Peningamál - 01.03.2004, Page 9

Peningamál - 01.03.2004, Page 9
sem sýnir samband lausra starfa (lóðrétti ásinn á myndinni) og atvinnuleysis (lárétti ásinn) yfir tíma. Myndin sýnir að árið 2003 jókst bæði framboð starfa og atvinnuleysi, en ef um hagsveiflutengda breytingu vinnuaflseftirspurnar væri að ræða ætti atvinnuleysi og fjöldi starfa að hreyfast í gagnstæðar áttir. Þróun Beveridge-kúrfunnar á sl. ári má túlka sem svo að „misræmi“ hafi verið á milli framboðs og eftirspurn- ar, þ.e.a.s. að störf í boði hafi ekki hentað hinum at- vinnulausu. Misræmið er skiljanlegt þegar litið er á samsetn- ingu atvinnuleysisins. Atvinnuleysi á höfuðborgar- svæðinu hefur verið nokkru meira en á landsbyggð- inni, að Suðurnesjum undanskildum. Þau störf sem í boði voru hafa því ekki verið þar sem atvinnuleysi er mest. Árið 2003 bjuggu um 70% atvinnulausra á höfuðborgarsvæðinu en einungis 30% lausra starfa voru þar. Í janúar hafði misvægið aukist enn frekar og aðeins fjórðungur lausra starfa var á höfuðborgar- svæðinu, en mest fjölgaði lausum störfum á Austur- landi. Stóriðja og önnur verkefni á síðasta ári virðast einna helst hafa skapað störf á landsbyggðinni, og líklega af því tagi sem hæfir áhuga, menntun og reynslu karla fremur en kvenna. Atvinnuleysi var mest á suðvesturhorni landsins og meira meðal kvenna en karla. Aukin vinnuaflseftirspurn kemur einnig í vaxandi mæli fram í veitingu nýrra atvinnuleyfa. Á móti hef- ur reyndar dregið nokkuð úr framlengingu leyfa, en það skýrist að hluta af því að smám saman fjölgar þeim útlendingum sem til landsins komu á undan- förnum árum og fengið hafa varanlegt atvinnuleyfi. Þótt ný atvinnuleyfi hafi að undanförnu verið 50- 60% fleiri en fyrir ári, hafa þau þó til þessa verið tölu- vert færri en á árunum 2000 og 2001. Laun hækkuðu aðeins hjá hluta vinnumarkaðarins í ársbyrjun 2004. Af þeim sökum dró úr árshækkun launa skv. launavísitölu, sem í janúar var 3,3% hærri en fyrir ári. Verði kjarasamningar milli Samtaka at- vinnulífsins, Starfsgreinasambandsins og Flóabanda- lagsins, sem undirritaðir voru 7. mars sl., samþykktir í stéttarfélögunum munu almenn laun félagsmanna hækka um 3,25% við gildistöku og launakostnaður alls um 4,3%. Einstökum atriðum kjarasamningsins er lýst nánar í rammagrein 1. Alls mun launakostn- aður hækka um 15% á samningstímanum, sem er fjögur ár. Það samsvarar um 3½% hækkun launa- kostnaðar á ári. Miðað við að yfirleitt bætist við 1-1½% í meðalári vegna launaskriðs og annars má gera ráð fyrir að þessar hækkanir feli í sér um 4½-5% hækkun. Miðað við að framleiðniaukning sé að jafnaði um 1½% á ári og alþjóðleg verðbólga heldur lægri en verðbólgumarkmið Seðlabankans má ætla að um 4½% hækkun launakostnaðar sé í góðu sam- ræmi við verðbólgumarkmiðið, þó kannski í efri mörkum þess. Það stafar hins vegar aðallega af meiri hækkun í upphafi og á seinni hluta tímabilsins eru umsamdar launahækkanir í mjög góðu samræmi við verðbólgumarkmið bankans. Varðandi upphafshækk- unina þarf að hafa í huga að framleiðniþróun virðist hafa verið mjög mikil á síðasta ári, sbr. umfjöllun á bls. 15 og að í kjarasamningnum eru ákvæði sem skapa möguleika á sveigjanlegri vinnutíma og auk- inni hagræðingu sem gætu stuðlað að meiri fram- leiðniaukningu og lækkun launakostnaðar frá því sem ella hefði orðið. Á heildina litið er samningurinn þannig í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabank- ans, enda er það ein af forsendum hans. Það stuðlar einnig að stöðugleika að samningurinn er til langs tíma og erfiðara er að segja honum upp á miðju tíma- bili heldur en t.d. var um síðasta samning. Reikna má með að þessir kjarasamningar leggi línurnar fyrir væntanlega kjarasamninga við önnur stéttarfélög. Verði hækkun launakostnaðar meiri en hér er reiknað með, t.d. vegna þess að kjarasamningar annarra auka við hann, þá verða þær komnar upp fyrir það sem samrýmist verðbólgumarkmiði bankans. 8 PENINGAMÁL 2004/1 3 mánaða hreyfanlegt meðaltal 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 0 200 400 600 800 Fjöldi 0 40 80 120 160 200 240 -40 -80 12 mán. breyting (%) Fjöldi lausra starfa hjá vinnumiðlunum 1996-2004 Mynd 7 Heimild: Vinnumálastofnun. Fjöldi (vinstri ás) 12 mán. breyting (hægri ás)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.