Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2014, Page 151

Frjáls verslun - 01.11.2014, Page 151
FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 014 151 en um hana hefur verið sagt að hún búi yfir glæsileika Jackie Kennedy, gáfum Hillary Clinton og persónutöfrum Lauru Bush. Hún er alltént engin puntudúkka, heldur segir sína meiningu, er slyng í röksemdafærslu og hefur lagt sitt lóð á vogarskálarnar í ýmsum þjóðþrifamálum, sem sumir kjósa að vísu að kalla mjúku málin. Fyrstu mánuðina sem forseta­ frú kynnti hún sér að stæður heimilislausra og fylgdi manni sínum í opin berum heimsóknum og öðrum erindagjörðum til útlanda. Fljótlega fór hún að verja kröftum sínum í þágu heil brigð ari lífshátta en landar henn ar höfðu almennt tileinkað sér og ganga sjálf fram með góðu fordæmi. Í því skyni hrinti hún af stokkunum átakinu Let‘s Move! til að hamla gegn offitu ­ far aldrinum. Ekki vanþörf á í ljósi þess að eitt af hverjum þremur bandarískum börnum þjáist af offitu. Hún á heiðurinn af matjurtagarðinum við Hvíta húsið, sem hún væntir að verði öðrum til eftirbreytni sem og bókin sem hún skrifaði um reynslu sína af matjurtaræktun. Liður í heilsuátakinu var að hvetja mæður til brjóstagjafa. Teboðs hreyfingin með Söruh Palin fremsta í flokki gerði stólpa grín að boðskapnum og fannst hann óttalega lítil­ fjörlegur. Leikur á als oddi En Michelle Obama lætur ekkert stöðva sig. Hún kemur fram í hverjum sjónvarps þætt ­ inum af öðrum, barna tím um og spjallþáttum, talar fyrir átakinu og bregður oftar en ekki á leik, dansar og syngur ef svo ber undir og þykir hin skemmtilegasta. Til að mynda tók hún áskorun spjall þátta ­ stjórans Ellen Degeneres um arm beygju keppni og sigraði 25:21. Upp lýsti að hún æfði daglega í einn og hálfan tíma. Þar kom skýr ingin á hinum rómuðu hand leggjum. Hvar sem hún drepur niður fæti, á heimaslóðum eða á ferðalögum um Rússland, Afríku eða Indland, hvetur hún líka ungt fólk til að afla sér menntunar. Undanfarið hef ur reyndar vakið athygli að hún fylgir manni sínum ekki eins mikið á ferðalögum og áður. Til dæmis ekki þegar hann átti fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Kaliforníu í sumar, Peng Liyuna, eiginkonu þess síðarnefnda, til mikilla vonbrigða að því er hermt var. Og líka mörgum Kínverjum sem vildu gjarnan sjá þessi róm uðu tískutákn austurs og vesturs hlið við hlið. Michelle hafði sér til málsbóta að Sasha átti afmæli og sagði þarfir fjöl ­ skyldunnar ganga fyrir. Hún gerði þó bragarbót og heimsótti Kína ásamt móður sinni og dætr um í mars sl. Mánuði síð ­ ar fór forsetinn einn síns liðs í opinbera heimsókn til Asíu. Ýmsar sögur hafa farið á kreik, forsetafrúin er sögð draga at ­ hyglina frá forsetanum og slúð ­ ur pressan hefur ýjað að bres um í hjónabandinu. Ætlar ekki í forsetaframboð Fjölskyldan hefur forgang. Mann réttindi, hollusta og heilsa eru hennar hjartans mál. For ­ seta hjónin lýstu því t.d. yfir opinberlega að þau styddu rétt samkynhneigðra til hjóna ­ bands og í fyrra flutti Michelle út varpsávarp, for dæmdi rán á mörg hundruð skóla stúlkum í Nígeríu og hvatti íslömsku öfga samtökin Boko Haram til að sleppa þeim úr haldi. Hér hefur að eins fátt eitt verið talið af að komu hennar og afskiptum í þágu ýmissa baráttumála, sem hún hyggst halda ótrauð áfram. Hún þvertekur fyrir að stefna í pólitík og sækjast eftir forsetaembættinu þegar kjör ­ tíma bili eiginmannsins lýkur. Michelle Obama virðist njóta sín í sviðsljósinu og það fer henni óneitanlega vel, að sumra mati betur en eiginmanninum. „Michelle Obama kemur fram í hverj um sjón­ varps þætt inum af öðrum, barnatímum og spjallþátt­ um, talar fyrir átakinu og bregður oftar en ekki á leik, dansar og syngur ef svo ber undir.“ Obama og Hollywood Í kosningabaráttunni 2012 var sagt að Mitt Romney, frambjóðandi repúblikana, réði yfir milljörðum en Barack Obama Hollywood. Á vissan hátt öfugmæli því frá upphafi kosningabaráttunnar 2008 hefur Obama verið býsna glúrinn í að fá fræga fólkið til að afla framboðum sínum fjár. Og það hafa ábyggilega ekki verið smápeningar. Hann áttaði sig á að ekki væri nóg að það lýsti yfir stuðningi, bandarískir kjósendur kærðu sig enda kollótta um hvað fólk í skemmtanabrans an um kysi. Beinharðir peningar gætu hins vegar skipt sköpum. Meðal þeirra sem tóku virkan þátt í framboðum Obama með fjárfram lögum, fjáröflunarsamkomum og þvíumlíku eru George Clooney, Robert DeNiro, Sarah Jessica Parker, Eva Longoria, Will Farrell, Ben Affleck, Angelina Jolie og Brad Pitt, spjallþáttastjórn­ andinn Oprah Winfrey, Anna Wintour, ritstjóri Vogue, leikstjórinn Spike Lee, söngkonurnar Lady Gaga, Jessica Alba og Beyoncé Knowles og maður hennar Jay­Z. Sumu af þessu fræga fólki hefur hlotnast sá heiður að vera boðið í veislur í Hvíta húsinu og nokkrir telja sig til vina Michelle og Baracks Obama, til að mynda Beyoncé og Oprah Winfrey. George Clooney var á meðal þeirra sem tóku virkan þátt í framboðum Obama. Rétt eins og Jackie Kennedy, fyrirrenn ari hennar á sjöunda áratug liðinnar aldar, varð Michelle Obama tískutákn fyrsta og annars áratugar þess arar aldar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.