Morgunblaðið - 10.06.2015, Qupperneq 96
96 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sýning Ragnars Kjartanssonar, Ég
og móðir mín, verður opnuð í gall-
eríinu i8 á morgun kl. 17. Á henni
verða sýnd fjögur sjálfstæð vídeó-
verk sem Ragnar hefur gert á fimm
ára fresti með gjörningi hans og
móður hans, leikkonunnar Guð-
rúnar Ásmundsdóttur, „Ég og móð-
ir mín“, og það nýjasta, unnið á
þessu ári, verður frumsýnt. Gjörn-
ingurinn felst í því að mæðginin
standa uppstillt andspænis mynda-
vélinni á heimili Guðrúnar sem
hrækir í sífellu á Ragnar. Verkin
fjögur eru frá árunum 2000, 2005,
2010 og 2015 og misjöfn að lengd,
það stysta fimm mínútur og það
lengsta 20. Verður þetta í fyrsta
sinn sem fyrstu þrjú verkin verða
sýnd saman á Íslandi.
Í miklu uppáhaldi
„Strákurinn er náttúrlega í miklu
uppáhaldi hjá móður sinni sem eru
nú engar fréttir og svo þegar vinur-
inn kemur með einhverja vitleysuna
finnst mér bara gaman,“ segir Guð-
rún, beðin um að rifja upp sín fyrstu
viðbrögð við bón Ragnars um að
hrækja á sig. Hún hafi aðstoðað
hann fyrst í útskriftarverki hans frá
Listaháskóla Íslands með því að
elda fyrir hann mat og færa honum.
Í útskriftarverkinu var Ragnar í
hlutverki óperusöngvara, söng allan
daginn á meðan á sýningunni stóð
og borðaði.
„Svo kom hann næst og bað mig
um gjörning þar sem ég átti að
spýta á hann og auðvitað sagði ég:
„Alveg sjálfsagt, elskan mín, ég er
bara fegin að þú ætlar ekki að spýta
á mig,“,“ segir Guðrún og hlær.
Mamma sé alltaf til í allt. „Svo komu
þau heim til mín og þá var hann ekki
orðinn svona frægur. Græjurnar
voru dálítið fátæklegar og vinir
hans komu með vélarnar sínar. Það
er alveg hægt að sjá það í fyrstu
„spýt-senunni“ að okkur finnst
þetta svolítið fyndið. Síðan fór þetta
að verða alvarlegra og það fór virki-
lega að reyna á minn 50 ára leik-
feril, að spýta af heift. Ég þurfti að
ímynda mér að hann væri einhver
svindlari, einhver útrásarvíkingur
sem væri búinn að svindla á fjölda
fólks og þetta reyndi á leikhæfileik-
ana.“
– Þetta hefur s.s. ekki orðið auð-
veldara með hverju skiptinu?
„Ekki aldeilis. Þetta gekk allt
saman vel og það var núna nýlega
sem síðasti gjörningurinn var fram-
inn og ég myndi segja að hann væri
einn sá dramatískasti. Svo er þetta
bara þannig að strákurinn hefur
aldrei verið mér annað en gleði og
ég held að það sé ekki hægt að gera
svona gjörning hjá mömmu og strák
nema það sé þessi virðing og kær-
leikur á milli þeirra,“ segir Guðrún.
-Hvers vegna hafa verkin orðið
dramatískari með árunum? Hvað
veldur því?
„Ég var búin að fá að fylgja hon-
um svolítið til útlanda þar sem ein-
hverjir milljónamæringar voru að
kaupa þennan gjörning og ég upp-
götvaði að þetta væri mörgum mik-
ils virði, oft einhver óuppgerð sál-
ræn mál sem þetta fólk átti við
móður sína,“ segir Guðrún kímin.
Hún hafi áttað sig á því að verkið
hefði einhverja merkingu sem hún
sá ekki í upphafi.
Álit móðurinnar mikilvægt
– Hvaða merkingu leggur þú í
verkið?
„Þetta hefur verið að breytast
smám saman. Fyrst hélt ég að þetta
væri einhver vitleysa, einhver dilla
en svo fór ég að skilja að hann er að
tala um eitthvað. Maður er með ein-
hverja vonda samvisku og það skipt-
ir máli hvað móður þinni finnst, sér-
staklega ef móðirin skiptir þig
máli,“ segir Guðrún. Í síðustu þrem
gjörningum hafi hún því ímyndað
sér að sonurinn hafi gert eitthvað
hræðilegt af sér.
– Ragnar var óþekktur þegar þið
tókuð fyrsta verkið upp en núna er
hann orðinn heimsþekktur. Hvernig
hefur verið að fylgjast með ævin-
týralegum ferli hans?
„Ekkert nema gleði. Ég hef haft
dálitlar mömmu-áhyggjur af því að
hann gangi fram af sér, gjörning-
arnir hans eru svo erfiðir,“ segir
Guðrún og rifjar m.a. upp sýningu
Ragnars á Feneyjatvíæringnum þar
sem hann málaði eitt málverk á dag
í hálft ár. „Það eru einu áhyggjurnar
sem ég hef haft en mér finnst alltaf
eitthvað einlægt í því sem hann ger-
ir, þó að ég botni ekki alltaf í því.
Þessi strákur hefur aldrei verið mér
annað en gleði,“ segir Guðrún.
– Þú verður að passa að hann
gangi ekki fram af sér!
„Ég get ekkert passað það! Þegar
ég er með einhverjar tillögur segir
hann bara: „Heyrðu, mamma, á ég
ekki bara að ráða þessu?“,“ svarar
Guðrún og hlær. „Þið eruð svona
unga fólkið, þurfið að ráða þessu
sjálf. Ykkur þykir vænt um mömm-
urnar en að þið farið eftir því sem
þær eru að ráðleggja ykkur er önn-
ur saga. Þá dugar ekkert minna en
að spýta á ykkur bara,“ segir Guð-
rún skellihlæjandi að lokum.
„Aldrei verið mér annað en gleði“
Guðrún Ásmundsdóttir hrækir á son sinn, Ragnar Kjartansson, í fjórða sinn Öll vídeóverk
Ragnars í syrpunni „Ég og móðir mín“ sýnd í i8 Ekki hægt án virðingar og kærleiks, segir Guðrún
Birt með leyfi i8.
2015 Stilla úr nýjasta vídeóverkinu í gjörningi Ragnars Kjartanssonar, „Ég og móðir mín“, sem frumsýnt verður í i8 á morgun.
Mæðginin Stillur úr fyrstu þremur vídeóverkunum í tímaröð, það fyrsta frá árinu 2000 og svo 2005 og 2010. Dramatíkin hefur vaxið með árunum.
Verslunareigendur!
Réttarhálsi 2, 110 Reykavík | www.gm.is | Sími 535 8500 | info@gm.is
Ítalskir pappírspokar
í úrvali
Flottar lausnir
til innpökkunar
allskyns vöru Eingöngu sala til fyrirtækja