Morgunblaðið - 10.06.2015, Side 87
MINNINGAR 87
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
þökkum Völu samfylgdina og
biðjum guð að hughreysta fjöl-
skyldu hennar. Blessuð sé minn-
ing Völu.
Friðrik Steinn Kristjánsson
og Ingibjörg Jónsdóttir.
Kæra vinkona. Kallið er komið
langt á undan því sem við teljum
eðlilegt og þú farin í Sumarlandið.
Þar mun þér heilsast vel, elsku
vinkona, og fyrr en varir verður
þú farin að stjórna þar öllu. Hefð-
ir sennilega orðið næsti forseti Ís-
lands ef heilsan hefði verið með
þér. Kvenskörungur varstu, það
voru forréttindi fyrir mig að fá að
kynnast þér – minnir mig einna
helst á kvenskörunga Íslendinga-
sagnanna þegar ég hugsa til þín.
Þakka þér fyrir allar þær góðu
stundir sem við áttum saman og
símtölin sem voru mun fleiri. Við
smullum saman á augabragði
þegar við kynntumst og það var
skemmtileg upplifun. Ekki var
það verra þegar við áttuðum okk-
ur síðan á því að við værum fjar-
skyldar frænkur frá Þórshöfn á
Langanesi. Það varst þú sem átt-
aðir þig á því, ættrækin og góður
mannvinur.
Við gátum talað um allt milli
himins og jarðar og aldrei kom
maður að tómum kofunum hjá
þér. Hugurinn bar þig ávallt langt
og þú varst dugnaðarforkur. Það
sýndi sig svo sannarlega þegar ég
eignaðist tvíburana mína. Þú
varst búin að finna hvern lækninn
á fætur öðrum til að bjarga stúlk-
unni minn ef á þyrfti að halda. Ég
hafði aldrei kynnst neinni mann-
eskju sem var í líkindum við þig –
ég átti stundum erfitt með að
þakka fyrir allt sem þú gerðir fyr-
ir mig. En núna er komið að mér
að endurgjalda það með því að
fylgjast með og vera til staðar fyr-
ir þín börn.
Þau eru heppin að hafa átt þig
sem móður og munu ávallt lifa
með þær góðu minningar. Stund-
um er sagt að fáar gæðastundir
séu gulls ígildi og það á vel við.
Bjarni Þórður er einstakur maður
og frábær faðir í alla staði og þar
varstu lánsöm Vala mín. Bryndís
og Ingimar Stefán munu spjara
sig í lífinu enda bæði fljúgandi
greind og vel gefin börn. Það var
ávallt yndislegt að koma á Ein-
imelinn til ykkar hjóna. Þar voru
börnin í fyrirrúmi, það sá maður
svo sannarlega, listaverkin þeirra
prýddu heimilið og þið hjónin að
springa úr stolti yfir hversu frá-
bær þau væru.
Sönn vinátta er eins og góð
heilsa. Gildi hennar getum við
sjaldan metið fyrr en við höfum
glatað henni.
Guð blessi minninguna um
góða vinkonu. Hún mun ætíð lifa
með mér.
Innilegar samúðarkveðjur
Bjarni Þórður minn, börn og að-
standendur.
Hvíldu í friði.
Þín vinkona,
Áslaug Ólafsdóttir.
Ég kveð ástkæran vin og dýr-
mætan einstakling, Völu Ingi-
marsdóttur, með 48. erindi Háva-
mála og 82. erindi Sólarljóða:
Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
og vilt þú af honum gott geta.
Geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
Hér við skiljumst
og hittast munumt
á feginsdegi fira;
drottinn minn
gefi dauðum ró,
en hinum líkn, er lifa.
Ólafur F. Magnússon.
Í dag kveðjum við elskulega
vinkonu okkar Völu Ingimars-
dóttur.
Það var fyrir nokkrum árum að
við, lítill hópur fyrrverandi Versl-
unarskólastúlkna, drógum okkur
saman á nýjan leik og fórum að
hittast reglulega til að styrkja
böndin og gleðjast.
Við fráfall Völu hefur myndast
djúpt skarð í okkar hóp. Vala var
einstakur karakter, umhyggju-
söm, ljóngreind með stálminni og
skemmtilega sérstök. Það var
stutt í hárbeittan húmorinn hjá
henni og tók oft nokkur augnablik
fyrir okkur hinar að kveikja á
gríninu. Hún hafði einlægan
áhuga á fólki, var góður hlustandi
og var einstaklega traustur vinur.
Hún var hugrökk, óhrædd við að
fara nýjar leiðir og leitaði ávallt
lausna þar sem vandamálin voru
fyrir henni bara verkefni.
Á fundum okkar, sem oftast
áttu sér stað í hádegi á sunnudög-
um, fylgdumst við með margvís-
legum viðfangsefnum Völu, svo
sem leirlistarnámi, skartgripa-
hönnun og stjórnmálastarfi. Bar
þar þó hæst stofnun fyrirtækisins
ValaMed en í því starfi kristöll-
uðust eiginleikar Völu hvað best.
Í ValaMed er unnið brautryðj-
endastarf á sviði læknavísinda
þar sem leitast er við að þróa ein-
staklingsmiðaðar lyfjameðferðir í
baráttunni við krabbamein. Það
þarf mikla orku og elju til að
fylgja svona stórhuga fram-
kvæmd úr garði. Vala var fram-
sýn hugsjónakona sem var
óþreytandi við að hjálpa öðrum og
bæta heiminn. Það er sjónarsvipt-
ir að henni.
Elsku Bjarni, Bryndís, Ingi-
mar og aðrir aðstandendur, við
vottum ykkur okkar innilegustu
samúð. Minningin um Völu lifir
áfram í hjarta okkar.
Elinrós Líndal, Herdís
Þorvaldsdóttir, Kolbrún
Björnsdóttir, Petrea
Guðmundsdóttir,
Steingerður Ingvarsdóttir,
Tinna Traustadóttir og
Þorbjörg Jónsdóttir
Góð kona er gengin.
Á afmælisdaginn minn árið
1999 átti ég bókað starfsviðtal.
Þegar þangað kom hitti ég fyrir
unga og efnilega konu sem var
nýútskrifuð úr háskólanámi. Við-
talið varð eftirminnilegt og gott.
Þessi metnaðarfulla og eldklára
kona réð mig til starfa sem urðu
bæði mér og vinnuveitandanum
árangursrík.
Allt frá okkar fyrsta fundi brá
aldrei skugga á þau fágætu heil-
indi og fallega hlýhug, sem ein-
kenndi öll samskipti Völu við mig,
allan þann tíma sem við þekkt-
umst, allt til loka.
Breytingar urðu í atvinnulíf-
inu, samstarfi okkar lauk og báð-
ar héldu til starfa við ný verkefni,
en vináttan hélt áfram og tengslin
slitnuðu aldrei.
Baráttuvilji, bjartsýni og þor
einkenndu Völu í öllu sem hún
tókst á við og það sama átti við um
erfið veikindin.
Eitt það dýrmætasta í lífinu er
gott samferðafólk. Ég er forsjón-
inni þakklát fyrir minningarnar,
að hafa átt vináttu einstakrar
konu. Minning hennar mun lifa.
Hvíl í friði elsku Vala.
Ég bið Guð að blessa Bjarna,
börnin og aðra aðstandendur og
votta mína innilegustu samúð.
Marta B. Helgadóttir.
Vala kveður tilverustig okkar í
bjartasta mánuðinum, það er
táknrænt.
Það var alltaf bjart í kringum
Völu og sópaði að henni hvar sem
hún fór. Hún var glæsileg svo af
bar, mikill dugnaðarforkur, ein-
staklega úrræðagóð og drífandi
og framkvæmdi hlutina strax,
helst í gær.
Þegar hún veiktist kynnti hún
sér alla möguleika á að ná bata og
hafði samband við heimsfræga er-
lenda sérfræðinga. Það dugði
ekkert minna.
Hér á landi var ekki starfrækt
fyrirtæki sem samræmdi lyf fyrir
sjúklinga í krabbameinsmeðferð
en slík fyrirtæki eru þekkt víða
erlendis. Málið vafðist ekki fyrir
Völu. Hún dreif í stofnun fyrir-
tækisins Vala-Med ásamt lækn-
um og fjárfestum og varð fyrsti
framkvæmdastjóri þess.
Ég kynntist Völu, þegar við
unnum saman í Hverfisráði Vest-
urbæjar fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn, hún var þá formaður.
Þar var aldeilis ekki slegið
slöku við, fundað stíft og margt
tekið fyrir og höfðum við öll,
sama hvar í flokki vorum, ánægju
af. Stundum fannst mér eins og,
að hún ætlaði okkur að fram-
kvæma allt sem betur mætti fara
í Vesturbænum á okkar stutta
kjörtímabili.
Vinsældir okkar meðal emb-
ættismanna Reykjavíkurborgar
á þessum tíma voru trúlega mis-
miklar.
Öll blómaker á götuhornum í
Vesturbænum vorum sett upp á
þessum tíma og voru þau hug-
mynd Völu og vona ég að Vest-
urbæingar hugsi fallega til henn-
ar, þegar þeir eiga leið fram hjá
þeim þessa dagana.
Annað sérlega fallegt framtak
hennar, var að kalla alla sorp-
hirðumenn Vesturbæjar á fund
til okkar rétt fyrir jól og afhenda
hverjum fyrir sig fulla gjafakörfu
af jólamat. „Þetta er erfitt starf
og enginn þakkar þeim sérstak-
lega fyrir það,“ sagði Vala. Við
vorum öll hjartanlega sammála
því. Einnig var það hennar hug-
mynd að kaupa útimyndavélar á
Melaskólann og hafa allar lýsing-
ar í lagi í kringum skólana í hverf-
inu. Bara smá dæmi.
Það var líf og fjör í Hverfis-
ráðinu þetta kjörtímabil.
Mest af öllu hugsaði Vala um
börnin sín tvö og fjölskyldu. Ekk-
ert var of gott fyrir Bryndísi Líf
og Ingimar sem hún elskaði skil-
yrðislaust.
Minningin um glæsilega, konu
sem lýsti af hvar sem fór veitir
birtu og yl inn í hjörtu allra sem
voru svo lánsamir að eiga Völu
Ingimarsdóttur að vin.
Blessuð sé minning hennar.
Við Hákon sendum Bjarna,
börnunum og allri fjölskyldunni
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Sigríður Ragna
Sigurðardóttir.
„Veri amici non prava ex-
empla, sed bona consilia dant.“
Það er eitthvað óréttlátt við
það að sitja hér saman einungis
tuttugu og einu ári eftir stúdent-
sútskrift og kveðja eina úr hópn-
um.
Við kynntumst Völu í Verzlun-
arskóla Íslands. L bekkurinn átti
tvö skemmtileg ár saman í Flug-
leiðastofunni við Ofanleiti og út-
skrifuðumst við sem stúdentar
vorið 1994. Árin á undan höfðum
við m.a. lært latínu, frönsku og
brallað ýmislegt saman.
Þegar við hugsum til Völu,
kemur upp í hugann mynd af fal-
legri og góðri konu með hlýlegt
bros. Í gegnum tíðina hittumst
við af og til og heimili Völu stóð
okkur alltaf opið. Meira að segja
þegar við mættum í brunch á
sunnudagsmorgni eftir Menning-
arnótt og Vala hafði gleymt því að
von var á okkur. Hún hélt sinni
yfirvegun og ró og bauð okkur
hjartanlega velkomnar inn með
bros á vör. Einnig minnumst við
skemmtilegrar kvöldstundar á
Einimelnum þar sem við borðuð-
um indverskan mat og lærðum
magadans.
Í gegnum árin höfum við dáðst
að styrk, þrautseigju og fram-
takssemi Völu. Þrátt fyrir erfið
veikindi náði hún að nýta þá
reynslu til uppbyggingar og
rannsókna öðrum til góðs.
Við vottum fjölskyldu Völu
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
„Vade in pace.“
Fyrir hönd 6. bekkjar L,
Bryndís, Sif og Hjördís.
Það er kannski margt líkt með
þessum erfiða vetri og hinni
hörðu lokabaráttu Völu við
krabbameinið að nú þegar honum
er lokið er Vala öll. Hún gerði allt
til þess að kynna sér sjúkdóm
sinn til að verjast, las bækur,
vafraði á netinu og kynnti sér
rannsóknir. Hún setti upp fyrir-
tækið ValaMed, var í sambandi
við virta og þekkta lækna á
sjúkrahúsum hér heima og er-
lendis.
Eftir að við kynntumst Völu
undruðumst við oft kraft hennar
þótt við vissum að hún væri veik.
Endalausar hugmyndir, oft þann-
ig að okkur þótti nóg um en ekki
Völu. Hún lét ekkert stoppa sig,
hugsaði alltaf fram á við og áfram
áfram, baráttan varð að halda
áfram þrátt fyrir þunga ágjöf
hvað eftir annað.
Við spyrjum okkur hverju
hefði þessi klára kraftmikla fram-
sýna kona getað komið í verk ef ef
hún hefði fengið til þess heilsu og
tíma. Hún var í senn frumkvöðull,
leiðtogi og lærður stjórnmála-
fræðingur sem hefði getað náð
langt á þeim vettvangi.
Við minnumst góðra tíma á
Jómfrúnni um helgar og í Flórída,
þar sem málin voru rædd í þaula á
kvöldin, gjarnan yfir góðri steik.
Hún hafði ótrúlega gaman af og
var hreinn snillingur í að versla og
gera óeðlilega góð kaup, hvort
sem var erlendis, í góði molli eða á
netinu. Auk þess hafði hún sér-
stakt auga fyrir fallegum hlutum,
eins og hönnun hennar á skart-
gripum og keramik bera vitni um.
Við þökkum Völu fyrir allar
góðar stundir á undanförnum ár-
um, sem við höfum átt með henni
og fjölskyldu hennar og sendum
Bjarna, Bryndísi, Ingimari og
öðrum aðstandendum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Guðný Magnúsdóttir og
Einar Örn Jónsson.
Kveðja frá Verði
Lokið er ævi merkrar konu.
Við fráfall hennar er margs að
minnast og afrek hennar munu
seint falla í gleymsku. Bjartur
dagur varð því miður alltof fljótt
að nóttu hjá Völu Ingimarsdóttur
en eftir liggur þó glæsilegur ferill
sem er öðrum til fyrirmyndar.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
eru og verða ávallt þakklátir fyrir
störf Völu í þágu flokksins. Vala
var formaður hverfafélagsins í
Háaleitishverfi og síðar meir
varaformaður hverfafélagsins í
Nes- og Melahverfi, sat í stjórn
Heimdallar, sat í kjörstjörn,
gegndi embætti varaformanns
miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins
og átti sæti í fulltrúaráði Varðar
til margra ára. Þá var hún einnig
um áraraðir fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins Hverfisráði Vesturbæj-
ar hjá Reykjavíkurborg og
gegndi jafnframt á tímabili for-
mennsku í ráðinu.
Arfleifð Völu liggur í því stór-
merka starfi sem fram hefur farið
hjá rannsóknarfyrirtækinu Vala-
Med sem hún tók þátt í að stofna
árið 2007, en fyrirtækið hefur
unnið að rannsóknum sem bein-
ast að því að þróa hnitmiðaða
lyfjameðferð við krabbameini.
Sjálfur á ég margar sælar
minningar um samstarf mitt og
vináttu við Völu. Saman tókum
við þátt í ótalmörgum verkefnum
í þágu flokksins og grasrótarinn-
ar í Reykjavík og mér þykir óend-
anlega vænt um að hafa fengið að
starfa með henni á þessum vett-
vangi. Vala hafði sterkar skoðanir
og var tilbúin að berjast fyrir
þeim, þau voru ófá símtölin og
hittingarnir sem við tókumst mál-
efnalega á þó við hefðum svipaða
sýn á hvaða höfn við vildum
stefna. Við kveðjum nú allt of
fljótt konu með stórt hjarta og
miklar hugsjónir, konu sem var
ætíð tilbúin að hjálpa öðrum þó
hún háði mikla baráttu sjálf við
erfið veikindi, en umfram allt
kveðjum við góðan vin.
Það er mikill söknuður að Völu
en minning hennar mun lifa um
ókomna tíð.
Óttarr Guðlaugsson,
formaður Varðar –
fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík.
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS ÁRNASSONAR
símaverkstjóra,
Kirkjusandi 1,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir eru færðar Guðmundi Rúnarssyni og starfsfólki
göngudeildar 11c Landspítala.
.
Elín Hrefna Ólafsdóttir,
Ólafur I. Ólafsson, Hólmfríður Skarphéðinsd,
Kristín H. Ólafsdóttir, Helgi Gunnlaugsson,
Guðmundur H. Ólafsson, Svandís Sigvaldadóttir,
Elinborg L. Ólafsdóttir, Leiv Tvenning,
Aðalheiður S. Kjartansdóttir, Knut Vesterdal,
Eggert H. Kjartansson, Sandra Svavarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
RÓSA MARÍA SIGURÐARDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
lést á heimili sínu 2. júní.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vinsemd við andlát hennar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Beykihlíðar, ykkar störf eru
ómetanleg. Guð blessi ykkur öll.
.
Guðbjörg Þorvaldsdóttir, Hallgrímur Jónasson,
Hildur Björk Sigbjörnsdóttir, Stefán Geir Árnason,
Guðrún Ýr Sigbjörnsdóttir,
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Katrín Jónsdóttir,
Rósa María Sigbjörnsdóttir, Sveinn Viðarsson
og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
PETRA ÓSK GÍSLADÓTTIR,
áður Hólavegi 26,
Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks
laugardaginn 6. júní.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 13. júní kl. 14.
.
Gísli Hafsteinn Einarsson, Kolbrún Sigurðardóttir,
Guðlaug Ragna Jónsdóttir, Einar Stefánsson,
Ingimar Jónsson,
barnabörn og langömmubörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
JÓHANNS ÓLAFSSONAR
bónda og organista,
Ytra-Hvarfi,
Svarfaðardal.
.
Herdís Aðalheiður Geirsdóttir,
Tryggvi Jóhannsson, Helga Hermannsdóttir,
Hafdís Jóhannsdóttir, Jósef G. Kristjánsson,
Heiðrún Jóhannsdóttir, Skarphéðinn Leifsson,
Helgi Jóhannsson,
Daníel Jóhannsson, Kristín Hjálmarsdóttir,
Sólveig Eyfeld, Younes Ababou,
Ingunn Margrét Hallgrímsdóttir,
Einar Bjarki Hallgrímsson, Sigurrós Karlsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNÍNA SIGURÐARDÓTTIR
BERGMANN
frá Fuglavík,
lést 24. maí á dvalarheimilinu Nesvöllum,
Reykjanesbæ.
Jarðarförin hefur farið fram. Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Nesvalla fyrir alúð og góða umönnnun.
.
Vigdís Pétursdóttir, Davíð Smári Jónatansson,
Nína Björk Friðriksdóttir, Halldór Viðar Jónsson,
Ragnar Friðriksson,
Sara Bergmann, Valgeir Ólason
og barnabarnabörn.