Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 102
102 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Við höfum verið að fara svolítið út í
mínimalískari hluti,“ segir Franz
Gunnarsson, gítarleikari Ensími, en
fimmta breiðskífa sveitarinnar verð-
ur gefin út í júní og hefur hún hlotið
nafnið Herðubreið. Í tilefni útgáf-
unnar ætlar Ensími að blása til út-
gáfutónleika 13. júní í Gamla bíói og
mun á þeim flytja lög af Herðubreið
ásamt vel völdum slögurum úr sarpi
sveitarinnar.
Vinnsluferlið talsvert öðruvísi
„Við gáfum síðast út plötu árið
2010 og fylgdum henni eftir. Við
lögðumst svo í smádvala og hug-
uðum að öðrum verkefnum, planið
var þó alltaf að koma saman aftur.
Við vorum búnir að safna að okkur
miklum efnivið og ætluðum að taka
saman efnið og gera eitthvað úr því.
Þegar til kastanna kom fórum við
bara að dúndra út nýjum lögum svo
það var ákveðið að geyma gamla
efniviðinn og gera nýja plötu frá
grunni. Gamla efnið fær þó vonandi
að líta dagsins ljós einhvern tím-
ann,“ segir Franz.
„Vinnsluaðferð þessarar plötu var
talsvert öðruvísi en það sem við höf-
um áður gert. Við tókum til dæmis
upp trommurnar síðast, það er
skrítið í upptökuferlum, vanalega
eru trommurnar gerðar fyrst. Menn
voru svolítið að koma inn á mismun-
andi tímum í stað þess að gera þetta
saman. Heildarhljómurinn kom
þannig ekkert fyrr en allir voru
búnir að gera sitt. Maður vissi því
eiginlega ekkert í hvað stefndi.
Menn eru búnir að vera uppteknir
og svo vorum við ekki með neinn á
bakinu til að reka á eftir okkur, við
unnum þetta því bara á okkar
hraða. Þegar komið var á seinni
stigin við gerð plötunnar og við
sáum að við vorum komnir langleið-
ina, þá spýttum við í lófa og fórum
að huga að heilsteyptri útgáfu,“ seg-
ir hann.
Hrafn Thoroddsen, forsprakki
Ensími, hafði stjórn með upptökum.
Herðubreið var jafnframt hljóð-
blönduð af Arnari Guðjónssyni hjá
Aeronaut Studios og tónjöfnuð af
Mandy Parnell hjá Black Saloon í
Bretlandi. Hönnun umslags er í
höndum Lindu Loeskow. Lagið
„Auka líf“ af plötunni hefur ómað á
útvarpsstöðum að undanförnu en
Franz segir plötuna afar fjölbreytta.
Út fyrir þægindarammann
„Þegar á heildina er litið er „Auka
líf“ kannski eitt mesta Ensími-lag
plötunnar ef svo mætti að orði kom-
ast. Svo eru þarna önnur lög sem
eru frábrugðnari því sem við höfum
verið að gera. Við erum að fara svo-
lítið út fyrir þægindarammann. Við
höfum líka verið að prufa okkur
áfram í færri hljóðfærum. Það er til
dæmis eitt lag þarna þar sem Hrafn
er bara einn með gítarinn að syngja.
Við höfum ekki gert það áður þann-
ig að við erum að gera ýmislegt sem
okkur hefur aldrei dottið í hug að
gera áður,“ segir hann. Á plötunni
má meðal annars finna lag með
sama titli og platan sjálf en Franz
segir nafnið eiga vel við plötuna sem
heild.
„Okkur þykir þetta mjög sterkt
nafn og öll myndvinnslan á plötu-
umslaginu er í tenglsum við þá nátt-
úrufegurð sem fjallið Herðubreið er.
Fólk verður bara að hlusta á gripinn
og ráða fram út gátunni hver mein-
ingin er,“ segir hann kíminn.
Þurfa að huga að hljóðinu
Eins og áður segir verða útgáfu-
tónleikarnir haldnir 13. júní en þar
mun Ensími flytja plötuna í heild
sinni auk nokkurra þekktra laga
sveitarinnar.
„Fólk fær að upplifa þennan
hljóðheim sem við höfum verið að
skapa á plötunni. Þar sem þetta eru
svolítið öðruvísi pólar en við höfum
verið áður að gera, þá þurfum við að
huga svolítið að hljóðinu. Við erum
því að leggja svolítið í að gera þetta
eins vel eins og best verður á kosið
og æfum stíft,“ segir Franz og bætir
við að tónleikarnir verði konfekt
fyrir augu sem og eyru.
„Þetta verða sitjandi tónleikar og
byrja snemma þannig að fólk getur
komið og notið tónlistarinnar og far-
ið svo heim eða út á lífið að tón-
leikum loknum. Það þarf þá ekki að
vera með barnapíur alveg fram á
rauða nótt. Við munum kannski ein-
beita okkur minna að hoppinu og
skoppinu og því að búa til eitthvert
partí. Við ætlum frekar að einbeita
okkur að því að koma músíkinni eins
vandlega frá okkur og hægt er,“
segir Franz að lokum.
Minna partí, meiri gæði
Ensími efnir til tónleika í Gamla bíói hinn 13. júní vegna útkomu hljómplötunnar Herðubreiðar
Meðlimir sveitarinnar fara út fyrir þægindarammann á plötunni og feta ótroðnar slóðir
Gæði „Ætlum frekar að einbeita okkur að því að koma músíkinni eins vandlega frá okkur og hægt er,“ segir Franz meðal annars um tónleikana 13. júní.
Nóttin langa er önnur bók-in í Úlfs-hjartabóka-flokki Stefáns Mána þarsem segir frá varúlfun-
um og kærustuparinu Alexander og
Védísi. Þau eru nýfarin að búa sam-
an og kljást við mörg þeirra vanda-
mála sem ungt fólk um tvítugt býr
vð og að auki
ýmis önnur
sem vænt-
anlega koma
eingöngu inn á
borð varúlfa og
annarra slíkra,
eins og t.d.
barátta við
svartklædda
öfgahópinn
Caput sem ætl-
ar sér að út-
rýma öllum varúlfum á jörðinni og
kemur til Íslands, sem er fæðing-
arstaður varúlfagensins. Þá reynir
Alexander að koma röð og reglu á
samfélag varúlfa í landinu, sem er
býsna fjölmennt og fjölbreytilegt.
Hér, eins og í fyrri bókinni Úlfs-
hjarta, er baráttan á milli góðs og
ills í forgrunni. Fátt er það sem
sýnist við fyrstu sýn, heillandi tál-
kvendi villa á sér heimildir og mikið
reynir á samstöðu, sjálfsstjórn og
sannar tilfinningar, eins og ást og
vináttu.
Fyrir þá sem lásu fyrri bókina
(hér er eindregið mælt með því að
gera það) er áhugavert að sjá
hvernig aðalpersónan Alexander
hefur þroskast úr því að vera hálf-
trylltur varúlfur í það að vera
ábyrgðarfullur mentor ungra og
ráðvilltra manna. Bæði hann og
Védís hafa tekið að sér það hlutverk
að kenna öðru fólki með varúlfagen
að hafa stjórn á sér, en Védís hefur
aftur á móti ekki þroskast jafn mik-
ið milli bóka og kærastinn og er
ábyrgðarminni og fljótfærari að-
ilinn í sambandi þeirra tveggja. Það
er reyndar afar áhugavert, því
stelpurnar í þeim ungmennabókum
sem út hafa komið á undanförnum
árum eru oftar en ekki miklu
ábyrgðarfyllri og yfirvegaðri en
strákarnir, þær haga sér eins og
eins konar mömmur þeirra á köfl-
um. Védís er sannur töffari og það
verður gaman að sjá hvernig henni
reiðir af í næstu bókum, en höfund-
urinn hefur sagt í viðtölum að fleiri
bækur verði skrifaðar í bókaflokkn-
um.
Það er líka áhugavert hvernig
lýsingarnar á hegðun varúlfanna í
bókinni gætu vel átt við hegðun of-
ureðlilegra unglinga. T.d. verða
varúlfar viðskotaillir ef þeir gleyma
að halda sig við HALT-listann, sem
stendur fyrir Hungry, Angry,
Lonely, Tired, eða svangur, reiður,
einmana, þreyttur. Upplifi varúlfur
eitthvað af þessu framantöldu, t.d.
gleymi að borða reglulega eða sé
þreyttur, verður hann ekki hann
sjálfur, missir stjórn á sér og afleið-
ingarnar geta orðið alvarlegar.
Skyldu einhverjir unglingaforeldrar
kannast við þetta?
Stefáni Mána tekst hér vel að
blanda saman íslenskum hvers-
dagsleika og fornum goðsögnum
þannig að úr verður hin besta
blanda. Stíllinn er knappur og hrað-
ur og hæfir vel umfjöllunarefninu,
sem er annars vegar ævintýri þar
sem allt getur gerst og gott og illt
berast á banaspjótum, hins vegar
þroskasaga ungs fólks sem reynir
eftir bestu getu að aðlaga sig öllu
sem fylgir því að verða fullorðinn.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Stefán Máni Nóttin langa er önnur bókin í Úlfshjarta-bókaflokki hans.
Unglingabók
Nóttin langa bbbmn
Eftir Stefán Mána.
Sögur, 2015. 215 bls.
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
Ungir og svalir reykvískir varúlfar
Bart Simpson mun deyja í sér-
stökum hrekkjavökuþætti af The
Simpsons í haust sem nefnist Tree-
house of Horror XXVI. Haft er eftir
Al Jean, framleiðanda þáttanna, að
Sideshow Bob takist loks það ætl-
unarverk sitt að drepa Bart og viti í
framhaldinu ekki hvað hann eigi af
sér að gera þar sem meginmark-
miði hans í lífinu sé náð. „Ég er
einn þeirra sem vonauðu alltaf að
Wile E. Coyote tækist að ná Road
Runner og éta. Ég þoli ekki teikni-
myndir sem valda manni von-
brigðum og því ætlum við að standa
undir væntingum að þessu sinni,“
sagði Jean í samtali við EW. Sem
fyrr talar Kelsey Grammer fyrir
Sideshow Bob, sem lengi vel var að-
stoðarmaður trúðsins Krusty.
Aðdáendur Simpsons-fjölskyld-
unnar þurfa þó ekki að örvænta því
dauði Barts nær ekki út fyrir
hrekkjavökuþáttinn og er hann því
væntanlegur aftur á skjáinn eftir
aðeins örstutt hlé.
Óvinir Bart Simpson og Sideshow Bob.
Bart Simpson
myrtur í haust