Peningamál - 01.05.2010, Blaðsíða 72
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
0
•
2
72
t.a.m. í ljós að ráðstöfunartekjur ársins 2008 hefðu aukist um 0,5% en
fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir 7,5% samdrætti.
Endurskoðun samneyslu árið 2008 breytti spám fyrir 2009
Forsendur um þróun samneyslu eru unnar upp úr áætlun stjórnvalda
auk þess að vera byggðar á gögnum Hagstofunnar. Vöxtur sam-
neyslu árið 2009 hefur breyst nokkuð í spám Seðlabankans vegna
mikillar óvissu um samneyslu ársins 2008. Í Peningamálum 2009/3
var talið að samneysla árið 2008 hefði aukist um 2,8% en eftir birt-
ingu þjóðhagstalna í september 2009 reyndist vöxturinn vera 4,6%.
Þjóðhagstölur sem birtar voru í september 2009 bentu til þess að
samneysla hefði vaxið um 0,4% á fyrri hluta ársins 2009 þannig að
ákveðið var að reikna með mun minni samdrætti í spám fyrir árið 2009
og því einungis spáð 1,2% samdrætti í nóvember. Bráðabirgðatölur
frá því í mars sýna hins vegar að samneysla dróst saman um 3% árið
2009 sem er svipaður samdráttur og bankinn hafði spáð fyrir birtingu
þjóðhagstalna í september.
Útflutningur jókst um rúm fjögur prósentustig 2009 vegna
útflutnings skipa og flugvéla
Spár um þróun vöru- og þjónustuviðskipta hafa ekki gengið fyllilega
eftir og stafar það m.a. af umfangsmiklum viðskiptum með ýmsa
óreglulega og ófyrirsjáanlega liði eins og skip og flugvélar, en upplýs-
ingar um umfang þeirra berast jafnan með mikilli tímatöf. Útflutningur
skipa og flugvéla nam 32 ma.kr. á fob-verðmæti árið 2009 en inn-
flutningur á skipum og flugvélum 16,6 ma.kr. Einungis þriðjungur af
þessum innflutningi var kominn fram í þjóðhagstölum þegar spáin
í janúar sl. var gerð og rétt rúmlega fimmtungur útflutnings. Skýrir
það verulegan mun á útflutningi milli janúarspár og bráðabirgðatalna
Hagstofunnar frá því í mars. Hefðu þessir óreglulegu liðir ekki komið
fram hefði aukning útflutnings ársins 2009 verið 2,9% en innflutn-
ingur dregist saman um rúm 25%. Rétt er að taka fram að áhrifin á
hagvöxt eru engin þar sem fjárfesting var minnkuð sem nemur þess-
um liðum.
Keðjutenging hefur áhrif á spár ársins 2009
Óvenjumikil áhrif keðjutengingar þjóðhagsreikninga á síðasta ári
leiddu einnig til skekkja í hagvaxtarspám. Þar til í þeirri spá sem
hér er birt, hafa spár Seðlabankans um magnþróun þjóðhagsstærða
byggst á gögnum sem eru verðlagsleiðrétt á verðlagi ársins 2000 með
Verg landsframleiðsla Þjóðarútgjöld
Spá án Spá með Spá án Spá með
keðju- keðju- keðju- keðju-
Spár Ár tengingar tengingu tengingar tengingu
PM 2009/4 2009 -8,5% -7,8% -19,7% -20,0%
PM 2009/3 2009 -9,1% -7,2% -21,5% -21,5%
PM 2009/2 2009 -11,0% -9,0% -23,5% -23,9%
PM 2009/1 2009 -9,9% -8,1% -20,4% -20,8%
PM 2008/3 2009 -8,3% -6,4% -17,6% -17,5%
Tafla 4 Spár Seðlabankans með og án keðjutengingu