Morgunblaðið - 10.06.2015, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Módel: Kristjana Dögg Jónsdóttir
Gleraugu: Chrome Hearts
Ábyrgðar- og þjónustuaðilar: Optical Studio Smáralind, s. 528 8500 og Optical Studio Keflavík, s. 4213811
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ • 425 0500
Fagmennska
fyrst og fremst
Verslaðu á
hagstæðara
verði í nýrri
verslun
okkar í
flugstöðinni
Gögn sem tengja Íslendinga við
skattaskjól og sem ríkinu voru boðin
til sölu eru komin í hendur embættis
skattrannsóknarstjóra. Hefur
greiðsla fyrir
gögnin enn frem-
ur farið fram, að
sögn Bryndísar
Kristjánsdóttur
skattrannsóknar-
stjóra, en seljandi
þeirra fór upp-
haflega fram á
150 milljónir
króna. Var þó að
lokum samið um
greiðslu upp á 30
milljónir króna.
„Það er búið að ganga frá þessu
og gögnin eru komin hingað í hús.
[...] Næstu skref eru þau að fara yfir
þessi gögn og taka ákvörðun um það
með hvaða hætti verði unnið úr
þessu,“ segir Bryndís. Um sé að
ræða gögn sem tengi Íslendinga við
félög í skattaskjólum sem séu um
400 til 500 talsins.
Aðspurð segir hún vinnuna vera á
byrjunarstigi. „Svo þarf að greina
gögnin og móta verklag með hvaða
hætti verður unnið úr þessu. Þetta
er auðvitað mikið magn af gögnum.“
Spurð hvort hún geri sér grein fyrir
því hversu langan tíma sú vinna geti
tekið segist hún ekki geta sagt til um
það. „Sum málin eiga sér eflaust ein-
hverjar skýringar.“ hjorturjg@mbl.is
Skatta-
skjólsgögn
komin í hús
Verðmiðinn 30
milljónir króna
Bryndís
Kristjánsdóttir
Stórmeistararnir Friðrik Ólafs-
son, Jóhann Hjartarson og Margeir
Pétursson taka ásamt fjölmögum ís-
lenskum skákmönnum þátt í opnu
alþjóðlegu móti sem, fram fer á eyj-
unni Sardiníu. Þetta mót er liður í
þeirra í undirbúningi fyrir Evrópu-
mót landsliða sem fram fer í Reykja-
vík í haust en eins og fram hefur hef-
ur komið fram teflir Ísland fram
gullaldarliði í keppninni en aðrir í
þeirri sveit eru Jón L. Árnason og
greinarhöfundur. Eftir þrjár um-
ferðir höfðu Friðrik og Jóhann hlot-
ið 2½ vinning og voru í 6.- 12. sæti,
Margeir Pétursson var með 1½
vinning en hvað varðar aðra íslenska
keppendur má geta frábærrar
frammistöðu hins unga Heimis Páls
Ragnarsson sem er með 2½ vinning
eins og Stefán Bergsson. Með 2
vinninga eru Veronika Steinunn
Magnúsdóttir, Óskar Víkingur Dav-
íðsson, Áskell Örn Kárason og
Gunnar Björnsson. Alls taka 124
skákmenn þátt í mótinu, þar af 16
Íslendingar. Tvær umferðir voru á
dagskrá í gær en tefldar verða níu
umferðir og lýkur mótinu um
helgina.
Sigurskák Friðriks yfir Þjóðverj-
anum Schaefer í 3. umferð sem fram
á mánudaginn vakti talsverða at-
hygli fyrir skemmtileg tilþrif Frið-
riks sem lagði andstæðing sinn að
velli með snarpri atlögu. Friðrik,
sem var þekktur fyrir að leggjast
djúpt í stöðurnar þannig að jafnvel
fyrsti leikur hans og gat kostað
drjúgan tíma á klukkunni, teflir mun
hraðar í dag og sparar þannig
orkuna. Hann lendir yfirleitt ekki í
tímahraki en stíllinn er dínamískur
sem fyrr:
Friðrik Ólafsson – Michael
Schaefer (Þýskaland)
Drottningarbragð
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3
Be7 5. Bg5 h6 7. Bh4 O-O 7. e3 Re4
Afbrigði sem kennt er við Em-
anuel Lasker sem var heimsmeistari
frá 1896-1921. Hér er algengast að
leika 8. Bxe7 en Friðrik sneiðir hjá
alfaraleiðum.
8. Bg3 c5 9. Bd3 cxd4 10. Rxd4
Rxg3 11. hxg3 Rc6 12. cxd5 Rxd4
13. exd4 exd5 14. Bc2 He8 15. Kf1!
Til greina kom að hrókera stutt en
Friðrik vildi hafa hrókinn til taks á
h-línunni. Það á eftir að koma sér
vel.
15. … Bf8
Til að svara 16. Dd3 en hvítur
beinir nú spjótum sínum að d5-
peðinu.
16. Df3 Be6 17. Bb3 Db6?
Betra var 17. … Dd6 og eftir 18.
Rxd5 Had8 o.s.frv.
18. Rxd5 Da5?
18. … Dxd4 er svarað með 19. Rc7
en betra var 18. …. Db5+.
19. Hh5!
Þar kom hrókurinn í spilið og hót-
ar nú 20. Rf6+ með drottning-
arvinningi.
19. … Da6+ 20. Kg1 Hac8 21.
He5 Hed8 22. Hae1 Hd7
Hyggst auka þrýstinginn á d-
línunni en er of seinn.
23. Hxe6! fxe6 24. Hxe6! Hc1+
Ekki dugar 25. … Dxe6 vegna 26.
Rf6+! og vinnur.
25. Kh2 Df1
Hótar máti á h1 en Friðrik var bú-
inn að sjá þetta fyrir.
26. He1!
Línurof.
26. … Dxe1 27. Re7+ Kh7 28.
Df5+! Kh8 29. Dxf8+Kh7 30. Dg8
mát.
Glæsileg leikflétta Friðriks
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Ljósmynd/Gunnar Björnsson
Friðrik Ólafsson við taflið á Sardiníu
– með morgunkaffinu