Húnavaka - 01.05.1976, Page 167
H Ú N A V A K A
165
leik. Hljómsveit skólans lék jóla-
lög og kórar yngri og eldri deikl-
ar sungu.
Á Skagaströnd léku nemendur
skólans á jólatrésskemmtun og
á Húnavöllum komu nemendur
fram á „litlu jólunum“.
Á aðalfundi tónlistarfélagsins
í febrúar skemmtu þeir fundar-
gestum með söng og hljóðfæra-
leik. Einnig kom kór eldri deild-
ar og hljómsveit skólans fram á
skemmtun 21. febrúar í félags-
heimilinu.
Geta má þess, að í vetur hafa
tveir nemendur leikið á orgel
við sunnudagaskóla Blönduóss-
kirkju.
Þrír kennarar starfa við skól-
ann í vetur og eru tveir fastráðn-
ir, þau Harpa Friðjónsdóttir og
Örn Óskarsson, sem einnig er
skólastjóri. Stundakennari er
Solveig Sövik.
Ný lög gengu í gildi á þessu
starfsári um rekstur tónlistar-
skóla, þannig að nú tekur ríkis-
sjóður á sig helming alls launa-
kostnaðar í stað eins þriðja hluta
áður. Samkvæmt lögum þessum
tekur einnig til starfa skóla-
nefnd og er formaður hennar
Valgarður Hilmarsson. Styrkir
þetta mjög starfsgrundvöll tón-
listarskólanna í þá átt að þeir
geti orðið öruggur menningar-
auki á sem flestum stöðum.
Orn Óskarsson.
VÖNTUN Á VARANLEGUM
LENDINGARLJÓSUM.
Flug flugfélagsins Vængja til
Blönduóss hefur í stórum drátt-
um gengið líkt og á fyrra ári.
Farnar voru fjórar áætlunarferð-
ir í viku, og farþegar voru 4229,
en það er lítilsháttar samdráttur.
Vöruflutningur hefur stórvaxið,
og einnig er dálítið um póst-
flutning.
Lendingar á Blönduóssflug-
velli urðu örh'tið færri en á lyrra
ári, og á það sér fyrst og fremst
þá orsök, að færri einkaflugvélar
voru á ferðinni.
Rafmagn og vatn var lagt í
flugskýlið og snyrting endur-
bætt.
Mikil nauðsyn er á að koma
upp varanlegum lendingarljósa-
búnaði, svo nýta megi völlinn
meira í myrkri, og einnig örygg-
isins vegna, en fjár er vant til
þeirra hluta.
Jóh. Gnðm.
FRÁ SAMVINNUFÉLÖGUNUM.
Sölufélagið.
Fjártaka hófst hjá S.A.H. 11.
september, og lauk henni 24.
október. Slátrað var alls 61.469
kindum. Innlagðir dilkar voru
55.840, er það 4.991 dilk fleira
en í fyrra. Meðalfallþungi varð