Frjáls verslun - 01.11.2014, Blaðsíða 108
108 FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 2014
Markmið hugbúnaðar- og þekkingarfyrirtækisins Azazo er m.a. að hjálpa fyrirtækjum að hagræða,
varð veita og vista upplýsingar til þess að þau geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni og komið í
veg fyrir upplýsingaleka.
M
ér fannst of
mikil sóun
hjá fyrirtækj
um,“ svarar
Brynja
Guð mundsdóttir forstjóri,
spurð um upphaf Azazo, sem
hún stofnaði árið 2007. „Hjá
mörg um fyrirtækjum fer allt of
mikill tími í að leita að gögnum
og skrá óþarfa gögn auk þess
sem fyrirtæki eru oft með of
marg ar hugbúnaðarlausnir,
sem þau eru jafnvel sjálf að
þróa. Ég er viðskiptafræðingur
af endur skoðunarsviði og var
stjórnandi í tuttugu ár hjá
nokkr um stórum fyrirtækjum
áður en ég stofnaði Azazo. Þar
sem ég hef mikla reynslu sem
fjármála og rekstrarmanneskja
sá ég tækifæri til að hjálpa
fyrir tækjum að hagræða og ein
beita sér að kjarnastarfsemi
sinni. Móttökurnar hafa verið
ótrúlega góðar og ég er stolt af
viðskiptavinum okkar sem þora
að hagræða því oft þarf kjark til
að breyta.“
Hugbúnaðar og þekkingar
fyrirtækið Azazo sérhæfir sig
í stjórnun upplýsinga, skjala,
verkefna, funda og gæðamála
með upplýsingastjórn unar
kerfi nu CoreData ECM. Á
ráðgjafarsviði er boðið upp
á víðtæka ráðgjöf til að bæta
heilsu fyrirtækja og í vörslu setri
fyrirtækisins eru gögn með
höndluð og varðveitt. Brynja
kveðst hafa lagt upp með að
fyrir tækið yrði alþjóðlegt og sem
slíkt hafi það náð mjög góðum
árangri árið 2014.
„Auk þess að hafa landað
mörg um stórum samningum
á árinu erum við komin með
erlendan sölumann og á fullt
með að skipuleggja sölu erl
endis. Snemma á árinu hófum
við samstarf við stórt erl ent
fyrirtæki um raf rænar undir
ritanir, lausn sem getur sparað
fyrirtækjum verulegar fjárhæðir,
og erum í samn inga viðræðum
við fleiri.“
SKRIFSTOFAN GETUR
VERIð ALLS STAðAR
Samstarfið við erlenda fyrir
tækið, sem Brynja vísar til,
og notar nú hugbúnað frá
Azazo til að kynna rafrænar
lausn ir sínar, segir hún fyrir
tækinu afar mikils virði. Einnig
samstarfið við Auðkenni hér
heima. Hún er tvímælalaust á
því að notkun rafrænna skilríkja
skapi mikið hagræði. Til marks
um hversu vel hefur tekist að
hasla fyrirtækinu völl á erlendri
grund nefnir hún boð á stærstu
farsímaráðstefnu heims í Barce
lona fyrr á árinu.
„Okkur var boðið að vera
með á tveimur básum, annars
vegar hjá mjög stóru alþjóðlegu
fyrirtæki og hins vegar í aðalbás
sýningarhaldara. Þarna sáum
valGerður Þ. JónSdóTTir / MYndir: Geir ólafSSon oG úr einkaSafni
Azazo
Upplýsingastjórnun á alþjóðavísu
Áramót
eru tímamót
Brynja Guð mundsdóttir forstjóri, spurð um upphaf Azazo