Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 74

Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 74
Bókasafnið 38. árg. 2014 74 safninu árið 2008 gerði hún róttækar breytingar á jarð­ hæð safnsins. Um þessar mundir eru þar engar bækur til útláns fyrir utan þær sem safngestir hafa pantað. Þar eru nú sjálfsafgreiðsluvélar, kaffivél fyrir gesti, stólar og netaðgangur fyrir lánþega. Gestum safnsins er heimilt að koma með nesti og snæða það á jarðhæðinni, sem virtist vera vel nýtt að mati höfunda. Enn fremur hafa orðið breytingar á öllum hæðum safnsins þar sem stóru afgreiðsluborðin hafa verið að hverfa eitt af öðru. Í stað þeirra eru komnar upplýsingamiðstöðvar þar sem starfsfólk er vel sýnilegt. Annað sem okkur þótti athyglisvert er að í einu útibúanna, Bocklemünd, starfa eingöngu nemar í bókasafns­ og upplýsingafræði. Dr. Vogt talaði um að það kæmi sér mjög vel og að þar væri hægt að bjóða upp á ýmislegt sem ekki væri í boði í öðrum söfnum í Köln. Í öðru útibúi, Kalk, er boðið upp á „Leikjasvæði” ﴾games zone﴿ þar sem börn og unglingar geta komið saman og spilað tölvuleiki. Einu sinni í mánuði kemur þangað blaðamaður frá tímariti um tölvuleiki sem fær börn til að spila nýjustu leikina og segja álit sitt á þeim. Í þessu leikjasvæði eru leikjatölvur frá Wii, Playstation 3 og Xbox og eru reglur svæðisins þær að leikirnir sem spilaðir eru þurfi að henta börnum frá 6 ára aldri sam­ kvæmt bannmerkingum á leikjunum sjálfum. Rafbækur Hugmyndin um rafbókaútlán er ekki ný af nálinni. Árið 2000 kom upp sú hugmynd hjá Borgarbókasafninu í Berlín að hefja útlán á rafbókum, sem þá voru eingöngu til á PDF formi. Hugmyndafræði „Shareware“ var höfð að leiðarljósi, sem byggist á því að hægt er að ná í gögnin annað hvort til framtíðarnotkunar eða til tímabundinnar notkunar án greiðslu. Útgefendur fóru í baklás af þeirri ástæðu að á þessum tíma var Napster ﴾forrit til ólöglegs niðurhals á tónlist﴿ tiltölulega ný tilkom­ ið og menn óttuðust að það færi eins fyrir bókum og fór fyrir tónlistinni, fólk færi að hlaða niður rafbókum í stór­ um stíl og skeyta ekki um höfundarréttinn. Það var ekki fyrr en árið 2007 sem augu útgefenda opnuðust fyrir hagkvæmni þess að leyfa rafbókaútlán og var þeim hleypt af stokkunum sama ár. Við þarfagreiningu á rafbókaútlánum hjá bókasafn­ inu í Köln kom snemma í ljós að útvista þyrfti þeim rekstri. Það er einkafyrirtækið Divibib sem sér um öll tæknimál er varða útlánin. Það sér um alla samninga við útgefendur og rithöfunda. Að sögn starfsmanna er ekki þekking, mannskapur eða tækjabúnaður til staðar í safninu á þessum sviðum sem þýðir að á Íslandi myndi útvistun verksins vera óhjákvæmileg. Það myndi spara tíma, fyrirhöfn og kostnað. Upphaflega bauð Divibib bóka­ söfnunum upp á að vera milliliður í raf­ bókaútlánum og er safnið í Köln eitt af fjórum söfnum í Þýskalandi sem tóku þátt í þessu frumkvöðlaverkefni. Einnig tekur Divibib að sér ítarlegri aðstoð eftir að starfsmaður bókasafnsins hefur gengið úr skugga um að vandamálið sé ekki af einföldustu gerð þannig að starfsmenn tölvudeildar safnsins ráði ekki við að laga það sem er í ólagi. Adobe digital editions er sá hug­ búnaður sem bókasafnið mælir með við lestur rafbóka á PC og Apple tölv­ um. Lánþegi pantar rafbók með því að skrá inn bókasafnsauðkenni sitt ﴾skír­ teinisnúmer﴿ og gengur frá öllu þar að lútandi. Kerfið sendir smáskjal af gerðinni ACSM ﴾Adobe Content Ser­ ver Message﴿ til lánþegans sem þarf að opna það. Skjalið inniheldur samskiptatengingar milli þess er hýsir rafbókina, Adobe leyfiskerfisins og tölvu lánþegans. Neðangreint sýnir samskiptaferlið eftir að ACSM skjalið hefur verið opnað: ­ Kannað hvort útlán sé virkt. ­ Tengist rafbókahýsingunni sem tengist lánþega­ grunni bókasafnsins til að sannreyna útlána­ heimildir. ­ Tengist Adobe Content Management Server til að kanna hvort Adobe notandi sé til. ­ Finnur rafbókina með því að leita að titli, höfundi, flokkun og leyfisnúmeri. ­ Rafbókin flutt inn á tölvu lánþega og lánstími skil­ greindur í rafbókinni sjálfri. ­ Rafbókin opnuð. Þegar skjalið er opnað sækir það rafbókina sem opnast í Adobe Digital Editions. Til að það virki þarf lán­ þeginn fyrst að skrá sig sem notanda hjá Adobe svo hann geti opnað ACSM skjalið. Að því loknu getur lán­ þeginn lesið bókina í tölvunni eða tengt allt að sex jað­ artæki við hugbúnaðinn til lestrar rafbóka. Á lánstímanum getur lánþegi dreift bókunum á öll tækin en lánið er tímastillt og verður skjalið óaðgengilegt á sama tíma á öllum tækjunum. Sumar rafbókanna eru í boði á nokkrum rafbókasniðum. Algengustu snið rafbóka bóka­ safnsins í Köln eru PDF, ePub, Mobi og txt. ePub og Mobi henta afar vel á lesbrettin en PDF og txt aftur á Mynd 2. Sigrún og Hallur prófa rafbókartæki
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.