Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 74
BÆJARHÁTÍÐIR
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
„Gásir eru forn verslunarstaður við
mynni Hörgár í Eyjafirði þar sem
miklar búðir voru settar upp á
hverju sumri meðan verslun fór þar
fram en ekki
mun hafa verið
þar heilsárs-
búseta,“ segir
Skúli Gautason,
framkvæmda-
stjóri Miðalda-
daga. „Þarna átti
sér stað heilmik-
ill útflutningur,
með vaðmál, lýsi
og brennistein,
meðal annars, og erlendur varn-
ingur fenginn í staðinn,“ bætir
hann við en fornminjar sem grafnar
hafa verið upp á gásum – allt frá
árinu 1907 er þeir Daniel Bruun og
Finnur Jónsson gerðu þar uppgröft
– sýna svo ekki verður um villst að
til Gása komu menn í verslunarer-
indum víðsvegar að úr Evrópu.
400 ára blómaskeið Gása
Skúli segir að verslun hafi staðið
í miklum blóma á Gásum í hartnær
fjórar aldir frá elleftu öld og fram á
þá fimmtándu. Spurður um upphaf-
ið, endalokin og ástæður þessa seg-
ir hann að líklegast hafi skipalægið
einfaldlega verið gott á þeim stað
þar sem heita Gásir. „Þess vegna
hefur orðið þarna verslunarstaður.
Staðurinn er líka miðsvæðis og
liggur því vel við, stutt í ýmsar átt-
ir. Þarna myndaðist því þorp á
hverju sumri þegar skipin komu og
fóru. Þorpið var nánar tiltekið
tjaldbúðir því það myndaðist ekki
föst búseta þarna.“ Á heimasíðu
Miðaldadaga kemur ennfremur
fram að sögulegar heimildar bendi
til þess að Gásakaupstaður hafi
byggst upp vegna aðgerða höfðingj-
ans og goðans Guðmundar dýra
sem lagði niður Vaðlaþing, vor-
þingstað héraðsins, en það mun
hafa verið seint á 11. öld. „En þess
sjást líka merki að þarna hafi átt
sér stað nokkur iðnaður. Menn hafa
hreinsað þarna brennisteininn sem
seldur var til útflutnings enda var
hann miklu verðmætari þannig.“
Skúli útskýrir að brennisteinninn
hafi verið hreinsaður með því að
sjóða hann í lýsi; þá flaut hroðinn
upp en steinninn sökk til botns.
Hvað endalok verslunarstaðarins
áhrærir segir Skúli að svo virðist
sem það hafi gerst frekar snögg-
lega. „Það eru getgátur uppi um að
það hafi orðið mikil skriðuföll í
Hörgárdal og með þeim mikið af
mold og framburði sem eyðilagði
um leið skipalægið og skemmdi
höfnina. Þá fluttist verslunarstað-
urinn til Akureyrar, innar í firð-
inum.
Sögulegar forsendur fyrir öllu
Skúli bætir því við að allt það
sem fari fram á Miðaldadögum sé
með einhverjum hætti stutt ein-
hverjum heimildum – hér ber fólk
virðingu fyrir sögunni og það í
verki.
„Annaðhvort þarf það að líkjast
einhverju sem hefur verið grafið
upp eða þá að ritaðar heimildir frá
blómaskeiði Gása gefi það til kynna
svo á því megi byggja.“
Meðal þess sem boðið verður upp
á verður námskeið í bogfimi þar
sem ungum sem öldnum gefst kost-
ur á að handleika alvöruvopn og
skjóta í mark. Leiðsögn verður í
boði um minjasvæðið þar sem for-
tíðin mun standa þátttakendum
ljóslifandi fyrir augum. „Við mun-
um bjóða upp á róður hér út á vík-
ina í Gásabátnum sem er smíði
Haraldar Inga, en bátasmiðurinn
Hjalti Hafþórsson kemur líka með
Vatnsdalsbátinn til sýnis en þann
bát smíðaði hann eftir bát sem
grafinn var úr kumli í Vatnsdal árið
1964 og er feræringur. Hann kem-
ur líka með Króka-Ref, bát sem
hann smíðaði eftir lýsingu úr hand-
riti.“
Þá verður boðið upp á kaðlagerð
úr hrosshári sem Skúli segir mikla
kúnst en til sjós þótti best að nota
kaðla úr hrosshári því það hrindir
frá sér vatni og kaðlar úr því varð
því ekki gegnsósa eins og aðrir á
sjó sem frusu og urðu ónothæfir í
köldum veðrum. „Eldsmiðir verða
við vinnu sína og þarf ekki að taka
fram að þá verður heitt í kolunum.
Þá er ljóst að það slær í brýnu er
sjálfur Flóabardagi brýst út með
meðfylgjandi steinakasti með sögu-
legu ívafi.“ Fyrir vopnmóða menn
og konur má svo benda á að hress-
ingar er von því miðaldamatur
verður til sölu í veitingatjöldum
ásamt því að miðaldatónlist hljómar
um svæðið. Þar verður á ferðinni
miðaldahljómsveitin Svartidauði
sem kunnugir segja að engu eiri.
Miðaldadagar á Gásum fara fram
helgina 17. til 19. júlí og dagskráin
er frá kl. 11 til 18 alla dagana þrjá.
Verði er stillt í hóf og aðgangseyrir
fyrir fullorðna er 1.500 kr., fyrir 13
ára og yngri: 750 kr. Börn minni en
miðaldasverð fá frítt inn. Þá verður
hægt að kaupa svokallaðan Fjöl-
skyldumiða á 5.000 kr. og gildir
hann fyrir 2 fullorðna og 3 eða fleiri
börn.
Nánar má kynna sér sögu Gása
og dagskrá Miðaldadaga á
www.gasir.is
Aftur til miðalda á Gásum
Í Eyjafjarðarsveit verða haldnir Miðaldadagar á Gásum Fortíðin verður lífguð við, allrahanda kaupskapur, hand-
verk og leikir Ómar fortíðar hljóma og lykt af alls kyns iðnaði, kolagerð og brennisteinsvinnslu berst um svæðið
Fjölskyldugaman Öll fjölskyldan skemmtir sér á Miðaldadögum, segir
Skúli, og bogfiminámskeiðið er alltaf vinsælt hjá ungviðinu.
Skúli Gautason
Dagamunur Stiginn er dans að fornum hætti enda allt sem gert er til
gamans byggt á einhverjum heimildum um lífið á Gásum.
Ljósmynd/Hörður Geirsson
Handavinna Handverk að hætti miðalda er í hávegum haft á Miðaldadögum.