Morgunblaðið - 10.06.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Brynja Dögg Guðmundsdóttir Briem
brynjadogg@mbl.is
Aðsókn í leikskólakennaranám við
Háskóla Íslands hefur aukist umtals-
vert, eða um 63,8% á milli áranna
2014 og 2015. Í fyrra voru umsóknir í
grunnnámið 47 en í ár voru þær 77.
Leikskólakennaranámið er við
Menntavísindasvið, en þar hefur að-
sókn í kennaradeild almennt aukist
mikið. Innan kennaradeildar er boðið
upp á leikskóla-, grunnskóla- og fram-
haldsskólakennaranám. Aðsókn nem-
enda í grunnnám kennaradeildar hef-
ur aukist um rúm 12% frá síðasta
hausti en aukning í framhaldsnámið
er rúmlega 32%.
Nemendahópurinn í leikskólakenn-
aranáminu er fjölbreytilegur. Aukist
hefur að fólk með BA- eða BS-gráðu í
ýmsum greinum bæti við sig meist-
aranámi á Menntavísindasviði og fái
kennsluréttindi, en alls bárust tæp-
lega 70 umsóknir í leik- og grunn-
skólakennaranám frá fólki með aðra
grunngráðu. Aðsókn karlmanna í
námið hefur aukist um 100%. Karl-
kyns umsækjendur eru þó enn mjög
fáir, þeir fara úr þremur árið 2014 í
sex á þessu ári.
Betri kjarasamningar
Jóhanna Einarsdóttir, sviðsforseti
Menntavísindasviðs Háskóla Íslands,
telur marga samverkandi þætti skýra
aukna ásókn í leikskóla- og grunn-
skólakennaranám. „Við höfum endur-
skoðað kennaranámið, sem nú gefur
nemendum kost á fjölbreyttum val-
möguleikum og sérhæfingu. Háskól-
inn veitir styrki úr Afreks- og hvatn-
ingarsjóði fyrir góða nemendur sem
hefja kennaranám. Jafnframt hefur
námið verið sérstaklega vel kynnt í ár
og ég held að það hafi skilað sér tölu-
vert. Í þeim kynningum hefur verið
vakin athygli á uppbyggingu náms-
ins, kennarastarfinu og laununum,
sem hækkuðu umtalsvert eftir síð-
ustu kjarasamninga,“ segir Jóhanna.
Byrjunarlaun grunnskólakennara
nema nú 410.635 krónum en
byrjunarlaun umsjónarkennara eru
435.779 krónur.
Nýtt skipulag fjarnáms
„Á Menntavísindasviði er boðið
upp á öflugt fjarnám, en stór hluti
nemenda tekur námið í fjarnámi.
Skipulag er gott og því er sókn nem-
enda sem búsettir eru á landsbyggð-
inni og erlendis töluverð. Jafnframt
gefur fjarnám kost á að stunda námið
með vinnu og nemendur geta ráðið
námshraðanum,“ segir Jóhanna.
Fleiri vilja í kennara-
nám í Háskóla Íslands
Um 64% aukning á aðsókn í leikskólakennaranám milli ára
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Lagt er til að innflutningstollar á
mjólkurvörum verði lækkaðir þann-
ig að ýmsar erlendar mjólkurvörur
verði boðnar til sölu hér á markaði. Í
skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands um mjólkurvöruframleiðslu
er einnig lagt til að kvótakerfi og
beingreiðslur verði lagðar niður og
tekið upp breytt styrkjakerfi.
Fram kemur í skýrslunni að
stuðningur við mjólkurframleiðslu
hafi minnkað. Beinn og óbeinn
stuðningur er settur upp í þá mynd
að árin 2011 til 2013 kostaði mjólk á
bændaverði neytendur og íslenska
ríkið 15,5 milljarða króna á ári að
jafnaði. Innflutt mjólk hafi kostað
tæplega 7,5 milljarða, með flutnings-
kostnaði. Stuðningur ríkis og neyt-
enda við framleiðsluna hafi því verið
um 8 milljarðar kr. á ári.
Í skýrslunni kemur fram sú skoð-
un að lækkun tolla á mjólkurvörur
myndi leiða til þess að neytendur
hefðu úr fleiri vörum að velja og ís-
lenskir framleiðendur fengju aukið
aðhald. Í kjölfar tollalækkana verði
óhætt að afnema opinbert heildsölu-
verð á mjólkurvörum.
Kvótinn afnuminn
Talið er rétt að afnema undan-
þágur samsteypu mjólkuriðnaðarins
frá samkeppnislögum. Þegar sam-
keppni verði orðin næg verði opinber
verðlagning einnig aflögð þar.
Lagt er til að greiðslumark verði
fellt úr gildi ásamt beingreiðslum. Í
staðinn komi annaðhvort styrkir
sem miðaðir verði við fjölda naut-
gripa og heyfeng eða hreinir búsetu-
styrkir. Tilgangurinn er að koma í
veg fyrir að styrkirnir eigngerist í
verði jarða eða á annan hátt.
Innflutningstollar á mjólk-
urafurðum verði lækkaðir
Morgunblaðið/Eggert
Afurðir Úrval mjólkurafurða eykst
með lækkandi innflutningstollum.
Lagðar til breyt-
ingar á kerfinu
Sigurður Loftsson, formaður
Landssambands kúabænda, óttast
að mikil lækkun innflutningstolla á
mjólkurafurðum muni kippa fót-
unum undan núverandi fyrirkomu-
lagi. „Stór hluti af þeim vörum sem
við erum að selja er orðinn svo
nærri tollaþakinu að lítil lækkun
gæti lagt stóran hluta framleiðsl-
unnar á hliðina. Það þarf að ígrunda
slíkar aðgerðir betur en þarna er
gert.“
„Skýrslan dregur fram sömu
mynd af greininni og við höfum ver-
ið að benda á um árangur af gild-
andi búvörusamningi. Það hefur
náðst fram gríðarleg hagræðing,
lækkun á verði til neytenda og tek-
ist hefur að verja verðið til bænda.
Þetta hefur verið gert innan þessa
fyrirkomulags,“ segir Sigurður.
Hann segist þurfa meiri tíma til
að setjast yfir tillögur og vanga-
veltur skýrsluhöf-
unda. „Við erum
hugsi yfir tillögum
um tollana, hvern-
ig dregnar eru
ályktanir af þeim
og af hverju það
ætti að vera til
bóta að lækka
þá.“ Sigurður seg-
ir skýrsluna ágæt-
is innlegg í vinnu við gerð nýrra bú-
vörusamninga. Þar sé bent á ýmsa
agnúa sem þurfi að sníða af. „Við
teljum skynsamlegra að vinna á
ókostum núverandi fyrirkomulags
frekar en að kollvarpa því og lenda
svo í agnúum nýs fyrirkomulags.“
Afnám undanþágu mjólkuriðnaðar-
ins frá samkeppnislögum telur Sig-
urður að myndi leiða til þess að
framleiðslan þjappaðist saman á
svæðum næst markaðnum.
Leggur framleiðsluna á hliðina
FORMAÐUR KÚABÆNDA ÓTTAST TOLLALÆKKUN
Sigurður
Loftsson
Heimilismenn Hrafnistu unnu öruggan sigur að venju á
bæjarstjórn Hafnarfjarðar í púttkeppni í gær. Keppnin
er haldin árlega og hefur farandbikarinn aldrei yfir-
gefið hillur Hrafnistu, enda hafa heimilismenn nægan
tíma til æfinga á meðan bæjarstjórn situr á fundum dag
og nótt. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnar-
fjarðar, fékk skammarverðlaun mótsins þar sem hann
fór hringinn á flestum höggum.
Bæjarstjórn tapaði enn og aftur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Púttmót heimilismanna á Hrafnistu í Reykjavík
Facebook.com/fundurfolksins – #fundurfolksins @fundurfolksins – Fundur folksins appið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þingfundur stóð fram eftir kvöldi á
Alþingi í gær en þegar Morgun-
blaðið fór í prentun hafði enn ekkert
samkomulag náðst um þinglok.
„Það á að vera fundur meðal for-
ystumanna flokkanna og það mun
kannski ráða einhverju,“ sagði
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, for-
maður þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins, í gærkvöldi. Spurð hvort hún
teldi brýnt að ákveða hvenær ljúka
ætti yfirstandandi þingi kvað hún
nei við. „Fjármálaráðherra mun [í
dag] mæla fyrir málum um nauða-
samninga og stöðugleikaskattinn.
Það er farsælla fyrir okkur að það sé
gert í sátt og samlyndi en ekki ein-
hverjum átökum,“ sagði hún.
Þórunn Egilsdóttir, formaður
þingflokks Framsóknar, sagði að-
spurð brýnt að taka sér þann tíma
sem nauðsynlegur væri til þess að
sinna þeirri vinnu sem fyrir þing-
heimi blasti. „Við þurfum að taka
okkur þann tíma sem við þurfum í
vinnuna. Það liggur nú alveg ljóst
fyrir,“ sagði Þórunn og bætti við að
flokkur hennar legði því engan sér-
stakan þrýsting á Einar K. Guð-
finnsson, forseta Alþingis, hvað
ákvörðun um þinglok varðar.
Enn engin ákvörðun
tekin um þinglok
Morgunblaðið/Golli
Þing Lengi var setið á fundi í gær.