Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Side 16
náist. Það er eitt af þeim mörgu verkefhum sem kirkjuþing fól kirkjuráði að heíja
undirbúning að og vinna að á því ári sem fram undan er fram að næsta kirkjuþingi.
Fyrsta verkefni kirkjuráðs hlýtur þó að vera að skipuleggja störf sín í samræmi við hinar
nýju starfsreglur sem við vorum að samþykkja og við vonum að verði til að treysta
starfsgrundvöll þess á komandi árum.
í sambandi við afgreiðslu á þeim málum og fleiri var bent á að þar væri verið að fjalla um
skiptingu þess æðsta valds í málefnum kirkjunnar sem lagabókstafurinn segist fela okkur,
að skipta þeim milli stofnana þjóðkirkjunnar, og vissulega má segja að það sé rétt. En ég
verð þó að viðurkenna að ég kom á kirkjuþing og til starfa hér fremur með orðið styrk en
vald í huga, þ.e. hvemig best væri að skipta verkum, verkefnum, milli stofnana kirkjunnar
og með hvaða hætti sú verkaskipting gæti orðið þannig að með nánu samstarfi yrði
styrkur þeirra í heild sem mestur til að sinna því sem ég hef talið okkar eina hlutverk og
markmið á kirkjuþingi, þ.e. að gera allt sem í okkar valdi stendur til að efla styrk og áhrif
kenninga kristixmar kirkju og kristinnar trúar. Hvorki kirkjuþing né aðrar stofhanir
kirkjunnar geta verið eða eiga að vera byggðar upp til þess að drottna, heldur fýrst og
ffemst til að þjóna. Og styrkur og áhrif kirkjuþings eins og annarra hlýtur fyrst og fremst
að byggjast á verkum okkar. Við hljótum að vænta þess að affaksturinn af störfum okkar
á þessu þingi þjóni sem best öllum þeim sem verkanna eiga að njóta.
Öll höfum við sjálfsagt viljað gera betur en sú hugsun á þá að vera hvatning til að vera
bjartsýn og vinna betur að því að svo geti orðið á næsta ári.
Ég þakka biskupi og öðmm fulltrúum á kirkjuþingi fyrir samstarf og umburðarlyndi við
mig þrátt fýrir þá vinnuhörku sem ég hef talið mér skylt að viðhafa vegna þeirra verkefna
sem okkur hafa verið falin. Hún hefur þó kannski bitnað mest á starfsfólki bæði við
undirbúning og síðan við þinghaldið. Nú verðum við að treysta á það ágæta fólk við að
ganga ffá því sem hér hefur verið samþykkt og koma því í þann búning sem þarf. Við
munum leggja áherslu á að reyna að gera það eins fljótt og kostur er og með því skipulagi
sem við höfum verið að reyna að koma á vonast ég til að það eigi að ganga betur en á
fýrri árum.
Eins og ég sagði áður þá er það að sjálfsögðu fýrst og ffemst kirkjuráð, ffamkvæmdarvald
okkar, sem tekur við því að vinna úr þessu og við vonumst öll til að það verði sem
árangursríkast.
Ég vil þakka varaforsetum og skrifurum þingsins fyrir aðstoð við mig og ég vonast til að
við förum öll héðan af þessu kirkjuþingi með, eins og ég sagði, bjartsýni í huga og að í
framtíðinni takist okkur að halda áfram að vinna kirkjunni vel.
Lokaorð Karls Sigurbjörnssonar, biskups íslands
Forseti, kirkjuþing. Ég þakka forseta hans góðu orð og heilnæmt veganesti héðan og
trausta og góða stjóm á kirkjuþingi 2000. Starfsliði öllu þakka ég lipra þjónustu og
trúmennsku og alla góða nærveru og þingfulltrúum samveru og samstarf.
14