Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Page 11

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Page 11
Hins vegar er með ákvæðum laganna um skipan manna í kirkjuráð þar sem fjórir skulu kjömir af kirkjuþingi, myndað það stjómvald sem kirkjuþing þarf ásamt heimildinni til setningar starfsreglna til að fara með það æðsta vald í málefnum kirkjunnar innan lögmæltra marka sem því er ætlað. Á síðasta þingi var forseti skipaður formaður pretssetranefndar til að vinna sérstaklega að því að ljúka samkomulagi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar frá 10. jan. 1997 varðandi prestssetrin. Viðræður við dóms- og kirkjumála- og fjármálaráðuneyti standa yfir eins og fram kemur í skýrslu sem hér liggur ffammi. Kom strax fram vilji beggja aðila að ljúka málinu með góðu samkomulagi og er unnið að málinu á þeim grundvelli. Á liðnu vori mætti ég að beiðni biskups við setningu kirkjufundar sænsku kirkjunnar og tók þátt í guðþjónustu í Uppsaladómkirkju við upphaf þess fundar. Eins og áður sagði hefur undirbúningi þessa kirkjuþings verið hagað með tilliti til mikilvægrar reynslu sem hefur fengist á fyrri þingum, bæði þess sem vel hefur tekist og einnig þess sem hefur þurft að lagfæra. Að þessu sinni tókst að senda fyrr en áður tillögur og önnur gögn til fulltrúa þrátt fyrir hinar óvenju miklu annir og álag á stofnunum og starfsliði kirkjunnar á afmælisári. Við þingstörfin nú verður reynt að fylgja skipulaginu sem mótað var á síðasta þingi. Enn eru á málaskránni allmargar tillögur að nýjum starfsreglum. Afgreiðslu sumra þeirra var frestað á síðasta þingi svo að tóm gæfíst til að skoða þær betur og leita umsagna. Er ánægjulegt að sjá að borist hafa margar umhugsunarverðar ábendingar sem nauðsynlegt er að hafa í huga við áframhaldandi vinnu og afgreiðslu þeirra. Hlýtur það að stuðla að vandaðri vinnubrögðum. Gildi þess er þó jafnvel enn þá meira ef það fær sóknamefndir og söfnuði til að vera virkir þátttakendur við stefnumótun. Fjölmiðlafulltrúi hefur verið ráðinn til að veita aðstoð við að kynna störf og samþykktir þessa kirkjuþings. Hversu gott starf sem hún vinnur mun árangur þess þó fyrst og fremst velta á því efni sem við þingfulltrúar leggjum henni í hendur með störfum okkar sem við göngum nú til með bjartsýni og gleði. Vonandi tekst okkur með guðs hjálp að leysa þau verkefni sem okkur verða falin á þessu kirkjuþingi til blessunar fyrir kristni og kirkju á nýrri öld. Ávarp dóms- og kirkjumálaráðherra, Sólveigar Pétursdóttur Ágætu biskupar, forseti, kirkjuþingsfulltrúar. Það er mér mikil ánægja að fá að ávarpa kirkjuþing hér við setningu þess, en ég vil fá að byrja á því að þakka biskupi íslands fýrir ávarp hans áðan í byrjun kirkjuþings. Staða þjóðkirkjunnar í okkar samfélagi, tengsl kirkjunnar við fólkið og hvemig hún fær best gegnt sínu hlutverki er okkur ávallt þarft að hugleiða. Eg vil líka þakka forseta kirkjuþings fýrir orð hans hér áðan, en þau undirstrika einmitt að mínu mati mikilvægt hlutverk kirkjuþings. Á þessu merkisári í sögu kristni á Islandi hef ég átt þess kost að taka þátt í ýmsum athöfnum þjóðkirkjunnar sem verða mér ætíð minnisstæðar. Þar ber að sjálfsögðu hæst hátíðina miklu á Þingvöllum í byrjun júlí. Ég tel að þeirrar hátíðar verði lengi minnst og 9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.