Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2010, Side 41
HRoLLVEKJUR LIGGJA TIL ALLRA ÁTTA
41
rænu hvissi. Myndavélin er á stöðugri hreyfingu, enda ekki á fæti heldur í
höndum myndatökumannsins; stíllinn rekur rætur sínar meðal annars til
dönsku dogma-hreyfingarinnar, en sló í gegn sem sérlegur fulltrúi hroll-
vekjunnar með Nornaverkefninu í Blair (1999, Daniel Myrick og Eduardo
Sánchez, The Blair Witch Project). Þessi nýting hrollvekjunnar á dogma-
stílnum er reyndar afar gott dæmi um skörun hrollvekjunnar við listrænar
myndir, en dogma er upphaflega komið til af öfgafullum listrænum kröf-
um (reyndar svo ýktum að þær virkuðu paródískar) sem ungir danskir
kvikmyndagerðarmenn settu sér, með leikstjórann Lars von Trier í farar-
broddi, en myndir hans hafa einmitt einkennst af leik með lágmenningar-
form. Þessi nýting handheldrar myndavélar er útfærð enn frekar í Blair, en
þar er myndatökumaðurinn ein persónanna og hlutverk hinnar hreyfan-
legu myndavélar fest í sessi sem virkur hluti frásagnarinnar. Myndatöku-
maðurinn leikur hlutverk í Upptöku og líkt og í Blair er hugmyndin sú að
skapa sannfærandi andrúmsloft heimilda- eða fréttamyndar, sem er stöð-
ugt rofin af deilum um upptökuna. Þetta felur einnig í sér sjónræna árás;
áhorfandi, sem í klassískri hrollvekjumyndatöku er alltaf á valdi alltof
þröngra sjónarhorna, er hér enn frekar ofurseldur myndrænni útfærslu
sem bókstaflega felur í sér óróa og skelfingu að viðbættri aukinni nánd við
persónur og sögusvið.14 Myndatakan í Til leigu markast einnig af þessari
tilfinningu fyrir óróleika þó að hún sé hefðbundnari, en þar koma högg í
tökuna, smá hristingur annað slagið, svona eins og myndavélin missi úr
slag — einmitt þegar skelfing persónanna rís sem hæst.
Þessi myndatökuaðferð þjónar jafnframt því hlutverki að staðfæra
zombíuformúluna. Hraðinn og óróinn sem einkennir Upptökuna virkar á
stundum sem ýkt útgáfa af ímynd Suður-Evrópu sem suðupotts æstra til-
finninga.15 Þetta er enn undirstrikað með þeim gífurlega æsingi sem ein-
kennir alla myndina, fólk talar hratt og hátt og æpir hvort upp í annað,
hleypur um í hamsleysi, skrækir og hrópar. Vissulega gefur ástandið tilefni
til nokkurs tilfinningaróts, en fyrr má nú aldeilis vera. Þannig er spilað
14 Fyrir sjóveika er þessi stíll einstaklega hrollvekjandi, því að hin órólega myndavél
hefur afar óþægileg áhrif.
15 Ég vísa viljandi til þessarar ímyndar á almennan hátt, en ekki endilega sem ímynd-
ar norðurs (og vesturs) af suðri. Það er ljóst að ímynd er aldrei einungis utanað-
komandi fyrirbæri og að ímyndir af þessu tagi eru skapaðar af gagnvirku samspili
milli þess hvernig aðrar þjóðir sjá suðrænar þjóðir og hvernig þær sjá sig sjálfar.
Yfirlesari benti réttilega á að þessi sýn á suðrænan blóðhita hefur fylgt hrollvekj-
unni frá upphafi hennar í gotneskum bókmenntum, eins og skáldsaga Ann Rad-
cliffe, The Italian (1797), er gott dæmi um.