Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Page 69
Starfsreglur um söngmál og tónlistarfræðslu
á vegum þjóðkirkjunnar
15. mál, flutt af kirkjuráði
1. gr. Á vegum þjóðkirkjunnar skal staðið að söngmálastjóm og tónlistarfræðslu.
Verkefni þetta er á sviði helgihalds kirkjunnar.
2. gr. Með söngmálastjóm og tónlistarffæðslu kirkjunnar skal
a) halda uppi kennslu í kirkjutónlist og líturgískum ffæðum
b) mennta organista til starfa
c) veita þeim sem að kirkjulegu starfi koma, organistum, kirkjukórum og öðm
tónlistarfólki, stuðning, aðstoð og ráðgjöf á sviði söng- og tónlistarmála.
3. gr. Til að sinna verkefnum samkvæmt 1. og 2. gr. skal starfrækja sérstaka stofnun á
vegum þjóðkirkjunnar er nefnist Tónskóli þjóðkirkjunnar, sem heyrir undir kirkjuráð.
4. gr. Kirkjuráð getur samið við kirkjulega aðila, ríki, sveitarfélög eða aðra um
þjónustu er skólanum er ætlað að veita skv. 2. gr.
5. gr. Með yfirstjóm skólans fer þriggja manna stjóm, skipuð af kirkjuráði til fjögurra
ára, ffá og með 1. júlí, árið eftir kjör til kirkjuráðs. Kirkjuráð skipar þrjá varamenn frá
sama tíma. Kirkjuráð óskar eftir tilnefningum frá Guðfræðideild Háskóla Islands og
Félagi íslenskra organista. Kirkjuráð velur formann og varaformann.
Stjómar ber ábyrgð á að skólinn sinni skyldum sínum og að skólinn haldi sig innan
fjárheimilda hverju sinni.
6. gr. Stjómin gerir árlega starfs - og rekstraráætlun og leggur fyrir kirkjuráð til
samþykktar fyrir lok septembermánaðar. Starfs - og rekstrarár skólans er
almanaksárið. Stjóm og söngmálastjóri skulu á hverju reikningsári semja ársreikning.
Jafnffamt skal samin skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. Stjóm og söngmálastjóri
skulu undirrita ársreikninginn. Endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fyrir kirkjuráð.
7. gr. Stjóm, í samráði við kirkjuráð, ræður söngmálastjóra, sem jafnframt er
skólastjóri og setur honum erindisbréf. Söngmálastjóri annast daglega yfirstjóm
skólans og ræður annað starfsfólk hans í samráði við stjóm. Heimilt er að semja við
annan aðila um rekstrarþjónustu við skólann svo sem um ijárhald og bókhald, rekstur
húsnæðis, skrifstofu og upplýsingakerfis, annan almennan skrifstofurekstur og aðra
sambærilega þætti.
8. gr. Færa skal til bókar meginatriði þess sem ffam fer á fundum stjómar og
ákvarðanir hennar. Fundargerðir skulu sendar kirkjuráði reglulega,
9. gr. Tónskólanum er heimilt að afla sértekna samkvæmt gjaldskrá er staðfest skal af
kirkjuráði.
10. gr. Starfsreglur þessar sem settar em með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjóm
og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi 1. janúar árið 2001.
65