Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 23
Tillögur biskupafundar voru sendar til réttra kirkjustjómaraðila skv. ályktun
kirkjuþings og aflað umsagna og tillagna. Mál þetta verður hér til umfjöllunar á
þinginu.
Tillaga biskupafundar um stefnumörkun varðandi ffamtíðarskipan sókna, prestakalla
og prófastsdæma, 14. mál 1999.
Tillögur biskupafundar vom sendar prestum, sóknamefndum, héraðsnefndum svo og
þeim kirkjulegu stofnunum og aðilum er málið varði til umsagnar og umijöllunar.
Biskupafundur samþykkti að.leggja ffam efnislega óbreytta stefnumörkun varðandi
þetta mál. Þær athugasemdir sem bámst gáfu ekki tilefni til endurskoðunar en
biskupafundur hvetur til áframhaldandi umræðu um svo mikilvæga stefnumörkun í
málefnum kirkjunnar.
Tillaga að starfsreglum um störf biskupa, biskupafund og kirkjustefnu, 21. mál 1999.
Biskupafundur hefur fjallað um tillögu þessa. Á þessu þingi leggur kirkjuráð fram
tvær tillögur að starfsreglum er snerta þetta málefni en þær em annars vegar um störf
vígslubiskupa og hins vegar um biskupafund.
Tillaga til þingsályktunar um mótun tillagna um skipan kirkjustarfs á
höfuðborgarsvæðinu, 33. mál 1999, og tillaga til þingsályktunar um könnun á
þjónustuþörf í prestaköllum, 34. mál 1999.
Þessi mál afgreiddi kirkjuþing 1999 saman og samþykkti að fela biskupafundi að
vinna að framgangi þeirra.
Hvað varðar gerð tillagna um skipan og þróun kirkjulegs starfs á höfuðborgarsvæðinu
var skipaður þriggja manna starfshópur í málið, einn fulltrúi frá hverju
prófastsdæmanna á höfuðborgarsvæðinu, auk biskupsritara og lögfræðings kirkjuráðs
sem vinna með nefndinni.
Biskupafundur samþykkti að vísa könnuninni um þjónustuþörf í prestaköllum til
brauðamatsnefndar. Nefndarmenn hafa unnið ýmsa hugmynda- og undirbúningsvinnu.
Störf að skipulagsmálum kirkjunnar eru töluvert mikil um þessar mundir. Þannig er
brauðamat í vinnslu, en sú vinna hefur tafist vegna þess að ekki hefur verið smíðaður
gagnagrunnur sem fyrirhugað var að nýta í því sambandi. Nú liggur fyrir að skriður
komist á það mál. Komið hefur í ljós að öll framangreind verkefni eru í heild mjög
yfirgripsmikil og útheimta mikla vinnu, svo sem gagnaöflun. Mun þessi vinna
væntanlega hafa töluverðan kostnað í för með sér.
Nýjar starfsreglur á kirkjuþingi 2000
Mál sem kirkjuráð leggur fram á þessu kirkjuþingi:
Fjármál þjóðkirkjunnar.
Vakin er athygli á að tekið er upp nýtt heildarhugtak yfir ársreikninga og áætlanir
sjóða og stofnana.
Tillaga að starfsreglum um kirkjuráð.
Starfsreglumar skilgreina stöðu kirkjuráðs með skýmm hætti þar sem þungamiðjan er
að ráðið er framkvæmdaaðili kirkjuþings. Reglumar skilgreina fjárhagslega ábyrgð og
stöðu ráðsins og sjálfstæði þess er styrkt. Leitast er við að túlka og útfæra ákvæði
19