Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Page 42
um þær í sérstökum starfsreglubálki eins og fyrr segir. Jafnffamt eru taldar upp þær
nefndir sem kirkjuþing kýs eða tilnefnir til en þær eru:
1. Kenningamefnd, en skv. tillögum að starfsreglum um kenningamefnd er gert ráð
fyrir að kirkjuþing tilnefni einn nefndarmanna.
2. Þóknananefnd kirkjunnar. Gert er ráð fyrir óbreyttu fyrirkomulagi ffá því sem
samþykkt var á kirkjuþingi 1999 um þóknananefnd kirkjunnar.
3. Úrskurðamefnd. Gert er ráð fyrir óbreyttri skipan mála enda um lögbundið atriði að
ræða.
3. gr. Lagt er til að 3. - 8. mgr. 35. gr. starfsfreglnanna eins og þær eru í núverandi
mynd falli brott, enda fjalla þær um fastanefndir, sem eftirleiðis er mælt fyrir um í
sérstökum starfsreglubálki, ef samþykkt verður.
4. gr. Gert er ráð fyrir að gildistaka reglnanna verði strax, þ.e. við birtingu þeirra í
stjómartíðindum, enda ástæðulaust að bíða með gildistökuna. Ekki er þörf á
sérstökum bráðabirgðaákvæðum um skipun og tilnefningar í nefndir þar eð þetta
fjallar um störf nýkjörins kirkjuþings og reynir því ekki á þetta fyrr en árið 2002. Hins
vegar em sérákvæði um tilnefningar og kosningar í hverjum einstökum tillögum að
starfsreglubálkum, sbr. t.d. tillögur að starfsreglum um fastanefndir og vísast til þeirra
bálka að öðm leyti.
Að tillögu löggjafamefndar afgreiddi kirkjuþing báðar tillögumar með effirfarandi
ÁLYKTUN
Kirkjuþing vísar 4. máli og 18. máli ásamt breytingatillögum á þskj. nr. 22 (H.G.) til
prestastefnu til álits og umsagnar. Jafnframt felur þingið kirkjuráði að undirbúa nýjar
tillögur um þetta efni með hliðsjón af umræðum um 4. mál, breytingatillögum um
fastanefndir á þskj. 22 og álits og umsagnar prestastefnu auk umfjöllunar
löggjafarnefndar og kirkjuþingsins um 35. gr. í 18. máli kirkjuþings 1999.
38