Gerðir kirkjuþings - 2005, Page 76
Samkvæmt 21. gr. þjóðkirkjulaga er skipan kjördæma til Kirkjuþings miðuð við skipan
prófastsdæma eins og þau voru 1. janúar 1998, þegar lögin tóku gildi. Heiti þáverandi
prófastsdæma eru talin upp í ákvæðinu. Ef breyta á kosningafyrirkomulagi eða skipan
kjördæma kostar það lagabreytingu í dag. Slíkt fyrirkomulag er ekki í samræmi við
þann megintilgang þjóðkirkjulaga að auka sjálfstæði kirkjunnar í eigin málum. Enn
fremur stríðir fyrirkomulag þetta á vissan hátt gegn ákvæði 50. gr. þar sem mælt er fyrir
um að Kirkjuþing setji m.a. starfsreglur um skipan prófastsdæma. Akvæði 21. gr. girðir
í raun fyrir að Kirkjuþing geti beitt þessu valdi sem því er mælt í 50. gr. I samræmi við
þá hugmyndafræði þjóðkirkjulaga að kirkjan hafi sem mest sjálfræði um eigin mál þ.á
m. skipulagsmál sín, þykir eðlilegt að Kirkjuþing hafi vald til að skipa kjördæmum með
sama hætti og sóknum, prestaköllum og prófastsdæmum.
Þá þykir með sömu rökum eðlilegt að Kirkjuþing ákveði fjölda fiilltrúa á Kirkjuþingi í
stað þess að slíkt sé lögbundið. Eigi að síður þykir rétt að ganga ekki lengra en svo að
áskilja áffam í lögum að leikmenn verði í meirihluta á Kirkjuþingi eins og er í dag.
Hlutfallið ákveður þó Kirkjuþing eftirleiðis verði ffumvarp þetta að lögum. Rökrétt er
einnig að breyta ákvæðum um umdæmi vígslubiskupa á sama hátt þ.e. að afhema
upptalningu prófastsdæma þar.
Um einstök ákvæði.
Um 1. gr. Lagt er til að ákvæðið verði einfaldað frá því sem nú er þó efnisbreyting sé
lítil. Er það nauðsynlegt vegna samhengis við önnur ákvæði ffumvarps þessa.
Samkvæmt því verði afnumin upptalning prófastsdæma. Kirkjuþing ákveði áfram
skipan vígslubiskupsumdæma eins og verið hefur.
Um 2. gr. Lagt er til að Kirkjuþing ákveði skipan kjördæma Kirkjuþings og fjölda
kirkjuþingsmanna. Næst þar með samræmi við 50. gr. laganna auk þess sem Kirkjuþing
ákveður eftirleiðis fjölda fulltrúa á þinginu. Rétt þykir að áskilja að leikmenn á
Kirkjuþingi skuli vera fleiri en vígðir menn eins og verið hefur. Lagt er til að orðið
vígðir verði notað í stað "prestar" áður.
Um 3. gr. Lagt er til að ffumvarpið, verði það samþykkt, öðlist gildi 1. janúar 2006. Er
litið til þess að kosningar til Kirkjuþings fara fram á árinu 2006 og er æskilegt að
ffumvarp þetta hafi öðlast gildi þannig að unnt sé að koma á nauðsynlegum breytingum
á starfsreglum kirkjunnar. Er þá einkum litið til þess að samræma þarf kjördæmaskipan
við kirkjuþingskosningar þeirri breyttu skipan prófastsdæma sem ákveðin var á síðasta
Kirkjuþingi með sameiningu Barðastrandarprófastsdæmis og ísafjarðarprófastsdæmis í
eitt Vestfjarðaprófastsdæmi.
74