Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 76
Bókasafnið 38. árg. 2014
76
eða álíka aukningu og árið á undan. Það sem kemur í
veg fyrir þessa aukningu eru leyfismál, bæði kostnaður
á rafbókum sem og stífni útgefenda og hömlur á fjölda
keyptra eintakaleyfa. Allur aðfangaþátturinn fer í gegn
um vefsíðu sem rekinn er af fyrirtækinu Divibib. Divibib
var áður rekið af einkaaðila og í samstarfi nokkurra
bókasafna. Síðar eignaðist einkafyrirtækið allt hlutafé og
er rekið sem sjálfstætt fyrirtæki í dag. Eins og áður seg
ir, sjáum við fyrir okkur að hagkvæmast væri að
umsýsla rafbókaútlána og Gegnis ﴾Aleph﴿ verði undir
sömu hendi til að lágmarka fjölda milliliða í þessum
samskiptum.
Almannatengsl
Almenningsbókasafnið í Köln hefur eigin almanna
tengil sem sér um samskipti við fjölmiðla fyrir aðalsafnið
og útibú. Meðal þess sem tengillinn sér um er að senda
út tilkynningar og auglýsingar til fjölmiðla í nánu sam
starfi við forstöðumanninn. Jafnframt er safnið með graf
ískan hönnuð í vinnu sem sér alfarið um að hanna útlit
fyrir safnið með tilliti til auglýsinga og dreifiefnis. Sam
ræmt útlit er á öllu útgefnu efni safnsins, en bakgrunns
myndin breytist milli auglýsinga og bæklinga allt eftir því
hvað verið er að kynna. Stóran hluta efnisins prenta þau
sjálf, en annað efni sem krefst betri prentgæða er sent í
prentsmiðju. Almannatengillinn heldur einnig utan um
Vísindaspjallið, sem telst til stórra viðburða hjá þeim.
Minibib
Hugmyndin að Minibib kemur frá Lissabon í
Portúgal. Árið 2008 komu fyrst upp hugmyndir um að
vera með lítið bókasafn í Köln sem væri eingöngu
mannað af sjálfboðaliðum. Hugmyndafræðin er sú að
hafa einungis skáldrit fyrir börn og fullorðna og að
safnnotendur þurfi ekki að gefa upp nafn. Þess vegna er
hvorki þörf á skírteinum né skilríkjum, þar sem lánþeg
um er treyst til að skila því sem það fær lánað. Safn
kosturinn er byggður upp á gjafabókum sem eiga helst
að vera nýlegar eða ekki eldri en tveggja ára. Viðmiðun
artími útlána er 14 dagar.
Árið 2009 var efnt til samkeppni í Arkitektaskóla um
hönnun á þessu litla bókasafni. Hönnuðir áttu að hafa
að leiðarljósi byggingu sem passaði inn í þann garð sem
hún er í út frá fagurfræðilegu og notendavænu sjónar
miði. Byggingin er í daglegu tali kölluð Minibib sem vísar
í stærð þess og notagildi: Mini bibliothek. Við hönnun
hússins þurfti að miða við rými fyrir um 1.000 bækur en
sem hefði að geyma pláss fyrir fólk til að setjast niður
með bók, koma með börn og lesa fyrir þau. Byggingin
er úr tré og gleri og er máluð að mestu í grænu til þess
að falla sem best inn í umhverfi garðsins, þar sem mjög
strangar reglur gilda um byggingar í görðum í þéttbýli. Á
sama tíma var haldin samkeppni um nafn á byggingunni
og varð „Minibib” fyrir valinu. Ferlið frá því hugmynda
samkeppnin hófst og þar til safnið opnaði gerðist á einu
ári ﴾2009﴿ og var safnið opnað með viðhöfn í Borgar
garðinum ﴾Stadtpark﴿ í Köln.
Minibib var boðið að taka þátt í hönnunarkeppnum
eins og „Plan 09 - Forum of Contemporary Architecture
in Colonge” í september 2009 og fékk mikið lof fyrir
frumlega hönnun. Minibib vann einnig til verðlauna árið
2011 sem eitt af „365 Landmarks in the Land of Ideas”.
Það var 20 manna hópur sérfræðinga sem valdi úr
2.600 hugmyndum þær sem þóttu standa upp úr varð
andi hönnun, sjálfbærni og fleira. Á Íslandi mætti útfæra
þessa hugmynd með bókum sem hafa dalað í vinsæld
um og bókum sem stendur til að afskrifa ásamt gjafa
bókum.
Krimmasjálfsali
Fyrirtækið Sorting Systems frá Troisdorf bauðMynd 3: Minibibb í Köln. Eingöngu mannað sjálfboðaliðum
Mynd 4: Horft inn í Minibibb