Frjáls verslun - 01.11.2014, Blaðsíða 160
160 FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 2014
„Við leitumst í sameiningu við að komast að kjarna verksins með tilliti til þess hvernig best sé að
kynna það, bæði myndrænt og í texta.“
Jón Þorgeir Kristjánsson, nýráðinn mark aðs stjóri Borgarleik hússins, hefur verið viðloðandi leikhús frá unga aldri. Hann var
aðeins fjórtán ára þegar hann,
ásamt félögum sínum í Haga
skóla, stofnaði áhuga leik húsið
Ofleik. „Nokkru síðar sett um við
upp sýningar í Tjarnar bíói og
Iðnó þrjú sumur í röð, sem gengu
mjög vel. Við vorum þá komin í
samstarf við Hitt húsið, fengum
styrk frá Evrópusamband inu
og höfðum efni á að ráða fólk í
vinnu,“ segir Jón Þorgeir, sem
sjálfur fór með hlutverk í leikrit
unum, hafði markaðsmálin á sinni
könnu og sitthvað fleira tilfallandi.
Á menntaskólaárunum var Jón
Þorgeir í stjórn leikfélags MR
og lék í Herranótt. Hann hefur
prófað flest sem tengist leikhúsi
og tekið þátt í um eitt hundrað
sýningum með einum eða öðr
um hætti á fimmtán árum. Samt
er hann aðeins tuttugu og níu
ára. Áður en hann hóf nám í
grafískri hönnun í Listaháskóla
Íslands lék hann t.d. með sviðs
listahópi, sem sýndi í á Ítalíu, í
Þýskalandi og Bretlandi og lauk
í kjölfarið diplómanámi í Physical
Theatre í Wales.
„Algjör tilviljun og misskilning
ur, ég ætlaði aldrei að verða
leik ari,“ segir Jón Þorgeir og lýsir
tildrögunum: „Ítalskur leikstjóri
fékk mig til að hjálpa sér með
lýsingu í Sundhöllinni í Reykja
vík þar sem hann var að setja
upp sýningu. Tveimur mánuðum
síðar hringdi hann og spurði
hvort ég vildi taka þátt í sýningu
í Þýskalandi og víðar. Ég sló til,
enda hélt ég að hann vantaði
ljósa mann. Þegar á hólminn
var komið kynnti hann mig fyrir
leikhópnum og mér til mikillar
undrunar – ljósamanninum. Ég
varð því einn leikaranna og við
tók mikið ævintýri með sýningum
á Ítalíu og Bretlandi.“
Áður en Jón Þorgeir hóf nám í
LHÍ og einnig samhliða náminu
var hann útsendingarsjóri hjá
RÚV um eins árs skeið en
aðal lega starfaði hann þó innan
leik hússins og með ýmsum
leik hópum. Til dæmis var hann
mark aðsstjóri og tók þátt í endur
reisn Loftkastalans og vann við
ljósa og myndbandshönnun.
Um svipað leyti og hann
útskrifaðist sem grafískur
hönn uður 2010 réð hann sig til
starfa í markaðsdeild Borgarleik
hússins. „Menntunin kemur
mér til góða í starfinu, enda
snýst það að mörgu leyti um hið
sjónræna; framsetningu kynn
ingarefnis, sem felst í að lýsa
væntanlegri upplifun áhorfenda.
Grafísk hönnun er hin hliðin
á markaðsmálum,“ segir Jón
Þorgeir.
Hann þurfti ekki að hugsa sig
tvisvar um þegar honum var
boðin staða markaðsstjóra. Og
þótt hann hanni ekki lengur
kynningarefni leikhússins tekur
hann þátt í ferlinu frá byrjun.
„Starf markaðsstjóra felst fyrst
og fremst í að vekja áhuga
fólks á leikhúsinu. Undirbúning
ur leikársins hefst í apríl. Þá
setjumst við niður með listræn
um stjórnendum hverrar sýning
ar og leitumst í sameiningu við
að komast að kjarna verksins
með tilliti til þess hvernig best sé
að kynna það, bæði myndrænt
og í texta. Við reynum að finna
tengingar inn í samfélagið og
tíðarandann. Enda á listin að
sýna fólki heiminn eins og hann
er eða mögulega í nýju ljósi.“
Helstu verkefni markaðs stjór
ans í desember hafa verið að
kynna gjafakort leikhússins
og undirbúa markaðssetningu
fjölskyldusýningarinnar Billy Elliot,
sem frumsýnd verður í mars.
„Hver dagur fer annars vegar í
að skipuleggja starfið frá degi
til dags og hins vegar nokkra
mánuði fram í tímann. Við erum
með fjölda sýninga á fjölunum
og í bígerð. Mér finnst gríðarleg
áskorun felast í að markaðs
setja verkin rétt í samræmi við til
hvaða hópa þau höfða og ýmsa
aðra þætti.“
Jón Þorgeir er lukkunnar pam
fíll að því leytinu að vera í starfi
sem sameinar öll hans áhuga
mál. „Leikhús, grafísk hönn
un, myndlist, markaðsmál og
ferðalög. Gæti ekki verið betra,“
segir hann. Raunar á hann sér
einnig það áhugamál að bruna
um fjöll og firnindi á snjóbretti,
en finnst ekki koma að sök þótt
það rúmist ekki innan leikhús
starfans.
– markaðsstjóri Borgarleikhússins
Jón Þorgeir Kristjánsson
Nafn: Jón Þorgeir Kristjánsson.
Starf: Markaðsstjóri Borgarleik-
hússins.
Fæðingarstaður: Reykjavík, 11.
apríl 1985.
Foreldrar: Margrét Hallgrímsson
ljósmóðir og Kristján Erik Kristjáns-
son húsasmíðameistari.
Menntun: BA í grafískri hönnun frá
Listaháskólanum í Reykjavík. Stundar
MBA-nám í HR og stefnir á að
útskrifast vorið 2015.
Jón Þorgeir Kristjánsson – markaðsstjóri Borgarleikhússins.
uMSJón: valGerður Þ. JónSdóTTir / MYndir: Geir ólafSSon
fÓlk