Frjáls verslun - 01.11.2014, Page 22
22 FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 2014
fjárfestakynning í New York. Á þessum
þremur mánuðum fengu fyrirtækin hand
leiðslu lærimeistara, fjárfesta og mennta
sérfræðinga við að byggja upp rekstur
og mark aðssókn félaganna auk þess að
undirbúa stóru kynninguna til að sýna af
raksturinn. Almennt er talið að auðveldara
sé að komast inn í Harvard og Yale en
að komast í þetta prógramm og er þetta í
fyrsta sinn sem félag með íslenskar rætur
er valið þarna inn. Yfir 200 fjárfestar hlýða
á kynninguna og eftir það tekur við stífur
fjármögnunarfasi og fundir með áhuga
sömum fjárfestum,“ útskýrir Valdís.
„Hugsunin er að fyrirtækin setji upp
fjármögnunarupphæð sem þarf til að
byggja upp fyrirtækið fram að næsta fjár
mögnunarfasa og í tilfelli reKode var félagið
komið með um 30% af því markmiði fyrir
sjálfa kynninguna. Það vakti líka mikla
athygli að allir þátttakendur félagsins
væru kvenkyns og varð raunin sú að við
fengum flesta fundi með fjárfestum á
kynn ingardeginum sjálfum. Meðal áhuga
verðra fjárfesta voru ein stærstu nöfnin í
tæknigeiranum þar vestra.“
Sköpun, samvinna og forritun
Markmiðin með fyrirtækinu eru háleit og
skýr. Fyrstu námskeiðin fóru af stað nú í
nóvember í Redmond í Washington, með
glæsilegum viðtökum. Næstu mánuðir fara
í að byggja upp vitund á vörum og þjónustu
í Washingtonríki áður en haldið verður af
stað á næstu svæði.
„Bakgrunnur reKode er sterkur og góð
reynsla er þegar komin á sambærileg nám
skeið á Íslandi, en dótturfélagið Skema
hefur verið starfrækt síðan 2011. Á þeim
tíma hefur félagið tekið á móti um 3.500
börnum og 350 kennurum á forritunar nám
skeið og það víðsvegar um landið. Þetta er
fyrst og fremst ný nálgun á menntakerfið
og þróun í tæknikennslu. Grunnþekking í
forritun mun verða lágmarkskrafa í fjölda
starfa í framtíðinni og viljum við með
vörum okkar og þjónustu auka tæknilæsi og
tækniskilning komandi kynslóða með því
meðal annars að nýta tæknina í kennslu fyrir
börn og aðstoða skóla og sveitarfélög við
að „uppfæra“ sig í takt við tækniþróun með
sérsniðnum innleiðingarpökkum. Kjörorð
fyrir tækisins eru sköpun, samvinna og
forritun. Á námskeiðunum hittast krakkar
og læra saman og skapa saman. Þannig er
þessi hugmyndafræði bæði félagsleg og
lærdóms rík.
Það er ekki til sambærilegt verkefni í
heim inum og því er Rakel frumkvöðull á
sínu sviði því hún grípur þörfina og fangar
hana. Í Bandaríkjunum kennir einungis einn
af hverjum tíu skólum forritun en þar er
viðhorfið gagnvart menntun barna á sama
tíma öðruvísi en hér heima. Foreldrar setja
ekki fyrir sig að eyða 50100 þúsund krónum
í námskeið fyrir barnið sitt sem þeir telja
að gefi því forskot. Þar hugsar fólk um að
fjárfesta í börnum sínum til framtíðar því
háskólamenntun er dýr og mikilvægt að
reyna að koma börnunum inn á háskóla
styrk. Við hjá reKode ætlum að vaxa hratt
og fara í fyrsta þrepinu í samstarf við há
skóla erlendis, síðan í almenningsskólana
áður en við byggjum tæknisetur á hverju
svæði fyrir sig.
Í raun erum við að yfirfæra viðskipta
hugmynd ina á bak við íslenska félagið okkar
Skema yfir á Bandaríkjamarkað. Þar byrj
uðum við að bjóða námskeið í Háskól anum
í Reykjavík í góðu samstarfi við skólann og
erum nú komin á þann stað að opna fyrsta
tæknisetur sinnar tegundar á Íslandi í Síðu
múla 23; setur þar sem skapandi krakkar
geta komið saman, meðal annars til að
forrita og tengjast í gegnum tæknina.
Samhliða höfum við verið að vinna að
inn leiðingarverkefnum með skólum og
sveitar félögum sem miða að því að tryggja
árangurs ríka innleiðingu á upplýsingatækni
í skólastarfi. Við höfum fengið mjög jákvæð
viðbrögð þar sem við komum og skólarnir
sem við erum í samstarfi við eru mjög
móttækilegir fyrir hugmyndafræðinni. Við
sjáum því mikla framtíð í reKode sem hefur
alla burði til að þróast með tækninni og að
lagast þeim svæðum sem farið verður inn á,“
segir Valdís Fjölnisdóttir.
Hvert fyrirtæki fékk um 20
milljónir við það að komast
inn í hraðalinn og í lok október
var haldin stór fjárfestakynn
ing í New York.
Í raun erum við að yfirfæra
viðskiptahugmyndina á bak við
íslenska félagið okkar Skema
yfir á Bandaríkjamarkað.
Valdís og Rakel Sölvadóttir á skrifstofunni
í New York þar sem fulltrúar tíu fyrirtækja,
sem voru valin í Techstars, unnu dag og
nótt við að klára sínar kynningar fyrir
stóra daginn.
Salurinn fylgist spenntur með á fjárfestakynningu Techstars þegar Rakel Sölvadóttir,
stofnandi og framkvæmdastjóri reKode, kynnir hugmyndafræðina á bak við fyrirtækið.
tæknifyrirtæki