Peningamál - 01.05.2010, Side 29
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
0
•
2
29
Peningamála, sem er 19% hærra en í ársbyrjun og 46% hærra en
fyrir ári. Þar sem fyrirtækin í visítölunni eru afar fá og stór hluti þeirra
starfar erlendis er hins vegar varasamt að túlka þessa þróun sem merki
um almennan viðsnúning í innlendum atvinnurekstri.1
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu, miðað við vísitölu íbúðaverðs
Fasteignaskrár ríkisins, hefur haldið áfram að lækka á undanförnum
mánuðum þrátt fyrir að hækkun hafi mælst í einstaka mánuðum.
Frá því að íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu fór hæst að nafnvirði í
janúar 2008 hafði það lækkað um 15% í mars sl. og um tæp 35%
að raunvirði frá október 2007. Raunverð íbúða er nú lægra en það
var áður en viðskiptabankarnir hófu að veita lán til húsnæðiskaupa
haustið 2004 sé staðvirt með vísitölu neysluverðs (sjá nánari umfjöllun
í rammagrein III-1).
Verðþróun atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu ber þess
merki að mikið hefur verið fjárfest í slíku húsnæði á undanförnum
árum ásamt því að eftirspurn hefur dregist verulega saman frá hruni
bankanna. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga og velta með atvinnuhús-
næði hefur þannig dregist mikið saman og verð atvinnuhúsnæðis
hefur lækkað um tæp 52% að raunvirði frá því það náði hámarki á
fyrsta fjórðungi 2008. Miðað við það framboð sem til er af atvinnu-
húsnæði má ætla að enn sé talsvert í að jafnvægi skapist á þessum
markaði. Hins vegar hefur fjöldi leigusamninga ekki dregist saman í
sama mæli og fjöldi kaupsamninga. Aukið vægi leigusamninga kann
þannig, að hluta til, að vera til komið vegna skerðingar veðhæfis eigna
fyrirtækjageirans sem varð í kjölfar bankahrunsins.
Fjármálaleg skilyrði einkageirans enn erfið
Útlánsvextir viðskiptabanka, Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóða hafa í
meginatriðum lækkað í takt við lækkun vaxta Seðlabankans. Að frá
töldum annars vegar íbúðalánum Íbúðalánasjóðs og sjóðsfélagalánum
lífeyrissjóða hins vegar, liggja ekki fyrir ítarleg gögn um útlánaþróun.
Benda þær upplýsingar sem þó liggja fyrir til að útlánastarfsemi sé enn
með minnsta móti. Það er í samræmi við lítil umsvif á fasteignamarkaði
sem bæði má sjá í lítilli veltu og fáum þinglýstum samningum.
Rammagrein III-1
Þróun á
fasteignamarkaði
1. Félögin í OMXI6-vísitölunni eru Marel Food Systems hf., Össur hf., Bakkavör Group hf.,
BankNordik p/f (áður Föroya Banki p/f), p/f Atlantic Airways og Atlantic Petrolium p/f.
Fasteignaverð hefur lækkað töluvert frá ársbyrjun 2008. Velta hefur
verið sú minnsta í langan tíma og hlutfall makaskiptasamninga af
heildarveltu hátt. Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækk-
að um rúmlega 15% samkvæmt vísitölu Fasteignaskrár Íslands frá
því að það náði hámarki í janúar 2008. Raunverð húsnæðis hefur
lækkað um tæplega 35% frá hápunkti þess í október 2007. Í mars
síðastliðnum var 80% færri samningum þinglýst samanborið við
október 2004 þegar fjöldi þeirra náði hámarki rétt eftir innkomu við-
skiptabankanna á fasteignalánamarkaðinn. Óvissa varðandi mæl-
ingu íbúðaverðs er meiri nú en venjulega vegna fárra kaupsamninga.
Um þetta var fjallað í Peningamálum í nóvember sl. Því er líklegt að
þær vísitölur sem byggt er á við mælingu fasteignaverðs nái ekki að
bregða upp mynd af verðþróuninni eins og hún er í reynd.
Í grunnspá Seðlabankans er gert ráð fyrir áframhaldandi lækk-
un húsnæðisverðs út næsta ár. Hluti þessarar lækkunar hefur líklega
Mynd III-12
Þróun skuldatryggingarálags nokkurra ríkja1
Punktar
Nýjasta gildi
Lægst á síðari hluta 2009
Hæsta gildi
1. Hæsta gildi skuldatryggingarálags íslenska ríkisins er frá október 2008
en hæstu gildi annarra ríkja eru frá tímabilinu febrúar - mars 2009.
Heimild: Bloomberg.
0 500 1.000 1.500
Grikkland
Ísland
Lettland
Litháen
Portúgal
Írland
Spánn
Ítalía
Eistland
Bandaríkin
Þýskaland