Són - 01.01.2004, Síða 138
EYSTEINN ÞORVALDSSON138
Og það horfði frá múrgráum veggnum,
út í mjólkurhvítt ljósið
eitt andartak.
Það var andlit mín sjálfs,
en þið sáuð það aldrei,
því ég málaði yfir það.
Lesandinn verður að túlka myndina í ljóðinu. Hér eru ekki eins mikl-
ar útskýringar og í kvæði Davíðs. Þó segir að hér sé hinn þreytti,
sjúki, einmana maður til umfjöllunar. Það er samskonar maður og
siglir í kvæði Davíðs; hann er vinalaus og flöktandi. En myndin af
manninum sem málar andlit í afskekktu húsi krefst túlkunar. Ef við
ættum að skynja hana sem beina mynd verður ljóðið rýrt að efni.
Myndin af þessu athæfi hlýtur að fela í sér táknræna merkingu sem
við verðum að lesa úr henni. Það er ekki útilokað að slíkar mynd-
hverfingar megi túlka á fleiri en einn veg. Sú merking sem flestir
munu lesa úr myndinni með hliðsjón af ástandi mælandans (hins
þreytta og einmana manns) er þessi: Einmaninn er haldinn öryggis-
leysi og kvíða; hann getur ekki komið fram af einlægni, getur ekki
sýnt sitt rétta andlit. Þegar hann reynir það hrekkur hann óðara við
og dylur sig á ný. Einsemd helst oft í hendur við vanhæfni til að ná
tengslum við annað fólk þrátt fyrir þörf og löngun. Þetta kynni líka
að vera skýringin á einmanaleika ljóðmælandans í kvæði Davíðs því
að hann eignast ekki vini og er alstaðar einn.
Í ljóðinu „Sjálfsmynd“ eru ljóðstafir þótt ekki séu þeir staðsettir
samkvæmt ströngustu reglum. Þar af leiðandi er sérstök hrynjandi í
ljóðinu. Undantekning frá þessu eru tvær síðustu línurnar. Hafi les-
andanum verið ruggað í værð með hljóðfallinu í fyrstu átta línunum
þá ætti hann að rumska þegar takturinn ruglast í lokin. Sú ókyrrð er
í samræmi við hugarástand ljóðmælandsans sem er í uppnámi eftir
misheppnaða tilraun til að brjótast úr einsemdinni.
Af sama toga er annað ljóð eftir Stein, „Ljóð án lags“, en það er
nokkru umfangsmeira. Yrkisefnið er hið sama, um söng „hins þjáða,
hins sjúka, hins vitfirrta lífs“. Inntak ljóðsins er fólgið í óvenjulegum
myndum; ljóðstafir og hrynjandi eru með svipuðum hætti og í
„Sjálfsmynd“, og hrynjandinni er raskað í síðustu línunni.