Peningamál - 01.03.2004, Blaðsíða 108
Stjórn SPRON samþykkti samhljóða á fundi þann 21.
desember að leggja það til við stofnfjáreigendur að
sparisjóðnum yrði breytt í hlutafélag. Ef það yrði
samþykkt myndi eign sjálfseignarstofnunarinnar,
SPRON-sjóðsins ses., verða um 81% af hlutum í
SPRON hf.
Hinn 22. desember 2003 tilkynnti Seðlabanki Íslands
að hann hefði ákveðið að efna til uppboðs fyrir bindi-
skyldar lánastofnanir á 14 daga innstæðubréfum hinn
30. desember. Tilgangur útgáfunnar var að draga úr
lausafé í umferð og þensluáhrifum þess. Jafnframt
var tilkynnt að Seðlabankinn myndi efna til frekari
uppboða á innstæðubréfum eftir því sem aðstæður
gæfu tilefni til.
Hinn 29. desember sl. innti Samson eignarhaldsfélag
ehf. af hendi lokagreiðslu til íslenska ríkisins vegna
kaupa sinna á hlutabréfum ríkissjóðs í Landsbanka
Íslands hf. Um var að ræða 12,5% útgefins hlutafjár í
bankanum eða um 856 milljónir hluta. Greiðslan var
í Bandaríkjadölum. Á sama tíma fór lokagreiðsla
kaupenda Búnaðarbanka Íslands hf. fram á 8,33%
hlut, eða 37 milljónum hluta, sem ríkið átti í hinum
sameinaða banka, þ.e. KB banka hf. Eftir viðskiptin á
ríkissjóður engin hlutabréf í viðskiptabanka.
Hinn 31. desember tilkynnti félagsmálaráðherra
hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs vegna nýrra
íbúða úr 9 m.kr. í 9,7 m.kr., og vegna notaðra íbúða
úr 8 m.kr. í 9,2 m.kr. frá og með 2. janúar 2004. Stefnt
er að breytingum á skuldabréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs
hinn 1. júlí 2004 þannig að lán hans verði í formi pen-
ingalána. Lánin yrðu grundvölluð á íbúðabréfum og
fjármögnuð með útboði.
Um áramótin 2003/2004 tók Kaupþing Búnaðarbanki
upp nafnið KB banki. Öll útibú og starfsemi bankans
hér á landi verða undir þessu nýja nafni en hins veg-
ar verður starfsemin erlendis ennþá undir merkjum
Kaupþings.
Janúar 2004
Hinn 1. janúar voru bætur Almannatrygginga hækk-
aðar um 3%.
Hinn 2. janúar samþykkti FME umsókn Straums fjár-
festingarbanka hf. um starfsleyfi sem lánafyrirtæki
skv. 3. tl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002, um fjár-
málafyrirtæki. Straumur fjárfestingarbanki hf. sótti
um aðild að Kauphöll Íslands hf.
Frá ársbyrjun 2004 kaupir Seðlabankinn 5 milljónir
Bandaríkjadala í viku hverri á innlendum millibanka-
markaði í stað 12,5 milljóna frá maí 2003. Gjald-
eyriskaup Seðlabankans hafa að markmiði að efla
gjaldeyrisforða bankans.
Hinn 15. janúar birti fjármálaráðuneytið þjóðhags-
spá.
Febrúar 2004
Hinn 4. og svo aftur hinn 19. febrúar jók sjávar-
útvegsráðuneytið loðnukvóta, fyrst um 80 þús. lestir
og svo um 240 þús. lestir. Loðnukvótinn er eftir það
samtals um 875 þús. lestir, þar af koma 737 þús. lest-
ir í hlut Íslendinga.
Hinn 5. febrúar voru samþykktar breytingar á lögum
um fjármálafyrirtæki, lög nr. 4 6. febrúar 2004.
Breytingarnar leiddu m.a. til þess að ekki var lagt til
á stofnfjárfundi SPRON að breyta sparisjóðnum í
hlutafélag og að ekki varð af kaupum KB banka hf. á
SPRON sem áður höfðu verið tilkynnt.
Hinn 24. febrúar keypti KB banki hf. 19.385.994
hluti í Singer and Friedlander Group Plc., sem sam-
svaraði 10,00% af útgefnu hlutafé. Eftir kaupin átti
KB banki hf. samtals 37.866.694 hluti í bankanum,
sem nam 19,53% af útgefnu hlutafé. Samkvæmt yfir-
lýsingu bankans hafði hann ekki í hyggju að yfirtaka
Singer and Friedlander Group Plc.
Mars 2004
Starfsgreinasambandið (SGS) og Flóabandalagið
(aðildarfélög SGS við Faxaflóa) undirrituðu nýja
kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins hinn
7. mars. Samningarnir gilda til 31. desember 2007.
PENINGAMÁL 2004/1 107