Morgunblaðið - 10.06.2015, Síða 94

Morgunblaðið - 10.06.2015, Síða 94
94 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vertu fastur/föst fyrir. Viljastyrkur þinn er mikill, sem og kjarkur og einbeitni. 20. apríl - 20. maí  Naut Veltu fyrir þér nýju sambandi, helst með einhverjum sem er erfitt að reikna út. Þú ert gefandi manneskja og tekur tillit til þarfa annarra. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það skiptir engu máli hvernig viðrar hið ytra aðeins ef þú gætir þess að hafa sól í sinni. Reyndu að nálgast hlutina úr annarri átt og leitaðu ráða hjá góðum vini. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ef þú vilt styrkja vináttuböndin skaltu muna að góðir vinir geta verið saman bæði í sorg og gleði. Það er fátt sem getur staðið í vegi fyrir þér þegar sá gállinn er á þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þótt ekki sé nauðsynlegt að vita öll smáatriði áður en lagt er af stað kemur sér þó vel að vita í stórum dráttum hvað fram- undan er. Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér finnst þú verða fyrir miklum þrýst- ingi frá samstarfsmanni þínum. Reyndu frek- ar að kynna þér málin sjálf/ur og kveða upp dóm á þínum eigin forsendum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Viljir þú ná fram einhverjum breytingum skaltu ekki hika við að láta í þér heyra þegar þín hjartans mál ber á góma. Láttu ekki blekkjast í dag. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að laga ýmislegt í starfsháttum þínum og umfram allt þarftu að muna að æfingin skapar meistarann. Reyndu að gera það besta úr hlutunum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Dagurinn í dag er ákjósanlegur til þess að gera langtíma fjárhagsáætlanir. Allt fer í sama farveg hvort sem þú stressar þig eða ekki. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú verður að láta reyna á dóm- greind þína því það hefur ekkert upp á sig að láta aðra stjórna lífi þínu á öllum sviðum. Ef þú horfir í rétta átt þarftu ekki að gera annað en að halda áfram að ganga. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Einhver er að skipuleggja óvænta uppákomu fyrir þig og þú eyðileggur hana ef þú ert of forvitin/n. Ekki fara sömu leið og allir aðrir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ættir að endurskoða líferni þitt og taka meira mið af því sem er hollt og heilsu- samlegt. Það er ekki hægt að stytta sér leið á draumastaðinn. Páll Imsland lætur ekki deigansíga í glímu sinni við sérnöfn, staðarheiti og örnefni og segir: „Ég er þess fullviss að eftirfarandi limra hefur áður verið ort, hvernig svo sem hún þá hljómaði. Þessi rím- orð kallast svo sterklega á, eins og það heitir nú í arkitektúr og skipu- lagsfræðum, að það er óhugsandi að þau hafi ekki verið notuð fyr. Hann var pöróttur Vilmundur Vídalín enda vaninn á skammta af rítalín. Það dugði samt ekki, svo dáði hann hrekki. Skyldi’ ekki skort hafa vítamín?“ Sigurlín Hermannsdóttir svaraði að bragði „Það er rétt, þessi rímorð kallast á. Ég orti fyrir hálfu öðru ári eða svo: Það er sagt að hann Sigfinnur Vítalín sé sólginn í alls konar vítamín og Hleðslu og Hámark, fær Herbalife smáspark og nú vill hann reyna við rítalín. Þetta sannar bara „great minds …“ og allt það.“ Það er alltaf skemmtilegt þegar hagyrðingar taka á sprett og svar- ar hver öðrum. Pétur Stefánsson orti á Leirnum á sunnudaginn: Stirð er lundin, gramt er geðið, gleðin veslast upp og deyr. Ennþá get ég ekki kveðið eins og forðum hér á Leir. „Vor í lofti,“ sagði Ármann Þor- grímsson og: Yljar sólin okkur hlý eftir kaldan vetur er að vora enn á ný aftur kominn Pétur Ólafur Stefánsson greip til ný- langhendu: Eins og horfinn hlöðukálfur, hulu sviptur lyftir kolli, penn að vanda Pétur sjálfur prýðir Leir, sá snjalli skolli. Helgi Zimsen hafði orð á því, að Pétur væri að rumska, – nú sé eitt- hvað í vændum: Aftur gengur enn á ný, undan skríður vetri. Leir mun flæða í ljóðagný, leysing verða í Pétri. Og þá barst kveðja norðan úr Mý- vatnssveit frá Friðriki Steingríms- syni: Aftra Pétri ekkert kann æsist leirinn glaður, aftur genginn yrkir hann eins og vitlaus maður. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Vilmundi Vídalín og Pétri sjálfum Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ HLÝTUR AÐ HAFA KLÁRAÐ TVO KÍLÓMETRA, ÞETTA VORU ALVEG FJÓRAR MÍNÚTUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að biðja fyrir öryggi hans. TYGGJ TYGGJ TYGGJ TYGGJ TYGGJ TYGGJ FÆ ÉG EITTHVAÐ AF ÞESSU POPPKORNI? ÉG HELD AÐ VIÐ ÞURFUM AÐ HÆTTA SAMAN. JÆJA, HELGA... ER ÞETTA EKKI DRAUMA- KASTALINN ÞINN?! HANN ER AÐEINS HUGGULEGRI Í DRAUMUNUM MÍNUM. „SAGAN ÞÍN GENGUR EKKI UPP.“ „EKKI KENNA MÉR UM, KENNDU SKÓLUNUM UM.“ Reykjanesið hefur upp á ýmislegtað bjóða annað en Keflavíkur- flugvöll, helstu undankomuleiðina frá Íslandi. Víkverji átti um daginn leið til Keflavíkur og ákvað að nota ferð- ina til að skoða sig um. Á leið í Garð fór hann framhjá Helguvík, þar sem miklar girðingar með ógnvekjandi skiltum um að óviðkomandi hypji sig magna frekar freistinguna að athuga hvað sé á seyði en að draga úr henni. Í Garði er alltaf rok og hafa íbúarnir greinilega ákveðið að vera ekkert að pukrast með þá staðreynd. Það fyrsta sem blasir við þegar komið er í Garðinn er skilti með áletruninni „Þar sem ferskir vindar blása“. x x x Garðskagavitarnir setja svip á bæinn. Sá eldri, sem nú er frið- aður, var reistur 1897 og var notaður allt þar til nýr viti var tekinn í gagnið 1944. Yngri vitinn er tæplega 30 metra hár og gnæfir yfir. Þarna á Garðskagatánni er falleg fjara með hvítum sandi og fjölbreytt fuglalíf gleður augað. Víkverji hefur ekkert vit á fuglum en var þó búinn að telja sér trú um að hann hefði greint tíu til fimmtán tegundir fugla. Skilti með myndum og upplýsingum um helstu fuglategundir á staðnum hjálpaði Víkverja að glöggva sig. x x x Úr Garðinum lá leiðin í Sandgerðiog þegar þangað var komið fékk sulturinn að ráða för. Veitingastað- urinn Vitinn lætur ekki mikið yfir sér en reyndist hinn huggulegasti og maturinn til fyrirmyndar. Hjónin Stefán Sigurðsson og Brynhildur Kristjánsdóttir reka staðinn. Vík- verji fékk sér krabbasúpu, sem reyndist vel útilátin og matarmikil. Full rúta af ferðamönnum var á staðnum en engu að síður gekk þjón- ustan fljótt fyrir sig og Stefán gaf sér tíma til að heilsa upp á gesti og ræða við þá. x x x Á matseðli Vitans er að mestusjávarfang og fyrir aftan staðinn er skelfiskur og krabbar lifandi í stórum körum. Það er því tryggt að maturinn á disknum er eins ferskur og mögulegt er. Vitinn kom skemmtilega á óvart. víkverji@mbl.is Víkverji Móðir mín og bræður eru þeir, sem heyra Guðs orð og breyta eftir því. (Lúk. 8:21). Árin segja sitt1979-2015 Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás. Laugarásvegi 1 104 Reykjavík • laugaas.is )553 1620 Verið velkominn Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sínum uppá úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið hafðar að leiðarljósi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.