Peningamál - 01.03.2004, Page 55
samning um MTN-ramma árið 1987 í tengslum við
samning um ECP útgáfu. Almennt hefur MTN-útgáfa
íslenskra aðila þótt heppnast afar vel og hefur hún
farið vaxandi með hverju ári. Viðskiptabankarnir þrír
hafa til samans um 7 ma. evra útgáfuheimild og er
heimild Íslandsbanka hf. og Landsbanka Íslands hf.
hæst eða 2,5 ma. evra hjá hvorum bankanum um sig.
Ríkissjóður og Landsvirkjun eru með um 2 ma. evra
útgáfuheimild til samans. Í töflu 1 má sjá nánari
upplýsingar um MTN ramma bankanna, ríkisins og
Landsvirkjunar.2 Í töflunni má sjá að enn eru til
staðar skuldabréf útgefin innan MTN-ramma FBA hf.
og Búnaðarbanka Íslands hf. Þessum römmum hefur
verið lokað, þ.e. ekki er hægt að gefa út fleiri skulda-
bréf innan þeirra en um 215 m. evra eru útistandandi.
Stærsta staka útgáfan sem íslenskur aðili hefur gefið
út er 500 m. evra útgáfa KB banka hf. í júlí sl. en í
mars var Landsbanki Íslands hf. með skuldabréfa-
útgáfu að nafnvirði 400 m. evra sem er næststærsta
útgáfan. Landsbanki Íslands hf. og Landsvirkjun hafa
gefið út lengstu skuldabréfaútgáfur íslenskra aðila
sem nú eru í kerfinu eða til 30 ára. Landsbanki Ís-
lands hf. er þó einnig með stystu útgáfuna ásamt KB
banka hf. en þær eru til 183 daga.
Íslandsbanki hf. er með fjölbreyttustu gjaldmiðla-
samsetninguna í MTN-útgáfu sinni en bankinn á úti-
standandi bréf í átta gjaldmiðlum, KB banki hf. er
ekki langt undan en bankinn á útistandandi bréf í sjö
gjaldmiðlum. Íslandsbanki er einnig með flestar
útgáfurnar en m.v. fyrirliggjandi upplýsingar þann 3.
mars voru þær um 59.
Um 80% útgáfunnar innan MTN-rammans eru í
evrum. Um 17,5% útgáfunnar hjá ríki og Lands-
virkjun eru í Bandaríkjadölum en ekki nema um
54 PENINGAMÁL 2004/1
2. Taflan er byggð á upplýsingum frá Reuters (MTNINDEX). Eitthvert
misræmi getur verið á milli þeirra upplýsinga sem þarna eru skráðar inn
og raunveruleikans. Ætti þó ekki að breyta heildarmyndinni.
Tafla 1 MTN-útgáfur íslenskra aðila1
Ríkis- Lands- Íslands- Landsbanki Búnaðarbanki KB
sjóður virkjun banki hf. FBA hf. Íslands hf. Íslands hf. banki hf.
Heimild til útgáfu 1.500 USD 1.000 USD 2.500 EUR 1.500 EUR 1.500 USD 1.000 EUR 2.000 EUR
Útistandandi 1.027 USD 912 USD 2.262 EUR 71 EUR 1.602 USD 145 EUR 1.369 EUR
Fyrsti samningur 6. mars ’01 19. maí ’98 23. mars ’00 24. febr. ’99 28. apr. ’00 9. júlí ’02 24. júní ’03
Síðast endurskoðaður 28. maí ’03 12. ág. ’03 22. júlí ’02 1. mars ’00 19. febr. ’04 . .
Fyrsta útgáfa 6. mars ’01 10. júlí ’98 12. apr. ’00 30. mars ’99 maí ’02 okt. ’02 júlí ’03
Síðasta útgáfa 12. maí ’03 22. mars ’04 11. mars ’04 31. jan. ’00 10. mars ’04 20. febr. ’03 17. febr. ’04
Stærsta útgáfa 250 EUR 150 EUR 350 EUR 60 USD 400 EUR 75 EUR 500 EUR
Lengsta útgáfa 10 ár 30 ár 20 ár 5.16 ár 30 ár 10 ár 10 ár
Stysta útgáfa (dagar) 913 730 362 1.827 183 540 183
Fjöldi útgáfna í gangi 7 27 59 3 31 5 16
Upphæð og fjöldi útgáfna í sérhverjum gjaldmiðli
EUR 977 (6) 550 (14) 1.786 (33) . 1.559 (21) 135 (4) 1.165 (12)
USD 100 (1) 310 (11) 328 (7) 60 (1) . . 101 (2)
JPY . 1.700 (1) 17.000 (8) 3.000 (2) 19.200 (6) . 5.000 (1)
GBP . . 183 (4) . 25 (1) . 30 (1)
CAD . . 48 (3) . 7 (1) . .
HKD . . 200 (1) . 50 (1) 100 (1) .
CZK . . 500 (1) . . . 500 (1)
ISK . 670 (1) 550 (2) . . . 6.000 (3)
SEK . . . . . . 300 (1)
NOK . . . . 100 (1) . .
1. Allar fjárhæðir eru taldar í milljónum. Upplýsingar frá Reuters þann 3. mars 2004. Hér inni eru einnig útgáfur sem samið hefur verið um en koma ekki
til greiðslu fyrr en síðar í mars.