Morgunblaðið - 10.06.2015, Síða 97
MENNING 97
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Ásamsýningunni Birting íListasafni Kópavogs,Gerðarsafni, mynda sjösamtímalistamenn samtal
við óhlutbundna, steinda kirkju-
glugga Gerðar Helgadóttur mynd-
höggvara, og þá einkum gluggana í
Kópavogskirkju og Skálholtskirkju.
Kirkjur og söfn eru á sinn hátt
helgistaðir sem með byggingar-
umgjörð og innbyggðu helgisiða-
haldi framkalla gjarnan upphafnar
kenndir á mörkum hins trúarlega
og hins fagurfræðilega. Sem milli-
liður „guðdómlegrar“ birtu var (og
er enn) fegurð steindra glugga í til-
komumiklum miðaldakirkjum ætlað
að miðla táknrænum boðskap og
magna trúarupplifunina. Í stórum
safnbyggingum ýtir arkitektúrinn
og rýmisskipan undir listreynsluna
og veldur m.a. nokkru um það
hvernig einstaklingar meðtaka op-
inbera listasögu. Sýningin Birting
fjallar þannig á ýmsan hátt um
mörk safns og kirkju, listar og and-
legrar reynslu.
Á einblöðungi sem fylgir sýning-
unni er rætt um „gluggainnsetn-
ingu“ Gerðar í Kópavogskirkju, og
verk hennar þannig túlkað sem
rýmisinnsetning í anda samtíma-
listarinnar. Afstraktverk hennar
verði þannig „helgirými flæðandi
forms sem er ætlað að snerta
áhorfandann með tilfinningalegum
hætti“, ekki ósvipað áhrifum sam-
tímalistar „innan „helgirýmis“
safnsins“. Hluti af helgi Gerðar-
safns felst einmitt í minningu og
arfleifð Gerðar Helgadóttur. Í öðr-
um salnum eru sýndar tvær geó-
metrískar teikningar hennar,
„Frumdrög að Skálholtskirkju“, og
eru verk samtímalistamannanna í
salnum einnig af óhlutbundnum
toga. Guðrún Benónýsdóttir sýnir
m.a. flæðandi, óhlutbundið málverk
á gólfi, en dregur jafnframt fram
hlutlæga eiginleika efnisins, efnis
sem hefur dregið í sig og fram-
kallað hið óáþreifanlega: ljósið
(dúkurinn hefur verið málaður með
ljósnæmri málningu). Þar á sér
jafnframt stað táknræn „birting“ á
samruna efnis og anda í samspili
innri og ytri þátta. Demantar halda
birtunni, magna hana og endur-
kasta og eru þannig Erlu Þórarins-
dóttur hugleiknir í geómetrískum
málverkum í sama sal. Verkin
framkalla hreyfingu forma og lita,
og byggjast á mismunandi áhrifum
og virkni lita í rými. Mynstur og
himinblár litur í veggmálverki Guð-
rúnar Kristjánsdóttur vísar til nátt-
úrunnar en einnig til hins andlega
og hins óhlutbundna.
Hvít strimlainnsetning Heklu
Daggar Jónsdóttur, sem minnir
bæði á gluggatjöld og vatnsfall,
skapar mýkt í salnum og leiðir
áhorfandann inn í næsta sal. Þar
nýtur virkni þess sín sérlega vel,
sem gljúp og flötktandi himna eða
bil milli tveggja rýma. Katrín
Agnes Klar á þar einnig falleg
litaskalaverk sem eiga sér ólíkar
birtingarmyndir, eftir stöðu þess
sem horfir. Innar í salnum má
skoða verk Ingibjargar Sigurjóns-
dóttur sem byggjast á næmri efnis-
tilfinningu og hugleiðingum um
hverfulleikann og hið óáþreif-
anlega, um andstæður ljóss og
myrkurs, efnislegan og andlegan
auð. Frammi sjást svo form Guð-
rún Kristjánsdóttur á hringlaga
glugga sem hún dregur þannig
skemmtilega fram sem himnu eða
skilrúm milli safnrýmisins og hins
ytra heims, þ.á m. Kópavogskirkju
sem blasir við á hæðinni. Formin á
glugganum falla með birtunni á
veggi og gólf innandyra, líkt og
formin í gluggum flæða í helgirými
kirkjunnar.
Á neðri hæðinni eru fleiri verk
eftir Erlu og Guðrúnu Benónýs-
dóttur en þau bæta í sjálfu sér ekki
miklu við sýninguna. Það gerir hins
vegar svarthvít ljósmyndaröð Lilju
Birgisdóttur, mismunandi sjálfs-
birtingarmyndir þar sem hún hefur
verið litgreind að utan sem innan;
eftir breytilegri ytri ásýnd og „út-
liti“ eða ósýnilegum innri kenndum
og jafnvel dulrænu innliti. Í aflok-
uðu rými má sjá form birtast á
gagnsæju tjaldi og varpast sam-
tímis á gólf og veggi í vídeóinnsetn-
ingu eftir Doddu Maggý, sí-
breytileg mynstur sem byggja á
dularfullu innra gangvirki og hafa
dáleiðandi áhrif á áhorfandann.
Sýningarborð með myndum af
gluggum Gerðar, skissum af verk-
um og ljósmyndum frá verkstæði
erlendis, minnir áhorfandann á
fjarveru þeirra verka Gerðar sem
þó eiga að vera í lykilhlutverki á
sýningunni. Gjörningur Doddu
Maggýjar við opnun sýningarinnar
í Kópavogskirkju hefur án efa
styrkt tenginguna við eina helstu
„uppsprettu“ sýningarinnar, en
þeir sem vilja skoða steinda glugga
Gerðar koma þar að lokuðum dyr-
um. Á sýningunni Birting birtast
verk Gerðar í túlkun samtímalista-
mannanna sem íhuga gildi andlegra
þátta tilverunnar og bjóða upp á
hljóðláta skynreynslu sem kallast á
virkni glugganna í kirkjurýminu.
Engu að síður vakna spurningar
um það hvort ákveðnari framsetn-
ing á verkum og áherslum Gerðar
Helgadóttur í safninu sjálfu hefði
ekki gert góða sýningu enn betri.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Dáleiðandi Í verki Doddu Maggýjar, „DeCore (venus)“ , má sjá síbreytileg mynstur sem byggja á dularfullu innra
gangvirki og hafa dáleiðandi áhrif á áhorfandann, að því er fram kemur í gagnrýni um sýninguna Birtingu.
Tilbrigði við glugga
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Falleg Katrín Agnes Klar sýnir falleg litaskalaverk á Birtingu sem eiga sér
ólíkar birtingarmyndir, eftir stöðu þess sem horfir.
Listasafn Kópavogs –
Gerðarsafn
Birting – Dodda Maggý, Erla Þór-
arinsdóttir, Gerður Helgadóttir, Guð-
rún Benónýsdóttir, Guðrún Kristjáns-
dóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir,
Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Katrín
Agnes Klar
bbbmn
Viðburður á Listahátíð í Reykjavík. Til 2.
ágúst 2015. Opið þri.-su. kl. 11-17. Að-
gangur kr. 500. Börn og ungmenni yngri
en 18 ára, aldraðir, örkyrkjar, náms-
menn: ókeypis. Frítt á miðvikudögum.
Sýningarstjóri: Kristín Dagmar Jóhann-
esdóttir.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Að undanförnu hafa komiðút nokkrar norrænarsakamálasögur þar sembörn og villidýr koma við
sögu eftir að mansal og eiturlyf hafa
verið áberandi í sögum af þessu tagi
um langt skeið. Vorlík eftir Svíann
Mons Kallentoft er ein þessara bóka
og eins ógeðslegt og viðfangsefnið
er, er það enn ein spegilmyndin sem
virðist blasa við í glæpaheiminum.
Ekkert er viðbjóðslegra en þegar
níðst er á börnum og strax í byrjun
sögunnar verður vorið og allt það
góða sem því fylgir í Linköping í
Svíþjóð að martröð. Rannsóknarlög-
reglukonan Malin Fors er kynnt til
sögunnar í fjórðu bókinni og hún
þarf ekki aðeins
að eiga við harð-
svíraða glæpa-
menn heldur
stendur jafn-
framt í mikilli
innri baráttu við
sig sjálfa og fjöl-
skylduna.
Mons Kallen-
toft hefur hér bú-
ið til góða fléttu. Sakamálin eru erf-
ið viðfangs en ekki síður
fjölskyldumálin og þegar þessi mál
stangast á er hætta á að eitthvað
verði undan að láta. Atburðarásinni
er vel lýst og vakin athygli á vanda-
málum sem lögreglukonan á við að
etja. Þau eru svo sannarlega til um-
hugsunar.
Sagan er spennandi og slungin en
það er einkum tvennt sem truflar
lesturinn. Í fyrsta lagi er frásögnin
allt of löng og í öðru lagi er sviðs-
mynd í lokin frekar ótrúleg. En ef
til vill er þessi glæpaheimur bara
orðinn svona. Hvað sem því líður
tekst höfundi að búa til ógeðslega
mynd og til þess er leikurinn eflaust
gerður.
Höfundurinn Kallentoft býr til góða fléttu í sakamálasögunni Vorlík.
Glæpamenn
svífast einskis
Glæpasaga
Vorlík bbbmn
Eftir Mons Kallentoft.
Jón Þ. Þór þýddi. Kilja. 495 bls.
Ugla 2015.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Mið 10/6 kl. 19:00 Fös 12/6 kl. 19:00 Sun 14/6 kl. 19:00
Fim 11/6 kl. 19:00 Lau 13/6 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/