Són - 01.01.2004, Blaðsíða 85
ÁFANGAR II 85
„Upp, upp með sólu“,
Árfuglar gólu,
Óttan er fögur og döggfall á grund;
Orfin með ljáum,
Óspart að sláum,
Út berum glaðir á morgunsins stund.
2.4.5 Guðmundur Frímann og veggjað rím
Árið1937 kom út ljóðabókin Störin syngur eftir Guðmund Frímann.
Þar er að finna ljóðið „Farin“ og er hér fyrsta erindið:24
Nú lýkur þeim, draumljúfu dögunum.
Í dag leysast festar
skipsins, sem burtu þig ber.
Nú hverfur af ljóðunum lögunum
ljóminn, og flestar
sorgirnar setjast að mér.
Guðmundur Frímann verður í þessu ljóði fyrstur (og síðastur,
a.m.k. enn) íslenskra skálda til að nota veggjað rím (þrírím) í rím-
fléttuna.
2.4.6 Jörundur Gestsson
Hún er sérstök, ljóðabók Jörundar Gestssonar, Fjaðrafok, frá árinu
1955. Höfundur var listaskrifari og bókin fór aldrei í prentun, heldur
beint í lithoprent og þannig njóta ljóðin sín prýðilega. Í bókinni er að
finna fjögurra erinda ljóð, „Andvaka“, og er þetta fyrsta erindið:25
Í nætur húmsins helgidóm
eg hugsa um þig, ástin mín,
og svefninn frá mér flýr.
Og ljúfra minna les eg blóm,
þar ljómar myndin þín
sog svefninn frá mér flýr.
24 Guðmundur Frímann (1937:67).
25 Jörundur Gestsson (1955:60).