Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2014, Blaðsíða 42

Frjáls verslun - 01.11.2014, Blaðsíða 42
42 FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 2014 Hlutabréf á Wall Street héldu áfram hækkun sinni í nóvember og byrjun desember eftir skammvinna en snarpa dýfu í október. Hækkun S&P 500 frá áramótum til annarrar viku í desember var 13% en hækkun Nasdaq­vísitölu tæknifyrirtækja var 20%. Líklegustu sigurvegar­ ar ársins 2014 á Wall Street eru hlutabréf líftæknifyrirtækja á Nasdaq, þegar með 36% í annarri viku desember, fyrirtæki í heilsugeiranum með 28% en flutningafyrirtæki (Dow Jones Transports) fylgja fast á eftir með 25% – þar sem hrun á olíuverði kemur sér vel. Ólíklegt er að til teljandi lækkunar komi á síðustu vikum ársins, tíma sjálfs jólasvein arallsins sem er nærri árviss viðburður á Wall Street.“ Sigurður B. Stefánsson segir að önnur lönd í fremstu línu hlutabréfa árið 2014 séu tvö BRIC­ríkjanna, Indland með 35% og Kína með yfir 40%, til annarr­ ar viku desember – og þar af 9,5% í fyrstu viku þess mánaðar. „Ástæðan fyrir afburðaárangri í Kína frá júlí 2014 er tvíþætt. Um mitt þetta ár hafði verð á hluta­ bréfum í Shanghai lækkað nær samfellt í fimm ár frá ágúst 2009, alls um 70%. Virðast bolar loks orðnir björnum yfirsterkari í Kína. Síðari ástæðan er samkomulag milli kauphallanna í Shanghai og Hong Kong um nánara samstarf sem tók gildi 17. nóvember sl.; Shanghai­Hong Kong Stock Connect. Hækkun í Shanghai frá júlí sl. nálgast 50%.“ Sigurður segir að ör hækkun á gengi Bandaríkjadollara sé einn af meginviðburðum 2014 á fjármálamarkaði. „Í annarri viku desember var meðalgengi doll­ ara gagnvart viðskiptamyntum 12% hærra en þegar það varð lægst í maí sl. Evra lækkaði á móti dollara úr 1,38 í maí í 1,21 í byrjun desember eða um 12,3%. Svo mikil hækkun dollara á hálfu ári skekur efnahagslíf þjóða og allan gjaldeyris­, hrávöru­ og hluta bréfamarkað. Hrávörur skráðar í dollurum lækkuðu um 25% á síðari hluta ársins, olía í Banda ríkjunum um 36% og gengi jensins um 17%. Má geta nærri hvílíkan byr lækkun á gengi evru og jens færir í segl iðnaðar­ og tækniútflutnings Þjóðverja og Japana. Um leið er lækkun á olíu og hrávörum harkalegur skellur fyrir helstu útflutningsríki á þeim markaði. Í Rússlandi, þar sem hlutabréf hafa lækkað um 36% á árinu, eru horfur í þjóðarbúskapn­ um grafalvarlegar, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Norðmenn munu spjara sig en lækkun sem þessi er engu að síður þungt högg.“ Ör hækkun á gengi Bandaríkjadollars einn af meginviðburðunum SIGuRðuR B. STEFÁNSSON – hagfræðingur hjá hagfræðideild Landsbankans ERLEND HLUTABRÉF dow jones síðustu tólf mánuðina. Í bókinni Predicably Irrational eftir Dan Ariely er fjallað um rannsóknir sem hafa verið gerðar á daglegri hegð un fólks og ákvörðunum og sýnir höfundur bókarinnar fram á hvað hegðun getur verið fyrirsjá anleg í daglega lífinu. „Hann tekur sem dæmi hegð ­ un folks, í verslunum og hvernig hægt er að hafa áhrif á dagleg innkaup. Stórkostlegar eru lýs ingar hans á áhrifum þess þegar fólki finnst það vera að fá eitthvað „frítt“ eða „innifalið“ sem þó þarf að borga fyrir með einum eða öðrum hætti. Ariely fjallar meðal annars um frestunaráráttuna sem hrjáir okk­ ur öll. Við frestum oft ákvörðun og framkvæmd mikilvægra verk efna þar til allt er komið í óefni. Sem dæmi má nefna skattskýrsluna, skil á tilboðum, verkefnaskil í námi og jólakort­ in sem flestir fresta til síðasta dags. Hefðbundna lausnin felst í því að framkvæma þessi erfiðu verkefni fyrst, helst strax á morgnana, nota „to do“­lista, minnka áreiti, verðlauna sig fyrir verklok eða draga úr fullkomn­ unarþörfinni. Ariely framkvæmdi rannsóknir á fólki sem sýna að „þvingaðir lokatímar á verkefni“ eru besta ráðið. Það kemur heim og sam ­ an við Parkinson­lögmálið sem segir að verkefni taki þann tíma sem þau fá. Ef enginn er loka ­ tíminn tekur verkefnið langan tíma en ef raunhæfur lokatími er ákveðinn vinnur fólk oftast með árangursríkum hætti.“ Thomas ráðleggur fólki að rifja upp hvað það vinnur oft vel dagana áður en það fer í langt frí. „Þá forgangsraðar það verkefnum sem aldrei fyrr og lætur ekkert trufla sig að óþörfu. Ágætt ráð væri að fólk ynni alltaf eins og það væri að fara í langt frí á hverjum föstudegi.“ THOMAS MöLLER – framkvæmdastjóri Rýmis STJÓRNUN Eins og framundan væri langt frí álitsgjafar „Hann tekur sem dæmi hegð un folks í verslun­ um og hvernig hægt er að hafa áhrif á dagleg innkaup. Stórkostleg­ ar eru lýs ingar hans á áhrifum þess þegar fólki finnst það vera að fá eitthvað „frítt“ eða „innifalið“ sem þó þarf að borga fyrir með einum eða öðrum hætti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.