Frjáls verslun - 01.11.2014, Qupperneq 121
FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 014 121
sögu. Fjárhagsstaðan er einnig
sterk sem gerir félaginu kleift
að vera virkari þátttakandi
en ella á leigumarkaðnum
með atvinnuhúsnæði. Framtíð
Reita er því björt og horfur
félagsins á næsta ári verða að
teljast góðar enda stefnum
við að kauphallarskráningu á
hlutabréfum og skuldabréfum
félagsins næsta vor.“
ÁHERSLA Á
ATVINNUHÚSNæðI
Hver er stefna fyrirtækisins?
„Reitir sérhæfa sig í þjónustu
og rekstri atvinnuhúsnæðis með
áherslu á verslunarhúsnæði,
skrif stofuhúsnæði og hótel bygg
ingar á höfuð borgar svæð inu. Í
krafti stærðar, fjöl breytileika og
sérfræði þekk ingar skapa Reitir
umgjörð um atvinnu starfsemi
sem skilar viðskipta vinum
árangri og eig endum ávinningi.
Stefnt er að því að Reitir
viðhaldi og styrki markaðs stöðu
sína sem öflugasta fasteigna
fé lag landsins. Markaðssókn
félagsins mun felast í frekari
styrk ingu eignasafnsins með
vel völdum eignum og auknum
sam skiptum við viðskiptavini
með það að markmiði að skilja
húsnæðisþarfir þeirra til hlítar
og uppfylla þær sem best.
Vöruþróun félagsins mun
felast í þjónustuframboði sem
veitir viðskiptavinum tækifæri
til að njóta stærðarhagkvæmni
félagsins varðandi sérhæfða
þætti í rekstri húsnæðis.“
Á hvað leggur fyrirtækið áherslu
í auglýsingum og kynn ingum?
„Við leggjum fyrst og fremst
áherslu á skynsamlega nýtingu
fjármuna sem þjónar stefnu
félagsins og markmiðum. Skila
boð þurfa að vera hnit miðuð
og höfða til áhuga og hags muna
markhópa okkar, rétt eins og
þeir farvegir boð miðlunar sem
verða fyrir valinu hverju sinni.“
ÞÁTTTAKA Í MóTUN
UMHVERFISVITUNDAR
Hver er stefna fyrirtækisins
varðandi samfélagslega ábyrgð?
„Reitir vilja vera þekktir fyrir
fagleg vinnubrögð og ábyrgð í
umhverfis og samfélagsmálum
og við leggjum mikið upp úr
þess um þætti í starfseminni.
Í fyrsta lagi öxlum við þessa
ábyrgð með því að sinna hlut
verki Reita af kostgæfni. Í öðru
lagi með þátttöku í mótun
um hverfisvitundar í atvinnu
lífinu. Græn leiga Reita snýst
um að leigusali og leigu taki
sammælist um að reka hús
næð ið með vistvænum hætti
og fylgja ákveðnum viðmiðum
um sorp hirðu og endurvinnslu;
raf orku og vatnsnotkun; inn
kaup á rekstrarvörum og
bygg inga vörum; rekstur og
við hald sérhæfðra kerfa ásamt
við leitni til að auka vægi vist
vænna samgöngumáta. Í þriðja
lagi felst samfélagsleg ábyrgð
félagsins í stuðningi við valin
verðug verkefni svo sem við
Fjölskylduhjálp Íslands, sem
veitti Reitum sér staka viður
kenningu fyrir fram lag sitt til
starfseminnar á árinu 2014.
Reitir afhentu fjölskyldu hjálp
inni húsnæði í Iðufelli 14 á
öndverðu ári 2013 og hefur
húsnæðið síðan þá hýst aðal
starfs stöð samtakanna. Enn
fremur má nefna stuðning við
UNICEF, barnahjálp Sam ein
uðu þjóðanna á Íslandi, UN
Women og Heimili og skóla.“
LIFANDI VINNUSTAðUR
Hefur fyrirtækið komið sér upp
ákveðnu gildismati til að starfa
eftir?
„Jákvæðni, fagmennska og
samvinna eru megingildi
Reita. Stjórnendur félagsins og
starfs menn hafa gildin til hlið
sjónar í öllum samskiptum við
samstarfsmenn, viðskipta vini,
hluthafa og aðra hags muna
aðila. Jafnframt leggj um við
síaukna áherslu á frum kvæði
í umhverfismálum og leitumst
við að vinna með við skipta
vinum okkar að vist væn um
lausnum þar sem þess er
kostur.“
Hver er stefnan í starfsmanna
málum?
„Til þess að rækja hlutverk
Reita sem öflugasta fasteigna
félags landsins viljum við
hafa á að skipa hæfileikafólki
sem hefur metnað til þess að
takast á við krefjandi verk efni
og færni til að veita fag lega,
aðgengilega og örugga þjónustu.
Við viljum að fyrir tæk ið sé lif
andi vinnustaður þar sem við
njótum þess að ná árangri í
góðum hópi, fyrir við skiptavini
Reita, fyrirtækið sjálft og eig
endur þess.“
„Framtíð Reita er því
björt og horfur félagsins
á næsta ári verða að
teljast góðar enda stefn
um við að kauphallar
skráningu á hlutabréf
um og skuldabréfum
félagsins næsta vor.“
REITIR FASTEIGNAFéLAG
Velta: Tekjur árið 2013 námu 8.168 milljónum króna.
Fjöldi starfsmanna: 18.
Forstjóri: Guðjón Auðunsson.
Stjórnarformaður: Elín Árnadóttir.
Stefnan í einni setningu: Að Reitir viðhaldi og styrki
markaðsstöðu sína sem öflugasta fasteignafélag landsins.
Stjórn og forstjóri Reita, frá vinstri: Finnur Sveinbjörnsson, Martha
Eiríksdóttir, Guðjón Auðunsson, forstjóri, Elín Árnadóttir stjórnarfor-
maður, Þórarinn Viðar Þórarinsson hrl. og Gunnar Jónsson hrl.
Reitir eru öflugasta fasteignafélag landsins.