Morgunblaðið - 10.06.2015, Page 1

Morgunblaðið - 10.06.2015, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 0. J Ú N Í 2 0 1 5 Stofnað 1913  134. tölublað  103. árgangur  Það rignir stimpilgjöfum á N1 í sumar! Vegabréf N1 fylgir Morgunblaðinu í dag. Safnaðu stimplum því í hvert skipti færðu skemmtilega stimpilgjöf. Þegar Vegabréfið er fullstimplað skilarðu því inn á næstu N1 stöð og getur átt von á glæsilegum vinningum. FJÖLBREYTTAR BÆJARHÁTÍÐIR VÍÐA UM LAND HRÆKIR Á SONINN Á NÝ TAÍLAND Á TÓVEGG FYRIR NORÐAN „ÉG OG MÓÐIR MÍN“ 96 14 ÁRUM SÍÐAR 32GLEÐI Í SUMAR 74-83 Baldur Arnarson Stefán E. Stefánsson Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir bætta stöðu ríkissjóðs skapa skilyrði fyrir lægri skatta og einfaldara skattkerfi. Fram hefur komið að afnám hafta gæti stórbætt skuldastöðu ríkisins. „Bætt staða ríkissjóðs mun skapa svigrúm fyrir áframhaldandi skatta- lækkanir en þær þarf að tímasetja mjög vel,“ segir Bjarni og nefnir lækkun tryggingagjalds, lægri álög- ur á einstaklinga og afnám tolla. „Þrátt fyrir að við höfum þegar lækkað skatta umtalsvert verða lægri skattar áfram meðal forgangs- mála okkar og það verður svigrúm á næstu árum til að gera enn betur.“ Mun örva íslenska hagkerfið Bandaríski lögmaðurinn Lee Buchheit kom að viðræðum við kröfuhafa. Hann segir afnám hafta munu hafa mikla efnahagslega þýð- ingu. „Íslendingar ættu að vona að höftin víki sem fyrst. Það verður enda umtalsverð lyftistöng fyrir efnahagsbatann á Íslandi. Hafta- áætlunin sem var kynnt í vikunni mun aflétta höftum á skipulegan hátt og innan takmarkaðs tíma.“ Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, telur að boðuð útboðsleið vegna aflandskrónu- vandans geti haft í för með sér mik- ið innstreymi gjaldeyris í landið. Það geti aftur ýtt undir eignaverð á Íslandi. Það er hluti af áætlun um afnám hafta að lífeyrissjóðir fá að fjárfesta fyrir 10 milljarða á ári erlendis fram til ársins 2020, alls 60 milljarða. Haukur Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins, telur að heimildir lífeyrissjóðanna muni ekki hafa telj- andi áhrif á íslenskum markaði. Boðar skattalækkanir  Fjármálaráðherra segir bætta stöðu ríkisins skapa svigrúm til að afnema tolla  Innstreymi fjár vegna vaxtamunarviðskipta gæti þrýst upp eignaverði á Íslandi MÁætlun um afnám … »6, 22, 60 Tryggi stöðugleika » Bjarni Benediktsson segir að þjóðhagsvarúðartækjum verði áfram beitt til að tryggja stöðugleika eftir afnám hafta. » Í áætluninni um afnám hafta er kveðið á um heimild til handa lífeyrissjóðum til að beina 25% af fjárfestingarþörf sinni á erlenda markaði á næstu árum, sem ætti að við- halda hlutdeild erlendra eigna. Franska gólettan Étoile sigldi í gær um Faxaflóa með velunnurum og vinum Frakklands. Skútan, sem er sambærileg þeim sem Frakkar notuðust við á 18. öld er þeir stunduðu fiskveiðar við strendur Íslands, lét vafalaust vel að stjórn þrátt fyrir heldur hráslagalegt veður enda voru gólettur á sínum tíma hannaðar með íslenskt sjólag í huga. Þeir Tryggvi Björn Davíðsson (t.v.) og Gunnar Einarsson (t.h.) virðast kunna öll réttu hand- tökin og voru því ófeimnir við að sýna ljósmyndara listir sínar. Étoile mun næstu daga halda áfram að gleðja augu fólks á siglingu sinni við landið. Franska gólettan Étoile öslar öldurnar á Faxaflóa Morgunblaðið/RAX Velunnurum boðið í siglingu á skútu franska sjóhersins  Erlendir ferða- menn eyða meiru hér á landi en áð- ur, ef marka má tölur um greiðslukorta- veltu fyrir apríl sl. Þá nam veltan um 9,3 milljörð- um króna, sem var 40% meira en í sama mánuði í fyrra. Kortavelta á hvern erlendan ferðamann var 15,3% meiri en í apríl 2014. Skipt eftir þjóðerni nota Svisslendingar, Bandaríkjamenn og Rússar kortin mest hér á landi. »68 Strauja 40% meira með kortunum Tekjur Ferðamenn skila miklu af sér.  Samninganefndir Bandalags há- skólamanna (BHM) og Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) hafa verið boðaðar til fundar við samninganefnd ríkisins í húsakynn- um ríkissáttasemjara í dag. Hefst fundur þeirra fyrrnefndu klukkan 9 en fulltrúar FÍH mæta tveimur tímum síðar. „Mér skilst að til standi að fara yfir stöðuna,“ segir Ólafur G. Skúlason, formaður FÍH, en í dag verður vika liðin frá síð- asta fundi. Hann kveðst vera „hóf- lega bjartsýnn“ fyrir fundinn. Páll Halldórsson, formaður samninga- nefndar BHM, tekur í sama streng. „Ég er alltaf vongóður.“ »4 Morgunblaðið/Eggert Viðræður Fundað verður í kjaradeilum. BHM og FÍH funda við ríkið fyrir hádegi  Áhorf á sjónvarpsefni hefur tekið miklum breytingum á undan- förnum árum og er nú mun meira horft á svokallaða hliðraða dag- skrá. Dæmi eru um að þættir fái betri mælingu hjá Gallup í hliðruðu áhorfi en í línulegri dagskrá. Hliðr- að áhorf hjá Skjánum er um 50% og notkunin er alltaf að aukast. Skjár- inn (Skjáreinn, Skjárbíó og Skjár- krakkar) er með yfir 600 þúsund pantanir á mánuði í hliðruðu áhorfi. »14-16 Hliðrað áhorf í stað línulegrar dagskrár
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.