Bókasafnið - 01.06.2014, Blaðsíða 72
Bókasafnið 38. árg. 2014
72
spurt var um kosninga og stjórnmálahegðun íslenskra
kjósenda. Þessi könnun hefur verið framkvæmd reglu
lega frá kosningunum 1983. Skilningur virðist fara vax
andi á verðmæti gagna og að „hrá“ gögn geti átt erindi til
almennings, rétt eins og og unnar og matreiddar upplýs
ingar, til dæmis á vegum fjölmiðla, eða í fræðigreinum og
skáldsögum.
Vinnan framundan
Tölvur og tölfræði eru tengdar órjúfanlegum böndum.
Þýska orðið statistik er dregið af latneska orðinu
statisticum sem þýðir „tilheyrir ríkinu” og ítalska orðinu
statista sem þýðir „embættismaður“. Þýski fræðimaður
inn Gottfried Achenwall ﴾17191792﴿ notaði fyrstur
manna hugtakið til þess að lýsa nauðsyn þess að greina
gögn um ríkið til þess að geta stjórnað því skynsamlega
﴾þ. Staatswissenschaft﴿ ﴾van der Zande, 2010﴿.
Gagnagnótt er ekki eðlisbreyting á gögnum heldur
magnbreyting á þeim sem er svo umfangsmikil að afleið
ingarnar verða mjög víðtækar. Nýjasta tölublað DLib
veftímaritsins ﴾2014﴿ er helgað vinnu Research Data Alli-
ance ﴾RDA﴿ samtakanna sem er í örri þróun.6 Markmið
þeirra er að skapa vettvang til samvinnu til þess að
staðla og tengja gagnagnóttina. Í ritstjórnarspjalli tölu
blaðsins eru nokkrar spurningar lagðar fram og þar á
meðal eftirfarandi:
Hvort er líklegra að maður fái astma í Mexíkóborg
eða Los Angeles? Hvaða atriði veita bestu forspá fyrir
hveitiuppskeru? Hvaða íbúðahverfi eru líklegust til þess
að verða verst úti ef það kæmi jarðskjálfti? Spurningun
um er hægt að svara með nokkurri vissu sé miklu magni
gagna safnað saman frá ólíkum aðilum og fylgni milli
breyta athuguð. Til þess að það sé gerlegt þarf að staðla
meðhöndlun gagna. Verkefni á borð við það sem RDA
fæst við er til marks um að verið er að stíga stór skref inn
í framtíðin. Við þurfum ekki lengur að spyrja hækillið
sauðkindar á milli fótleggjar og langleggjar. Nú getum við
notast við stærðfræðileg forspárlíkön sem byggja á
gagnagnótt.
Gagnagnótt þýðir að okkur stendur til boða hreint
ótrúlegt safn af upplýsingum sem meðal annars má
tengja saman og búa til ný gögn sem leiða til nýrrar
þekkingar og verðmæta sem ekki voru fyrirsjáanleg. Á
tungutaki hagfræðinnar eru gögn gæði sem margir geta
notað án þess að skerða getu annarra til þess að nota
þau ﴾e. nonrivalrous good﴿. Flestar ef ekki allar opinber
ar stofnanir liggja á verðmætum gögnum sem nýst geta
samfélaginu betur en raun er á. Landmælingar Íslands
﴾e.d.﴿ hafa veitt almenningi aðgang að gjaldfrjálsum
gögnum með þeim skilmála að uppruna gagnanna sé
skilmerkilega getið. Þetta er mjög lofsvert og mættu fleiri
opinberar stofnanir hér á landi taka Landmælingar Ís
lands til fyrirmyndar hvað þetta varðar.
Heimildir
Baldur Jónsson. ﴾1994﴿. Um orðið tölva. Í Gísli Sigurðsson, Guðrún
Kvaran og Sigurgeir Steingrímsson ﴾ritnefnd﴿, Sagnaþing :
helgað Jónasi Kristjánssyni sjötugum 10. apríl 1994.
﴾bls. 3344﴿. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag.
D-Lib Magazine. ﴾2014﴿. Table of contents, 20 ﴾1/2﴿.
doi:10.1045/january2014contents
Fitzgerald, M. ﴾2013, 8. ágúst﴿. DataMarket aims to be a Google for
numbers. InformationWeek. Sótt af
http://www.informationweek.com/bigdata/bigdata
analytics/datamarketaimstobeagooglefornumbers/d/d
id/1111096
Guðrún Kvaran. ﴾2005, 22. mars﴿. „Hvaðan er orðatiltækið „í gríð og
erg“ komið?“. Vísindavefurinn. Sótt af
http://visindavefur.is/svar.php?id=4851
Landmælingar Íslands. ﴾e.d.﴿. Leyfi, samkvæmt 31. gr. upplýsingalaga
nr. 140/2012 og lögum um landmælingar og grunnkortagerð nr.
103/2006, fyrir gjaldfrjáls gögn frá Landmælingum Íslands. Sótt
af http://www.lmi.is/wpcontent/uploads/2013/10/Leyfifyrir
gjaldfrj%C3%A1lsg%C3%B6gnLM%C3%8DAlmennir
skilm%C3%A1lar.pdf
MayerSchönberger, V. og Cukier,K. ﴾2013﴿. Big data: A revolution
that will transform how we live, work, and think. New York:
Houghton Mifflin Harcourt.
Óli Gneisti Sóleyjarson. ﴾2013﴿. Stafræn endurgerð texta :
höfundaréttur og lýðvistun. Bókasafnið, 37, 3235.
Páll Jensson. ﴾1980﴿. Um ﴾ör﴿tölvubyltinguna. Tölvumál, 5 ﴾4﴿, 1014.
Páll Ríkharðsson. ﴾2013﴿. Big Data [glærur af haustráðstefnu Advania
2013]. Sótt af http://www.advania.is/library/Files/Haustradstefna
2013/P%C3%A1llR%C3%ADkhar%C3%B0ssonHR.pdf
van der Zande, Johan. ﴾2010﴿. Statistik and History in the German
Enlightenment. Journal of the History of Ideas. 71﴾3﴿, 411432
Myndir
Mynd 1: Kort Maurys
Kort Maurys sótt 20. febrúar 2014 af
http://www.davidrumsey.com/luna/servlet/detail/RUMSEY~8~1~
251743~5517426:VIIIWindsandroutesto
accompa?qvq=w4s:/what/Atlas%20Map/when/1857/;lc:RUMSE
Y~8~1&mi=7&trs=188#
Mynd 2 : Skýringarmynd f. reCaptcha sótt 20. febrúar 2014 af
http://irevolution.files.wordpress.com/2013/06/recaptcha_pic2.jpg
Mynd 3 : Skýringarmynd f. veldisfall sótt 20. febrúar 2014 af
http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/d/d0/Exponential
_function.svg
6 https://rdalliance.org/