Morgunblaðið - 10.06.2015, Page 44
44 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Jarðvinna á lóð kísilvers PCC á
Bakka við Húsavík hefst einhvern
næstu daga. Framkvæmdir við
virkjun á Þeistareykjum eru þegar
hafnar og vinna við aðra innviði er að
fara af stað með vaxandi þunga.
Fyrirhuguð framkvæmd er þegar
farin að soga að sér þjónustu.
Eftir að yfirlýsingar komu frá
sveitarfélaginu Norðurþingi, ríkinu,
Landsvirkjun og Landsneti um að
PCC hefði aflétt öllum fyrirvörum
við gerða samninga og samningarnir
hefðu því tekið gildi varð loksins
ljóst að PCC hefði ákveðið endan-
lega að ráðast í verkefnið og ekki
yrði aftur snúið. Að vísu er enn beðið
eftir staðfestingu þýsks banka á
endanlegri fjármögnun verkefnisins
og staðfestingu verktakans sem
byggir verksmiðjuna og leggur til
vélar og tækni.
Jarðvinnuverktakinn tilbúinn
Fyrsti áfangi verksmiðjunnar á að
taka til starfa á árinu 2017 og því
þarf að halda vel á spöðunum til að
öll nauðsynleg mannvirki og þjón-
usta verði til staðar þegar þar að
kemur. PCC hefur samið við verk-
taka um jarðvinnu á verksmiðjulóð-
inni. Hann er þegar kominn með
beltagröfu á staðinn og bíður eftir
grænu ljósi frá þýska fyrirtækinu.
Búast má við að sumarið verði nýtt
vel og telur Snæbjörn Sigurðarson,
verkefnastjóri hjá Norðurþingi, að
framkvæmdir verði komnar á fullt á
næstu vikum.
Unnið er að ýmsum undirbúnings-
framkvæmdum, svo sem við tengi-
veg frá þjóðvegi inn á iðnaðar-
svæðið. RARIK hefur verið að búa í
haginn með því að færa lagnir og
undirbúa nýja tengistöð. Orkuveita
Húsavíkur er að undirbúa tengingu
neysluvatns inn á Bakkasvæðið og
fráveitu þaðan.
Raforkan mun koma frá jarðgufu-
virkjun á Þeistareykjum sem vinna
er hafin við. Þar er vaxandi fjöldi
starfsmanna verktakans við bygg-
ingu stöðvarhúss og lagningu gufu-
veitu. Landsnet er að hefja undir-
búning að byggingu raflínu til að
tengja Þeistareykjavirkjun við
Bakka og landskerfið.
Tengja þarf iðnaðarsvæðið á
Bakka við Húsavíkurhöfn með nýj-
um vegi. Ákveðið hefur verið að hafa
hann að hluta í jarðgöngum undir
Húsavíkurhöfða. Vegagerðin er
langt komin með undirbúning.
Hönnun mannvirkisins er á lokastigi
og farið hefur fram forval meðal
verktaka. Gísli Eiríksson, for-
stöðumaður jarðgangadeildar Vega-
gerðarinnar, vonast til að unnt verði
að bjóða verkið út í næsta mánuði og
ganga frá samningum fyrir lok árs-
ins. Ljóst er að halda þarf vel á spöð-
unum til þess að jarðgöng og vegur
verði tilbúin haustið 2017.
Hafnarsjóður Norðurþings þarf
að bæta höfnina með lengingu
hafnargarðs, dýpkun og fyllingum.
Áformað er að hefja dýpkun í sumar
og aðrar framkvæmdir næsta vetur.
Sogar til sín þjónustu
Lengi hefur stefnt í þessa fram-
kvæmd þótt bið hafi orðið eftir
endanlegri ákvörðun af ýmsum
ástæðum. Snæbjörn segir að kísil-
verksmiðjan og þau umsvif sem
skapast muni í kringum hana hafi
þegar haft áhrif á atvinnulíf á Húsa-
vík og muni draga fleira að þegar
lengra líður.
Verið er að byggja steypustöð við
Húsavík sem þjóna mun verktaka
Þeistareykjavirkjunar og hugsan-
lega einnig verktaka við byggingu
verksmiðjunnar. Nú eru þrjár
endurskoðunarskrifstofur á Húsavík
í stað einnar. Verkfræðistofa hefur
opnað starfsstöð og fleiri hafa sömu
áform. Þá hafa verslunarfyrirtæki
og ýmis önnur þjónustufyrirtæki
sýnt áhuga á að koma upp aðstöðu.
Allt að fara í gang á Bakka
Vel þarf að standa að verki til að mannvirki og þjónusta við kísilver PCC á Bakka verði tilbúin 2017
Framkvæmdir á verksmiðjulóðinni hefjast næstu daga og verða komnar í fullan gang á næstu vikum
Bakki Kísilverksmiðjan gæti litið þannig út samkvæmt tölvuteikningu. Hún verður fyrsta fyrirtækið á nýju iðnaðar-
svæði á Bakka. Forsvarsmenn sveitarfélagsins vonast til að fleiri lítil eða meðalstór fyrirtæki fylgi í kjölfarið.
Nemendur Dalskóla í Úlfarsárdal
héldu upp á fimmtu skólaslit skólans
í gærmorgun í veðri sem kalla mætti
eftir atvikum gott. Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri var viðstaddur
gleðina og leiddu nemendur skólans
hann um fyrirhugað stæði hinnar
nýju skólabyggingar sem á að rísa á
næstu árum. Í tilefni dagsins var svo
boðið upp á köku í laginu eins og hin
nýja skólabygging.
Taka á fyrstu skóflustunguna nú í
ágúst og verður fyrsti áfanginn, sem
hýsir leikskóla, tekinn í notkun
haustið 2016 skv. áætlun. Grunnskól-
inn fylgir svo fyrst að hluta til 2017
en í heild haustið 2018. Skólinn er
þegar í nýlegri byggingu en fjöldi
nemenda sprengdi hana utan af sér
fljótlega eftir opnun og hefur hluti
kennslunnar farið fram í svokölluð-
um færanlegum kennslustofum.
Fyrsta ár skólans voru þar 32
nemendur í grunnskóla og 54 í leik-
skóla. Í haust verður svo gert ráð
fyrir 145 börnum í grunnskóla og 74
á leikskóla. Samtals gengur það því
nærri þreföldun á nemendafjölda á
tímabilinu. Með áframhaldandi upp-
byggingu í þessu nýjasta hverfi
Reykjavíkurborgar sér ekki fram á
annað en frekari fjölgun á komandi
árum og gerir spá borgarinnar ráð
fyrir 300 nemendum á grunnskóla-
aldri árið 2019.
Nýja byggingin verður hluti af
stórri samfélagsmiðstöð sem borgin
ætlar að reisa í dalnum. Þar verður
auk skóla og leikskóla að finna al-
menningsbókasafn, félagsmiðstöð,
inni- og útisundlaug og íþróttahús
Fram. Verkefnið hljóðar upp á 9.8
milljarða króna í heild og er það
stærsta á núverandi fimm ára áætl-
un borgarinnar.
Stefnt er á opnun íþróttahúss
Fram árið 2019 en félagið leikur nú
þegar heimaleiki sína í knattspyrnu
á gervigrasvellinum í Úlfarsárdal.
Árið 2020 opnar svo bókasafn, inni-
laug og menningarmiðstöð. Fram-
kvæmdum á svo loks að ljúka 2022
með opnun útilaugar.
Í kjölfar bankahrunsins hægði
mikið á framkvæmdum í dalnum en
borgin veitti lóðareigendum aukinn
frest til þess að hefja framkvæmdir.
Betri gangur er sagður kominn í þau
mál og sér borgin fram á hraða upp-
byggingu á svæðinu og leggja á nýj-
an veg, svokallaðan Fellsveg yfir
Úlfarsá. Borgarstjóri kynnti þessar
áætlanir fyrir íbúum á fundi í síðast-
liðnum mánuði. bso@mbl.is
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Úlfarsárdalur Frá vinstri: Leikskóli (fremri), grunnskóli, bókasafn og
menningarmiðstöð, sundlaug og íþróttahús Fram.
Dalskóli í Úlfarsár-
dal í nýtt húsnæði
Hluti af stórri samfélagsmiðstöð
FJÓRAR HAGNÝTAR NÁMSBRAUTIR
Fisktækniskóli Íslands
býður upp á fjölbreytt
nám í sjávarútvegi á
framhaldsskólastigi.
Námið er hagnýtt tveggja
ára nám sem er byggt
upp sem önnur hver önn í
skóla og hin á vinnustað.
Nemendur geta valið sér
námsleiðir í sjómennsku,
fiskvinnslu og fiskeldi.
Verkefni og vinnustaðir
eru valdir með hliðsjón af
áhuga hvers og eins.
Nám í skóla - nám á vinnustað
Víkurbraut 56 240 Grindavík, info@fiskt.is
FISKTÆKNI
Tveggja ára hagnýtt framhaldsskólanám til starfa í
sjávarútvegi og fiskeldi.
Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf.
Á Fisktæknibraut er hægt að velja þrjár línur:
Sjómennska/veiðar - Fiskvinnsla- Fiskeldi
Hvert námsár skiptist í eina önn í skóla og eina á vinnustað
undir leiðsögn tilsjónamanns (72 ein).
MAREL VINNSLUTÆKNI
Eins árs nám við vélar og hugbúnað frá Marel.
Inntökuskilyrði:
Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi.
Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir
leiðsögn tilsjónamanns (36 ein).
GÆÐASTJÓRN
Eins árs nám í gæðstjórnun.
Inntökuskilyrði:
Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi.
Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir
leiðsögn tilsjónamanns (36 ein).
NETAGERÐ
Þriggja ára iðnnám með mikla starfsmöguleika til starfa við
veiðarfæragerð (48 ein).
Spennandi blanda bóklegs og verklegs náms sem gefur mikla
starfsmöguleika eða til frekari menntunnar.
Nánari upplýsingar hjá
starfsmönnum Fisktækniskóla
Íslands í síma 412-5966 eða á
www.fiskt.is Námskeið
Við bjóðum fyrirtækjum og einstaklingum upp á ýmis námskeið
svo sem HACCP, vélstjórn, smáskipanám og fl. sjá heimasíðu.
Innritun hafin fyrir
haustönn 2015