Frjáls verslun - 01.11.2014, Side 48
48 FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 2014
Valdimar Sigurðsson segir að markaðsfræði og markaðssetning séu yfirleitt tengd
því að ná athygli, auka neyslu,
kaupa meira og kaupa dýrari
vöru, og svo sem ekkert skrítið
við það. „Mér datt í hug að
taka annan pól í hæðina í þetta
skiptið og leggja áherslu á það
sem við köll um í markaðs
fræðinni „de mark et ing“ eða
afmarkaðsvæðingu en það
gengur út á að minnka eftir
spurn. Um jólin eigum við að
vera með fjölskyldunni og þó að
ýmis varningur eða vörumerki
séu nauðsynleg á jólunum þá
má alveg minnka ýmislegt. Mig
langar frekar til að leggja á her slu
á markaðssetn ingu á þeirri
hugmyndafræði að fjölskyldan
gefi sér góðan tíma til að vera
saman og að við lokum aðeins á
markaðssetn ingu eða truflun frá
verslunum, gluggapósti, farsím
um, tölvum, samfélagsmiðlum
og öllu því gíf ur lega áreiti sem
er í samfélaginu. Mig langar að
markaðssetja það; markaðs
setning þarf ekki eingöngu að
tengjast vöru og þjónustu heldur
bara hugmynda fræði. Það er
þessi hugmyndafræði að við bara
slöppum af og njótum tímans
með okkar besta fólki. Önnur
hugmyndafræði er að tala góða
íslensku og varðveita hana. Ég
hvet sérstaklega markaðsaðila
til að tala á íslensku. Fyrirtæki
geta varla lengur heitið íslenskum
nöfnum, svo tölum við um „mall“
og „outlet“ og þessi áhersla á
daga líkt og „Black Friday“ er
bæði döpur og hallærisleg. Þetta
eru áramótaheit sem við ættum öll
að skoða vel.“
DR. VALDIMAR SIGuRðSSON
– dósent við við skiptadeild HR
MARKAÐS-
HERFERÐIN
Fólk loki eilítið á markaðssetningu yfir jólin
álitsgjafar
Enn einu árinu er nú að ljúka og fyrirtækin fara að hamast við að klára ársreikninga sína og
undirbúa aðalfundi. Eitt af því
sem huga þarf þá að er skipan
stjórnar. Stjórnir fyrirtækja hafa
mikilvægu hlutverki að gegna
bæði hvað varðar eftirlit með
stjórnendum og þeirra störfum
og sem stefnumótandi aðili. Það
er brýnt að stjórnir séu skipaðar
einstaklingum með viðeigandi
þekkingu og reynslu. Það þarf
því að huga vel að samsetn
ingu stjórnar, þannig að hæfileg
breidd náist í þekkingu, hæfileik
um og færni. Þannig verður
ávinningurinn af fjölskipaðri
stjórn mestur.“
Margret G. Flóvenz segir að
Womens Corporate Directors
(WCD) sé alþjóðlegur umræðu
vettvangur stjórnarkvenna sem
hafi það að markmiði að efla og
bæta stjórnarhætti fyrirtækja.
Íslandsdeild samtakanna hefur
að undanförnu fjallað um skipan
í stjórnir og nauðsyn þess að val
á stjórnarmönnum sé faglegt og
hugað að samsetningunni.
„Þegar hluthafar tilnefna stjórnar
kandídata hver í sínu lagi skapast
hætta á að stjórn verði of einsleit
eða í hana vanti tiltekna eigin
leika eða þekkingu sem mikilvæg
er fyrir viðkomandi fyrirtæki.
Betri niðurstaða gæti fengist með
því að hluthafafundir skipuðu
tilnefninganefnd sem setti fram
tillögur að samsetningu stjórnar
til aðalfundar. Hlutverk tilnefninga
nefndar er að sjá til þess að á
aðalfundi séu í framboði til stjórn
arsetu einstaklingar sem saman
mynda heild sem hafi á að skipa
nægilegri þekkingu og reynslu
til þess að geta sem best rækt
hlutverk sitt. Einn möguleiki er
að tilnefninganefndir auglýsi eftir
stjórnarmönnum þannig að hæfir
einstaklingar eigi auðvelt með að
gefa kost á sér og nefndin hafi úr
sem breiðustum hópi að velja.“
Endurskoðun
Skipan stjórna
Rekstur ríkisstofnana hefur verið mikið í umræðunni undanfarið. Fer þar fremst í flokki
RÚV sem virðist botnlaus hít með
öflugasta þrýstihóp landsins á
bak við sig og eina sem ég get
er bara að borga og borga. Ég
borga, konan borgar og EHFið
mitt þarf líka að borga þótt það
hafi hvorki augu né eyru!
Nú nýlega var ráðinn nýr þjóð
leikhússtjóri. Það er ánægjulegt
að sjá að þarna fari lífsreyndur
maður hertur í erfiðu rekstrar
umhverfi SÁÁ en það er þrautin
þyngri að vilja bjóða upp á heil
brigðisþjónustu á Íslandi sem er
ekki stjórnað beint úr heilbrigðis
ráðuneytinu.
Ef við skoðum fyrri leikhússtjóra
þá fóru þar framsóknarmaður,
tveir leikarar og tveir leikstjórar.
Nýi maðurinn er með rekstrar
menntun, rekstrarreynslu utan og
innan ríkisstofnunar, leikara
menntun og innanhússþekkingu
á duttlungum, siðum og ósiðum
sem eru innbyggð í leikhúslíf
á Íslandi og er það gott. Hann
ætti því að geta bætt reksturinn
allverulega.
Eins og oft þegar nýr tekur
við er viðtal við hann í öllum
fjöl miðlum hverju nafni sem þeir
nefnast. Mér fannst allt of mikið
gert úr „gamla alkanum“ en
minna úr því að líklega hefur ekki
verið betur vandað til ráðningar
áður í þetta vandasama starf og
vona ég að hann standi sig vel.
Það er annars umhugsunarefni
af hverju hið opinbera tekur að
sér að tryggja okkur réttu menn
inguna og umfjöllun um dagleg
mál hverju sinni. Er hægt að
tala um innrætingu eða jafnvel
skoðanakúgun?“
Rétta menningin
ÁRNI ÞÓR ÁRNASON
– stjórnarformaður Oxymap ehf.
FYRIRTæKJA-
REKSTUR
MARGRET FLÓVENz
– stjórnarformaður KPMG
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
7
21
12
1
2/
14
+ icelandair.is Vertu með okkur
VELKOMIN HEIM
Á jólunum viljum við að gleðin sé við völd. Við viljum halda í hefðirnar og vera í faðmi
fjölskyldu og vina. Á stað sem okkur er kær. Heima hjá okkur.
Stundum flækist lífið fyrir fögrum fyrirheitum. Áætlanir breytast. Rétt eins og lífið.
Þá aðlögum við okkur. Við getum pakkað jólunum niður og flutt þau þangað sem hjartað slær.
Flogið yfir fjöll og höf og búið okkur til nýjar hefðir þar sem ástvinir okkar eru.
Gleðilega hátíð.