Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2013, Side 35
34
Lýsingar Ólafs á Alsír eru merkingarþrunginn texti. Hann sýnir afar
vel þá gjá sem opnast þegar gamla tungumálið dugir ekki til að lýsa eða
segja frá veruleikanum sem hugveran upplifir og reynir að skrásetja. Frá
þessu segja fjölmargir nýlendutextar fyrr og síðar. „Þessi gjá opnast hjá
þeim sem upplifa að tungumál þeirra dugir ekki til að lýsa nýjum stað, hjá
þeim sem eru hnepptir í þrældóm þar sem tungumál þeirra er kerfisbundið
brotið niður og hjá þeim sem eiga tungumál sem er undirskipað tungumáli
nýlenduvaldsins.“20 Þetta er algengt dæmi um firringuna sem fylgir því
að vera slitinn með rótum úr sínu eigin umhverfi og settur niður í annars
konar mold, ef tungumálinu er líkt við jarðveg.
Sumu því sem fyrir augu ber í Alsír getur Ólafur illa lýst fyrir íslenskum
lesendum af því að allar myndrænar eða náttúrulegar tilvísanir vantar hjá
viðtakendunum. Þannig reynir hann að búa til mynd af kameldýri í orðum
og teikna það með því að lýsa einstökum hlutum dýrsins:
item sá eg þar v kameldýr í þeim stað, hver að eru geysistór og sterk,
svo eg gat sem naumast náð upp á þau, þá þau eru með sínum söðl-
um, sem eg meina jafnan muni á þeim sitja. og það er mín mein-
ing, að hvert eitt muni bera við 4 eða 5 hesta. Þau dýr eru öll bleik
að lit eða bleikálótt, og í suman máta vaxin sem naut til læranna og
afturbeinanna, með klaufum sem naut, en ekki eru þær nema hár og
ekki neðan undir, með svo kringdum hrygg sem hálfur pípubotn,
með geysilöngum hálsi, ekki stórum eyrum, nær því sem hestur, en
mjög ljótan haus, þó svo sem nautsgrönum, sem og bera fyrir þeim
brauðkörfu, og þessi dýr eru mjög seinfær, og þá þau eru keyrð, þá
er slegið um þeirra afturbein, en þau akta það að engu. (73–73)
Hér er lýst gríðarháu dýri sem er jafn sterkt og 4–5 hestar. Því er lýst með
íslenskum hestalitum sem ljósbrúnu með dökka fætur og/eða rönd eftir
baki og Íslendingar hafa trúlega haldið áfram með myndina og séð fyrir
sér að dýr þetta væri með fax. dýrinu, sem hefur verið líkt við risavaxinn
hest í textanum, er svo líkt við naut þegar kemur að afturhluta kroppsins
og það hefur kryppu á baki eins og „hálfan pípubotn“, „geysilangan háls“
og hvaða íslenskt dýr hefur slíkan háls annað en svanur? dýrið hefur eyru
20 „The gap occurs for those whose language seems inadequate to describe a new
place, for those whose language is systematically destroyed by enslavement, and
for those whose language has been rendered unprivileged by the imposition of the
language of a colonizing power.“ Bill Ashcroft, Gareth Griffiths og Helen Tiffin,
The Empire Writes Back, London og New york: Routledge, 1989, bls. 9.
Dagný KRistjánsDóttiR