Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Page 83
Starfsreglur um breyting á starfsreglum um presta nr. 735/1998
26. mál, flutt af Döllu Þórðardóttur
1. gr. Við 19. gr. bætist nýr ml. svohljóðandi: Biskup ákveður hvenær hann gengur inn
í ferlið.
2. gr. Orðin “svo sem á sviði fermingarfræðslu, öldrunarstarfs, við bama- og
æskulýðsstarf o.fl.” í 36. gr. falla brott.
3. gr. Starfsreglur þessar, sem settar eru skv. heimild í 35., 39., 43. og 59. gr. laga um
stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi 1. janúar 2001.
Að tillögu löggjafamefndar samþykkir kirkjuþing einnig eftirfarandi
ÁLYKTUN
Kirkjuþing ályktar að við sameiningu prestakalla ber þeim sóknarpresti, sem tekur við
viðbótaxþjónustu þóknun, eða viðbót á laun, eftir umfangi viðbótarþjónustunnar skv.
ákvörðun kirkjuráðs, sem gerir tillögur til kjaranefndar þar um. Ef prestur er skipaður
til fimm ára falla greiðslur þessar niður við lok þess fimm ára skipunartímabils sem
yfir stendur þegar breytingin er gerð á prestakalli hans.
79