Morgunblaðið - 10.06.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
SVIÐSLJÓS
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Áhorf á stóru sjónvarpsstöðvarnar
fer minnkandi samkvæmt tölum
Gallup. Sjónvarpsstjórar RÚV,
Stöðvar 2 og Skjásins segja hins-
vegar að svokallað hliðrað áhorf sé
að aukast jafnt og þétt. Það þýðir að
færri horfa á skipulagða dagskrá en
horfi á þá dagskrá sem þeir vilja
þegar þeir vilja. Tölurnar frá Gallup
mæla hliðrað áhorf frá sama degi en
ekki á öðrum dögum. Morgunblaðið
skoðaði fimm ár aftur í tímann, valdi
fyrstu vikuna í mars til að skoða
áhorfið en þessi vika var valin vegna
þess að þá eru engin stórmót í hand-
bolta eða engin önnur íþróttastór-
mót og ekkert Eurovision. Engin
sumardagskrá er byrjuð og eins og
flestir vita þá eru ekki jól eða páskar
fyrstu vikuna í mars. Vikan hentar
því vel til mælinga.
Áhorf lítið á sjónvarpsfréttir
Áhorf á fréttir RÚV og Stöð 2 hef-
ur dregist mikið saman undanfarin
fimm ár eins og sjá má á töflunni hér
til hliðar. Áhorf á vinsælasta leikna
erlenda þáttinn dregst einnig sam-
an. Árið 2011 var 27,5% áhorf á
fréttir RÚV en var 19,5% árið 2015.
Fréttastofa Stöðvar 2 fellur einnig í
áhorfi, var með 26,7% áhorf árið
2011 en er nú með 21,2%.
Vinsælasti erlendi þátturinn á
RÚV árið 2011 var með 27,2% áhorf
en árið 2015 var áhorfið komið í
21,1%. Á Stöð 2 var 14,6% áhorf á
vinsælasta erlenda leikna þáttinn en
9,8% árið 2015. Á Skjá 1 var vinsæl-
asti erlendi þátturinn með 13,4%
áhorf en í dag er vinsælasti þáttur-
inn með 8,1% áhorf.
Þetta þýðir þó ekki endilega að
sjónvarpsáhorf landsmanna sé að
minnka heldur að breytast. Niðurhal
er orðið algengt og þá eru komnar
efnisveitur, eins og Netflix og Hulu
og fleiri en þær eru ekki mældar í
könnunum Gallup. Ekki frekar en
niðurhalið.
Hver er sinn eigin sjónvarpsstjóri
Áhorf á línulega dagskrá hefur minnkað mikið síðan 2011 Hliðrað áhorf orðið að venju á
heimilum landsins sem kemur ekki fram í tölunum Áhorf á fréttir RÚV og Stöð 2 hríðfellur
2. - 8. mars 2015
Áhorf í mín. Hlutdeild % Áhorf í mín. Hlutdeild %
RÚV 387 48,2 289 36,1
Stöð 2 231 28,8 225 28,1
SKJÁREINN 83 10,4 88 10,9
RÚV íþróttir 20 2,4 13 1,6
Bíóstöðin 19 2,3 19 2,4
N4 14 1,8 8 1,0
RÚV + 11 1,4 9 1,1
Stöð 3 12 1,5 15 1,9
ÍNN 8 1,0 4 0,5
SKJÁREINN + 6 0,7 5 0,6
Stöð 2 + 4 0,5 2 0,3
Gullstöðin 4 0,5 3 0,4
Bravó 2 0,3 4 0,4
12-49 ára12-80 ára
Heimild: http://www.gallup.is/sjonvarpeldra
7. - 13. mars 2011
Heimild: http://www.gallup.is/sjonvarpeldra
Áhorf í mín. Hlutdeild % Áhorf í mín. Hlutdeild %
Sjónvarpið 574 51,4 451 43,3
Stöð 2 289 25,9 307 29,5
SKJÁREINN 89 7,9 105 10,1
Stöð 2 + 46 4,1 56 5,4
Stöð 2 Sport 42 3,8 39 3,7
Stöð 2 Bíó 29 2,6 32 3,1
SKJÁREINN + 17 1,6 19 1,9
Sjónvarpið + 15 1,3 15 1,4
Stöð 2 Extra 9 0,8 9 0,9
Stöð 2 Sport 2 5 0,4 5 0,5
Stöð 2 Sport + 2 0,2 3 0,3
Stöð 2 Extra + 1 0,1 1 0,1
12-49 ára12-80 ára
Vinsælustu erlendu leiknu þættirnir
Heimild Gallup
RÚV Stöð 2 SKJÁREINN
1. vika í mars 2011 27,2 14,6 13,4
1. vika í mars 2012 27,6 10,9 10,5
1. vika í mars 2013 24,9 13,1 5,4
1. vika í mars 2014 25,4 8,4 5,3
1. vika í mars 2015 21,1 9,8 8,1
25.-31. maí 2015 18,9 7,5 7,1
Áhorfstölur fyrstu vikuna í mars
Heimild: Gallup
2011 27,5 23,4 26,7 19,7
2012 27,5 25,1 23,3 16,3
2013 28,8 25,3 24,1 15,8
2014 21,5 16,3 21,0 14,2
2015 19,5 24,1 21,2 12,6
Fréttir RÚV Kastljós Fréttir Stöðvar 2 Ísland í dag
Drekasvæðið Vinsælasti þátturinn á Íslandi í dag er grínþátturinn Dreka-
svæðið en rúmlega 30% áhorf mældist á þáttinn síðustu vikuna í maí.
Drekasvæðið er vinsælasta sjón-
varpsefni í línulegri dagskrá en
alls á RÚV 18 þætti af 20 af vin-
sælustu sjónvarpsþáttum landsins.
Aðeins Fréttir Stöðvar 2 og Sport-
pakkinn á sunnudögum komast
inn á listann af þáttum Stöðvar 2.
Skarphéðinn Guðmundsson,
dagskrárstjóri RÚV, segir Dreka-
svæðið vera feikilega vinsælt,
bæði í línulegri og hliðraðri dag-
skrá.
„Drekasvæðið hefur að jafnaði
verið það dagskrárefni sem flestir
velja að sjá í Sarpinum og á Frels-
inu ásamt barnaefninu.“
Rúv Drekasvæðið Fös. 30%
Rúv Ferðastiklur Sun. 26,9%
Rúv Fréttir Vikan Vikan 23,3%
Rúv Íþróttir Vikan 23,1%
Rúv Veðurfréttir Vikan 21,2%
Rúv Tíufréttir Vikan 19,1%
Rúv Kastljós Vikan 18,9%
Rúv Glæpahneigð Fim. 18,9%
Rúv Séra Brown Fös. 18,8%
Stöð 2 Fréttir Stöðvar 2 Vikan 18,5%
Rúv Öldin hennar Sun. 18,4%
Rúv Besta mataræði heims Þri 17,3%
Stöð 2 Sportpakkinn Sun. 16,7%
Rúv Neyðarvaktin Mið 16,5%
Rúv Enginn má við mörgum Lau. 15,7%
Rúv Ljósmóðirin Sun. 15,1%
Rúv Flóttinn yfir Miðjarðarhafið Mán. 15,1%
Rúv Furðuveröld Lau. 14,8%
Rúv Konunglegar kræsingar Fim. 14,5%
Rúv Gárur á vatninu Þri. 13,7%
Topp 20 fyrir vikuna 25.-31. maí 2015
Yfirburðastaða RÚV