Bókasafnið - 01.06.2014, Page 59
Bókasafnið 38. árg. 2014
59
fyrir háskólaárið 20142015 fjölgað enn frekar frá þvi
sem nú er.
Mynd 4 sýnir dreifingu útskrifta úr MLISnámi eftir
árum. Fyrstu nemendurnir útskrifuðust úr náminu árið
2005 en í júní 2014 höfðu alls 69 nemendur útskrifast
með MLISgráðu frá Háskóla Íslands ﴾Háskóli Íslands,
2014a﴿.
Sem sjá má á mynd 4 hefur útskriftum úr MLIS
námi farið fjölgandi á undanförnum árum. Mesti fjöldi út
skrifta var árið 2011 þegar 13 nemendur útskrifuðust og
árið 2013 þegar 12 nemendur útskrifuðust. Þegar horft
er til fjölda útskrifta ársins 2014 ber að hafa í huga að
hér eru einungis meðtaldar útskriftir í febrúar og júní.
Konur eru í miklum meirihluta þeirra sem hafa útskrifast
úr MLISnáminu en alls hafa 58 konur útskrifast á móti
11 körlum ﴾Háskóli Íslands, 2014a﴿.
Þegar tölur um samþykktar umsóknir í MLISnámið
﴾sjá mynd 3﴿ eru bornar saman við tölur um útskriftir í
mynd 4 þarf að hafa í huga að það tekur framhaldsnem
endur að jafnaði tvö til fjögur ár að ljúka námi eins og
fram kemur í sjálfsmatsskýrslu Félags og mannvísinda
deildar Háskóla Íslands á gæðum náms innan deildar
innar ﴾Háskóli Íslands, 2013a﴿. Í þessu sambandi er vert
að geta þess að samkvæmt tilmælum frá mennta og
menningarmálaráðuneytinu var ákveðið að fram færi
yfirgripsmikið gæðamat á háskólakennslu og háskólum
á Íslandi háskólaárin 20112012 til 20142015. Af því til
efni var sett á fót gæðaráð háskóla sem stendur að þró
un gæðakerfis íslenskra háskóla ﴾Quality enhancement
framework﴿. Meginmarkmið gæðakerfisins er að stuðla
að rekstri óháðra og fjölbreyttra háskólastofnana. Verk
efnið samanstendur af sjálfsmati háskóla og háskóla
deilda á Íslandi auk þess sem stuðst er við reynslu og
sérfræðiþekkingu evrópskra og alþjóðlegra aðila
﴾Magnús Lyngdal Magnússon, 2011﴿. Gæðamat á Fé
lags og mannvísindadeild, þar á meðal námsbraut í
bókasafns og upplýsingafræði fór fram á vormisseri
2013 ﴾Háskóli Íslands, 2013a﴿.
Mikilvægt er fyrir litla stétt sem starfar á fjöl
breytilegum vettvangi að hafa bakgrunn úr mismunandi
áttum. Eins og mynd 5 sýnir hafa nemendur sem útskrif
ast úr MLISnámi lokið grunnnámi í hinum ýmsu há
skólagreinum.
Námsgreinarnar sem útskrifaðir MLISnemar höfðu
lokið í grunnnámi reyndust 19 talsins en þá eru erlend
tungumál talin saman sem ein námsgrein. Flestir þeirra
sem hafa lokið MLISnámi, eða 18 talsins, höfðu kenn
aramenntun að baki. Einnig er nokkuð algengt að fólk
hafi lokið grunnnámi í erlendu tungumáli eða í bók
menntum, sjá mynd 5 ﴾Ágústa Pálsdóttir, 2009a; Háskóli
Íslands, 20032014﴿.
Árið 2008 var í fyrsta sinn boðið upp á diplómanám
á meistarastigi ﴾Háskóli Íslands, 2008﴿ og á árunum
20092014 útskrifuðust 17 nemendur með þá háskóla
gráðu ﴾Háskóli Íslands, 2014a; Jóna Margrét Guð
mundsdóttir vefpóstur, 27. febrúar 2013﴿. Diplómanám
er viðbótarnám í bókasafns og upplýsingafræði til 30
ECTS og er sérstaklega hugsað sem styttri námsleið
fyrir fólk sem hefur ef til vill ekki áhuga á að ljúka fram
haldsgráðu en vill samt bæta við sig í námi. Nemendur
Mynd 5: Yfirlit yfir grunnnám sem útskrifaðir MLIS-nemar hafa lokið