Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 60
Bókasafnið 38. árg. 2014
60
sem ljúka diplómanámi hljóta ekki námsgráðu en þeir fá
diplómaskírteini um að náminu hafi verið lokið. Jafnframt
geta þeir sem hafa áhuga á að halda áfram í námi sótt
um að fá námskeið úr diplómanáminu metin inn í fram
haldsnám í greininni og reynsla undanfarinna ára sýnir
að margir hafa valið þá leið.
Mynd 6 sýnir þróun í aðsókn í diplómanámið en sem
sjá má hefur hún aukist jafnt og þétt ﴾Anna Margrét
Eggertsdóttir, vefpóstur 6. nóvember 2013﴿.
Eins og áður segir hófst framhaldsnám í bókasafns
og upplýsingafræði fyrst árið 1993 þegar greinin tók að
bjóða upp á rannsóknatengt meistaranám. Rannsókna
tengt meistaranám er tveggja ára ﴾120 ECTS﴿ fræðilegt
framhaldsnám, til prófgráðunnar magister artium, MA.
Öllum, sem lokið hafa BAnámi í greininni og fullnægja
kröfum þeim sem Háskólinn setur um lágmarkseinkunn
fyrir inntöku í nám á meistarastigi, býðst nú að stunda
MAnám í upplýsingafræði við Háskóla Íslands. Námið
hentar vel þeim sem vilja auka við menntun sína með
áherslu á sveigjanleika og þverfræðilegt nám. Þar sem
nemendur hafa þá þegar öðlast nauðsynlegan grunn í
greininni býður MAnámið upp á að hægt sé að sérsníða
það fyrir hvern og einn með tilliti til áhugasviðs og MA
rannsóknar. Námsbrautin hefur orðið vör við vaxandi
áhuga og aukna aðsókn í MAnámið og hefur brugðist
við með því að skipuleggja námsleiðir til sérhæfingar þar
sem meðal annars eru nýtt námskeið úr öðrum háskóla
greinum ﴾Háskóli Íslands, 2014b﴿.
Á mynd 7 má sjá dreifingu samþykktra umsókna í
MAnámið eftir árum.2
Fyrsti nemandinn var tekinn inn í MAnám í greininni
háskólaárið 19931994 og háskólaárið 19951996 hófu
jafnframt tveir nemendur til viðbótar rannsóknartengt
meistaranám. Áratuginn þar á eftir innrituðust engir
nemendur eða fram til háskólaársins 20062007 þegar
einn nemandi var tekinn inn. Þess ber að geta að fyrstu
árin var inntaka í MAnám háð því að nemar fengju styrk
úr Rannsóknarnámssjóði Háskóla Íslands til þess að
greiða fyrir það ﴾Sigrún Klara Hannesdóttir, 1996﴿ en
það breyttist síðan og nú geta allir nemendur, sem hafa
lokið BAnámi í greininni, sótt um í MAnámið. Á undan
förnum árum hefur aðsókn í MAnám farið vaxandi eins
og sjá má á mynd 7.
Árið 1996 útskrifaðist fyrsti nemandi með MAgráðu
í námsgreininni frá Háskólanum en alls hafa sjö útskrif
ast þaðan með þá gráðu og sá síðasti 2014 ﴾Háskóli Ís
lands, 2014a; Jóna Margrét Guðmundsdóttir vefpóstur,
27. febrúar 2013﴿. Mynd 8 sýnir dreifingu útskrifta úr
MAnámi eftir árum.
Sem sjá má á mynd 8 hafa alls sjö nemendur lokið
MAnámi ﴾Háskóli Íslands, 2014a; Jóna Margrét Guð
*Inntökum fyrir haustmisseri 2014 er ólokið og eftir eru inntökur fyrir
vormisseri 2015.
Mynd 6: Dreifing samþykktra umsókna í diplómanám eftir árum,
2008-2009 til 2014-2015
2 Farið var yfir nafnalista umsækjenda til þess að tryggja að þeir sem höfðu sótt um og verið samþykktir í námið oftar en einu sinni væru aðeins
taldir með í síðasta skipti sem þeir sóttu um.
*Inntökum fyrir vormisseri 2015 er ólokið.
Mynd 7: Dreifing samþykktra umsókna í MA-nám eftir árum
1993-1994 til 2014-2015
*Útskriftum á haustmisseri 2014 er ólokið
Mynd 8: Dreifing útskrifta úrMA-námi eftir árum, 1996 til 2014