Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Page 78
Tillaga
að starfsreglum um breyting og viðbót
við starfsreglur um kirkjuþing nr. 729/1998
22. mál, flutt af Halldóri Gunnarssyni
Kirkjuþing samþykkir eftirfarandi viðbót og breytingar við starfsreglur
um kirkjuþing nr. 729/1998:
1. gr. 16. gr. breytist og sé eftirfarandi: Forseti kirkjuþings í samráði við Biskup
íslands boðar kirkjuþing saman til fundar með minnst mánaðar fyrirvara tvisvar á ári,
vorþings, sem sé haldið fyrir 10. júní og haustþings sem sé haldið fyrir 31. október. A
vorþingi eru lagðar ffam starfsskýrslur, reikningar og fjárhagsáætlun næsta árs til
umljöllunar og afgreiðslu ásamt málum, sem koma ffam til fyrri umljöllunar á
kirkjuþingi og mál sem koma ffam til síðari umijöllunar og afgreiðslu ffá haustþingi.
Á haustþingi eru reikningar fyrri hluta árs lagðir fram til umfjöllunar, svo og ef fram
kemur breytingartillaga á ijárhagsáætlun frá kirkjuráði og mál ífá vorþingi eru tekin
til síðari umfjöllunar og afgreiðslu. Þar geta einnig mál komið fram til fyrri
umfjöllunar. Starfstími kirkjuþings er að hámarki 6 dagar í senn. Heimilt er forseta í
samráði við formenn fastra þingnefnda að boða til aukafundar kirkjuþings með minnst
hálfsmánaðar fyrirvara, við sérstakar aðstæður með tilgreindri dagskrá, sem starfar að
hámarki í 3 daga. Forseta er skylt að boða til samsvarandi aukafundar kirkjuþings,
óski helmingur kirkjuþingsfulltrúa effir því með skriflegri undirskrift og ósk um
ákveðna umfjöllun.
2. gr. Breyting og viðbót við 18. gr. Upphaf 18. gr. breytist eftirfarandi: Fastar
þingnefndir kirkjuþings eru jafnffamt fastanefndir þjóðkirkjunnar, sbr. 14. gr. laga
nr.78/1997 og eru:.....Óbreytt síðan töluliðir nr. 1 og 2.
Eftirfarandi viðbót komi við tölulið nr.3:
Geri íjárhagsnefnd tillögu að breyttri fjárhagsáætlun frá Kirkjuráði, skal
slík tillaga fá umijöllun á kirkjuþingi á tveimur fundum kirkjuþings með
a.m.k. einnar nætur millibili og skal á seinni fundi liggja fyrir álit
kirkjuráðs um tillöguna.
Eftirfarandi komi á eftir 4.tl í stað málsgreinarinnar:
Fastar þingnefndir kirkjuþings eru kjömar í upphafi nýkjörins kirkjuþings,
sem gildir út kjörtímabilið. Kirkjuráð ákveður árlega í hvaða nefndum.
Kirkjuráðsmenn sitja, þannig að minnst einn kirkjuráðsmaður á sæti í hverri
nefnd. Formenn löggjafarnefndar, fjárhagsnefndar og allsherjamefndar eru
kosnir í upphafi hvers vorþings til eins árs í hverri nefnd á þingfundi.
Formaður þingnefndar kallar þingnefnd saman í samráði við forseta þingsins í
samræmi við fjárhagsáætlun til að undirbúa störf kirkjuþings og fjalla um
störf nefnda og stofnana þjóðkirkjunnar, sem ber að gera kirkjuþingi grein
fyrir störfum sínum. Hver þingnefnd gefur umsögn til Kirkjuþings um störf
viðkomandi nefndar og/eða stofnunar.
Allar starfsnefndir þjóðkirkjunnar eru þriggja manna nefndir, nema annað sé
tekið fram í starfsreglum, þar sem kirkjuþing kýs formann nefndarinnar og
varamann hans, kirkjuráð kýs einn og varamann hans og biskup Islands
tilnefnir einn og varamann hans.
3. gr. 23. gr. breytist þannig að orðin "kirkjuráðsmenn, sem eigi em þingfulltrúar" falla
út.
74