Peningamál - 01.03.2004, Side 40
PENINGAMÁL 2004/1 39
Umhugsunarefni er hve hratt skuldir fyrirtækja
hafa vaxið á liðnu ári. Þá er ekki síður skoðunarvert
að ekki verður séð að skuldaaukningin tengist fjár-
munamyndun nema að litlu leyti. Að því er best
verður séð dróst almenn fjármunamyndun atvinnu-
veganna saman á síðasta ári. Fremur virðast auknar
skuldir fyrirtækja tengjast skuldsettum yfirtökum,
meðal annars í tengslum við afskráningu hlutafélaga,
og tengjast því einnig mikilli hækkun eignaverðs á
undanförnum misserum. Ef eitthvað er, virðist sem
tilefni skuldaaukningarinnar geri hana áhættumeiri
en ella m.t.t. fjármálastöðugleika.
Veruleg fjölgun árangurslausra fjárnáma bendir til
að gjaldþrotaúrskurðum muni fjölga á næsta ári
Upplýsingar um vanskil fyrirtækja benda til
svipaðrar stöðu og við síðustu úttekt, þegar tekið hef-
ur verið tillit til hins mikla útlánavaxtar. Eins og hjá
heimilunum virðist mega rekja lækkun hlutfalls van-
skila af útlánum til þess hve mikið útlán til fyrirtækja
jukust í fyrra. Ef miðað er við útlán í upphafi árs var
hlutfall vanskilalána hins vegar nokkuð stöðugt á ár-
inu 2003. Hlutfall alvarlegra vanskila lækkaði lítil-
lega á síðasta fjórðungi ársins, eftir að hafa farið vax-
andi um nær tveggja ára skeið. Tölur um vanskil ber
að túlka af varfærni, því að breytt var um vinnubrögð
við vinnslu vanskilaupplýsinga hjá einum viðskipta-
bankanna á árinu eins og fjallað er um í kaflanum um
fjármálafyrirtæki.
Þegar síðasta úttekt á fjármálastöðugleika var
gerð virtist sem nokkuð hefði hægt á fjölgun árang-
urslausra fjárnáma. Á síðasta fjórðungi ársins virðist
sú þróun hins vegar hafa snúist við. Árangurslausum
fjárnámum hjá fyrirtækjum fjölgaði um 40% á milli
áranna 2002 og 2003. Fjölgunin var í reynd álíka
mikil og milli áranna 2000 og 2001, þótt hún væri
hlutfallslega minni. Gjaldþrotaúrskurðum fjölgaði
um 20%. Miðað við fjölda árangurslausra fjárnáma
má búast við að gjaldþrotaúrskurðum fjölgi enn frek-
ar á árinu 2004.
Heimild: Seðlabanki Íslands.
1970 1975 1980 1985 1990 1995 2000 2003
0
20
40
60
80
100
120
140
160
%
Skuldir fyrirtækja sem hlutfall af vergri
landsframleiðslu 1968-2003
Mynd 7
2003 (eldri lánaflokkun)
2003 (ný lánaflokkun)
Mynd 8
4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4
2000 2001 2002 2003
0
20
40
60
80
100
(%)
0
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
(%)
Vanskil fyrirtækja við banka og
sparisjóði 2000-2003
Heimild: Fjármálaeftirlitið.
Stöplar: Hlutfall vanskila hvers tímabils af heildarvanskilum.
Línur: Heildarvanskil sem hlutfall af stöðu útlána í lok sama tímabils, tafið um eitt ár.
0-1 mánuður
1-3 mánuðir
3-6 mánuðir
6-12 mánuðir
Eldri en 12 mánuðir
Vinstri ás (stöplar) Hægri ás (línur)
Öll vanskil
Öll vanskil, tímatöf
Mynd 9
Heimild: Lánstraust hf.
Fjöldi árangurslausra fjárnáma og
gjaldþrotaúrskurða – fyrirtæki 1997-2003
1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003
0
1.000
2.000
3.000
4.000
5.000
Fjöldi
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
-10
%
Árangurslaus fjárnám Gjaldþrot
Fjöldi (vinstri ás)
Aukning milli ára (hægri ás)
Fjöldi (vinstri ás)
Aukning milli ára (hægri ás)