Gerðir kirkjuþings - 2005, Page 79
5. efla sérhæfingu /sérþekkingu -með meiri mannafla er hægt að nýta betur
sérþekkingu prestanna sem hlut eiga að máli svo og annarra starímanna og
möguleiki skapast til þess að bjóða upp á sérhæfða þjónustu, t.d. í
sálgæslumálum;
6. nýta þekkingu og reynslu á markvissan hátt - það eflir þjónustu kirkjunnar að
hafa á að skipa starfsfólki með fjölbreytta reynslu og menntun og afar dýrmætt
að geta sýnt fram á að margvísleg þjónusta er til staðar innan kirkjunnar;
7. draga úr einangrun í starfi - það er staðreynd að prestar í litlum prestaköllum
hafa tilhneigingu til þess að einangrast í starfi. Samstarf af því tagi sem hér er
lagt til dregur úr slíkri einangrun og tryggir faglegt samfélag presta og annarra
starfsmanna safnaðanna. Það tryggir líka bætt skipulag á vinnutíma presta og
reglubundnar afleysingar;
8. glœða kirkjulíf og kristni - að vera biðjandi, boðandi og þjónandi kirkja er
höfuðmarkmið íslensku þjóðkirkjunnar. Aukin samvinna presta og starfsmanna
hinna dreifðu safhaða styrkir stoðir kirkjunnar og gerir hana sýnilegri í sífellt
fjölreyttara samfélagi og opnar fleiri dyr og hærri hlið til samfýlgdar við Krist
Jesú, Drottin vom.
Nefnd þeirri um kirkjuþingskosningar og skipan prófastsdæma sem Kirkjuþing 2004
kaus ákvað að taka upp hugmyndir sem ffam höfðu komið áður um formlegt samstarf
sókna og prestakalla. Nefndin setur hugmyndimar ffam í formi þingsályktunartillögu
þeirrar sem hér liggur fyrir. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson sem mótaði tillögu þessa
ásamt öðmm nefhdarmönnum hafði kynnt hugmyndina á aukahéraðsfúndi
Reykjavíkurprófastdæmis vestra haustið 2004 og gekkst sr. Jón Dalbú Hróbjartsson,
prófastur, fýrir fundi með fjórum sóknum vestast í prófastsdæminu 15. febrúar 2005 þar
sem um hana var fjallað. Á prestastefou á Egilsstöðum 2003 var kynnt samstarf presta á
Héraði og hvemig það efldi bæði kirkjustarfið á svæðinu og prestana í starfi. Þessi
tillaga byggir að einhveiju leyti á samstarfi sem hefur þegar myndast og hugmyndum
sem til umræðu hafa verið.
Þegar nefiidin vann að hugmyndum að breyttum mörkum prófastsdæma var
grunnhugsunin sú að breytingin myndi leiða til meiri skilvirkni í starfi kirkjunnar og
aukinni þjónustu í söfnuðum landsins.
I ljós kom að sú hugmynd sem nefndin kynnti fékk ekki brautargengi á héraðsfundum
þar sem hún var kynnt á vormánuðum.
Tillagan sem hér er lögð ffam er sjálfstæð hugmynd um mótun samstarfs milli sókna og
prestakalla og ekki háð öðrum formlegum tillögum sem ffam hafa komið um skipan
kirkjulegs starfs. Flutningsmenn telja að hér sé á ferðinni ákjósanleg aðferð til mótunar
samstarfs án þess að þurfa að leiða til sameiningar sókna eða prestakalla en gæti engu
að síður greitt fýrir slíku síðar ef svo byði við að horfa.
I Stefnu og starfsáherslum Þjóðkirkjunnar 2004-2010 segir í 13.1 Markmið, m.a.:
"Skipulag Þjóðkirkjunnar tryggi framkvæmd stefhunnar og virkni í starfí kirkjunnar.
Það stuðli að einingu og stöðugleika, en sé jafhffamt réttlátt, trúverðugt og
sveigjanlegt. Stjómskipulag kirkjunnar sýni með skýrum hætti ábyrgð og boðleiðir.
77