég fór til dæmis í heimsókn til Columbia háskóla á þessum tíma, þá var sérstaklega tekið fram að sem fyrrverandi nem­ andi gæti ég haft aðgang að öllum safnkosti bókasafns­ ins en þó væru rafrænu gagnasöfnin undanskilin vegna þess að ekki hefði verið samið um aðgang að þeim fyrir útskrifaða. Jafnvel voru dæmi um að stofnanir sem voru félitlar gerðu samning um aðgang lækna að tilteknum gagnasöfnum en hjúkrunarfræðingar og aðrir heilbrigð­ isstarfsmenn sömu stofnunar fengju ekki aðgang að þeim. Í samstarfi við aðra forstöðumenn bókasafna á sviði heilbrigðisvísinda gerði ég einnig fjölnotasamning við MDConsult, sem var nýtt gagnasafn á þeim tíma og geysilega fjölbreytt með aðgangi að heildartexta tíma­ rita, bóka og alls kyns öðru efni fyrir heilbrigðisstarfsfólk,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.