Són - 01.01.2004, Blaðsíða 27
KÁTLEGAR KENNINGAR 27
er heldur háðuleg kenning um guðsmanninn. Kenningin minnir á hina
spaugilegu kenningu Sighvats, grefs gætir, en skáldkonan sjálf minnir
mest á heiðnu húsfreyjuna á Gautlandi sem rak hirðskáldið á dyr. Þó
að Steinunn ætti ættir að rekja til landnámsmanna og væri ágætt skáld
er sjónarhorn hennar allt annað en karlanna sem áttu kost á að fara
utan og gerast hirðskáld konunga. Kenningin bjöllu gætir sýnir samt að
hún, eins og þeir, gerði ráð fyrir að áheyrendur þekktu tungutak drótt-
kvæða og þann hugmyndaheim sem þar bjó að baki. Kenningarnar
eru fyndnar vegna þess að skáldin leika sér að tungumálinu með
óvæntum tengingum milli hins háleita og hversdagslega. Þar stendur
enginn Sighvati Þórðarsyni á sporði því að hann þorði að skopast að
sjálfum sér og sýna konungsmenn í spéspegli kotunga.
HEIMILDIR
Bjarni Einarsson. 1987. „Um vísur í íslenskum fornsögum.“ Mælt mál og
forn fræði, bls. 182–190. Sigurgeir Steingrímsson ritstýrði. Stofnun
Árna Magnússonar, Reykjavík.
Clover, Carol J. 1978. „Skaldic Sensibility.“ Arkiv för nordisk filologi 93:63–
81.
Den norsk-islandske skjaldedigtning A I: Tekst efter handskrifterne. Finnur Jóns-
son gaf út. Gyldendalske Boghandel og Nordisk Forlag, København
og Kristiania, 1912.
Den norsk-islandske skjaldedigtning B I: Rettet tekst. Finnur Jónsson gaf út.
Gyldendalske Boghandel og Nordisk Forlag, København og Krist-
iania, 1912.
Den tredje og fjærde grammatiske afhandling i Snorres Edda tilligemed de gramma-
tiske afhandlinger prolog og to andre tillæg. Björn Magnússon Ólsen gaf út.
(Samfundet til udgivelse af gammel nordisk literatur XII.) Fr. G.
Knudtzons Bogtrykkeri, København, 1884.
Edda Snorra Sturlusonar — Edda Snorronis Sturlæi II. Jón Sigurðsson og fleiri
gáfu út. Legatus Arnamagnæanus, Hafniæ [¼:Kaupmannahöfn], 1852.
Eddukvæði. Gísli Sigurðsson gaf út. Mál og menning, Reykjavík, 1998.
Fidjestøl, Bjarne. 1993. „Pagan beliefs and christian impact: The
contribution of scaldic studies.“ Viking Revaluations. Viking Society
Centenary Symposium 14–15 May 1992, bls. 100–120. Anthony Faulkes
og Richard Perkins ritstýrðu. Viking Society for Northern Research,
University College London, London.
Fidjestøl, Bjarne. 1997. Odd Einar Haugen og Else Mundal ritstýrðu:
Selected Papers, bls. 228–254, 255–276 og 303–332. Odense
University Press, Odense.