Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Page 55

Bókasafnið - 01.06.2014, Page 55
Bókasafnið 38. árg. 2014 55 ingar og miðlunar upplýsinga. Má þar telja stofnun nýrra fræðigreina innan Háskólans, síaukna tæknivæðingu safnkosts, sívaxandi upplýsingamagn og nýtt og breytt lagaumhverfi á sviði bókasafns­ og upplýsingamála ﴾Stefanía Júlíusdóttir, 2013﴿. Þessar nýjungar fólu meðal annars í sér auknar kröfur um áreiðanlega upp­ lýsingaþjónustu og –miðlun svo og sérþekkingu á skipu­ lagningu þekkingar, það er flokkun hennar, lyklun og skráningu samkvæmt alþjóðastöðlum. Námsgreinin innan heimspeki og félagsvísinda Nám í bókasafnsfræði hófst innan heimspekideildar Háskóla Íslands 1956. Í upphafi veitti Björn Sigfússon þáverandi háskólabókavörður kennslunni forstöðu ﴾Há­ skóli Íslands, 1956﴿. Nemendur sem í fyrstu lögðu stund á fræðigreinina voru einkum þeir sem höfðu lært íslensk fræði eða sagnfræði. Framan af var aðaláhersla lögð á kennslu í efnisflokkun og skráningu rita, bókfræði, hand­ ritalestri svo og starfsþjálfun. Talsvert hefur verið fjallað um upphafsár kennslu í námsgreininni ﴾sjá til dæmis Friðrik G. Olgeirsson, 2004; Sigrún Klara Hannesdóttir, 1997﴿. Hér verður því einungis stiklað á stóru hvað hana varðar. Árið 1957 luku fyrstu tveir nemendur fyrsta stigi í bókasafnsfræði eða eins vetrar námi í fræðigreininni. Á næstu árum bættust nokkrir í hópinn og þegar kennsla til BA­prófs í bókasafnsfræði hófst háskólaárið 1963­1964 höfðu samtals 13 nemendur lokið einu til tveimur stigum í náminu. Fræðigreinin var loks viðurkennd sem sjálf­ stæð háskólagrein við Háskóla Íslands þegar fyrsti nem­ andi lauk BA­prófi 1964 ﴾Friðrik G. Olgeirsson, 2004﴿. Námsgreinin bjó við þröngan kost framan af og öll nám­ skeið voru kennd af stundakennurum. Hún hafði fyrst á að skipa föstum kennara 1975 þegar fyrsti lektor var ráðinn til kennslunnar ﴾Jóhanna Gunnlaugsdóttir, 2005﴿. Það sem einkum hafði áhrif á þróun og breytingu bókasafnsmála til batnaðar var að Bókavarðarfélag Ís­ lands var sett á fót 1960. Meðal markmiða félagsins var að efla kennslu á sviðinu ﴾Friðrik G. Olgeirsson, 2004﴿. Félagsmenn sáu um útgáfu fyrstu íslensku handbókar­ innar um skáningu rita í samræmi við ensk­amerísku skráningarreglurnar ﴾Skráningarnefnd Bókavarðarfélags Íslands, 1970﴿, stóðu að þýðingu Dewey Decimal Class­ ification System yfir á íslensku ﴾Dewey, 1970﴿ og stuðl­ uðu að útgáfu fréttabréfsins Fregna og tímaritsins Bókasafnins. Auk þessa varð stofnun félagsins til þess að efla tengsl og samstarf milli starfsfólks jafnt innan­ lands sem á erlendum bókasöfnum. Stofnun Félags bókasafnsfræðinga 1973 renndi frekari stoðum undir fræðigreinina og stöðu bókasafns­ fræðinga og stuðlaði að frekari samvinnu við erlenda aðila ﴾Friðrik G. Olgeirsson, 2004﴿. Þar sem eitt af markmiðum félagsins var að efla menntun í fræðigrein­ inni setti það fram þá kröfu að nám í bókasafnsfræði við Háskólann yrði endurskoðað. Í framhaldinu voru fengnir erlendir sérfræðingar, dr. G. Edward Evans frá Denver, Colorado og Douglas J. Foskett frá Bretlandi til þess að vinna að tillögum um framtíðarskipan námsins. Félag bókasafnsfræðinga setti einnig á fót nefnd til þess að gera tillögur um námsskipan. Þótt tillögur þessara aðila væru að mörgu leyti ólíkar voru þær þó samhljóða um að ráða þyrfti fastan kennara í bókasafnsfræði ﴾Sigrún Klara Hannesdóttir, 1996﴿. Námsgreinin starfaði innan heimspekideildar þar til félagsvísindadeild var sett á fót við Háskólann í sept­ ember 1976. Námsgreinar hinnar nýju deildar voru fé­ lagsfræði, stjórnmálafræði og mannfræði, en þær höfðu áður starfað innan sérstakrar námsbrautar, auk bóka­ safnsfræði, sálfræði og uppeldis­ og kennslufræði sem áður töldust til heimspekideildar ﴾Inga Dóra Sigfúsdóttir, 1997﴿. Bókasafnsfræðin hefur síðan vaxið og dafnað meðal félagsvísindanna og stefnt hefur verið að því að þróa námsgreinina og aðlaga að breytingum í starfsum­ hverfi hennar. Árið 1977 var annar lektor ráðinn til starfa ﴾Sigrún Klara Hannesdóttir, 1997﴿. Lengst af hafa þrír fastir kennarar starfað við kennsluna á sama tíma, á tímabili voru þeir fjórir ﴾Sigrún Klara Hannesdóttir, 1996﴿ en nú stefnir í að þeir verði einungis tveir. Til viðbótar föstum kennurum hefur talsverður fjöldi stundakennara kennt við námsgreinina í tímans rás og hún hefur átt því láni að fagna að hafa notið starfskrafta erlendra gistikennara frá Ástralíu, Bandaríkjunum, Danmörku og Bretlandi. Námsgreinin í ljósi ESB/EFTA-gæðamats Í júní 1995 var gefin út skýrsla hóps sérfræðinga utan námsgreinarinnar. Vinnan var hluti af evrópsku verkefni og skýrslan greindi frá niðurstöðum gæðamats á kennslu í bókasafnsfræði við Háskóla Íslands. Markmið verkefnisins var að leitast við að sannreyna reglur sem notaðar höfðu verið til þess að meta gæði háskólakennslu, einkum að komast að því hvort reglurnar væru jafnnothæfar fyrir raungreinar annars vegar og starfstengdar háskólagreinar hins vegar ﴾Sigrún Klara Hannesdóttir munnleg heimild, 11. júní 2012﴿. Menntamála¬ráðuneytið og ESB/EFTA valdi bókasafnsfræðina sem aðra tveggja starfstengdra greina innan Háskólans til þess að taka þátt í verkefninu ﴾Menntamálaráðuneytið, 1995﴿. Á þeim tíma starfaði námsgreinin samkvæmt stefnu og markmiðum frá 1983. Þau voru skilgreind í tilefni af

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.