Peningamál - 01.05.2010, Side 39
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
0
•
2
39
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er þó til þess fallin að auðvelda aðgengi
innlendra aðila að alþjóðlegum lánsfjármörkuðum sem er mikilvæg
forsenda þess að af framkvæmdunum verði.
Rekstrarvandi fyrirtækja er enn mikill og endurskipulagning
skulda gengur hægt fyrir sig
Það ríkir hins vegar ekki einungis óvissa um framvindu stórfram-
kvæmda. Staða fjölmarga fyrirtækja er erfið. Víðtæk endurskipulagn-
ing á efnahag og rekstri þeirra stendur yfir. Um helmingur stórra
lána viðskiptabankanna þriggja til fyrirtækja og um 40% smærri og
meðalstórra lána til fyrirtækja var í vanskilum í lok febrúar í ár. Hlutfall
fyrirtækjalána sem eru í skilum að lokinni endurskipulagningu skulda
er enn lágt. Árangur af endurskipulagningu skulda fyrirtækja gæti haft
veruleg áhrif á þróun fjárfestingar og atvinnuleysis. Sú hætta er fyrir
hendi að seinkun á endurskipulagningunni hafi tímabundið komið í
veg fyrir frekari aukningu atvinnuleysis og gjaldþrota fyrirtækja aðeins
til þess að hægja á efnahagsbatanum þegar fram í sækir. Reynslan,
t.d. frá Japan á tíunda áratug síðustu aldar, bendir til þess að tafir við
endurskipulagningu skulda fyrirtækja í kjölfar kerfislægs fjármálaáfalls
geti tafið efnahagsbatann. Í grunnspánni er gert ráð fyrir að endur-
skipulagningunni vaxi ásmegin í kjölfar þess að endurreisn bankakerf-
isins er nú að mestu leyti lokið og að almenn fjárfesting taki við sér
snemma á næsta ári.
Niðurstöður viðhorfskönnunar Capacent Gallup, sem gerð var í
febrúar og mars meðal stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækjum landsins,
gefa ekki tilefni til að vænta örari bata fjárfestingar, heldur benda þær
þvert á móti til þess að samdráttur almennrar atvinnuvegafjárfestingar
nemi u.þ.b. þriðjungi á þessu ári.
Íbúðafjárfesting í ár er rúmlega fimmtungur þess sem hún var
árið 2007 þegar offjárfestingin náði hámarki
Offramboð íbúðahúsnæðis dylst engum sem fer um höfuðborg-
arsvæðið og nærliggjandi sveitarfélög. Samkvæmt upplýsingum
frá Fasteignaskrá Íslands jókst íbúðafjöldi á höfuðborgarsvæðinu,
Suðurnesjum, Akranesi, Árborg og Hveragerði um rúmlega 18% á
árunum 2003-2008. Að Reykjavík undanskilinni var aukningin mun
meiri eða um þriðjungur. Til viðbótar eru framkvæmdir hafnar á
fjölda íbúða og þúsundir lóða standa auðar. Samkvæmt skýrslu VSÓ
Ráðgjafar voru liðlega 1.900 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og rúmlega
500 íbúðir á Suðurnesjum, Akranesi, Árborg og Hveragerði ýmist fok-
heldar eða lengra komnar í byggingu undir lok síðasta árs. Því til við-
bótar voru rúmlega 1.100 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og 200 íbúðir
á fyrrnefndum svæðum sem voru skemmra á veg komnar. Um 6.500
lóðir standa þar að auki auðar.5 Fjöldi íbúða í byggingu og auðra lóða
nemur því tæplega 11% af heildarfjölda íbúða á þessum svæðum en
rúmlega 17% þegar Reykjavík er undanskilin. Einstaklingar, verktak-
ar og fjármálastofnanir sitja því uppi með verulegan fjölda íbúða í
5. Sjá VSÓ Ráðgjöf, (2009), „Byggingavaktin. Uppfærð og útvíkkuð útgáfa: Bygg inga fram-
kvæmdir við íbúðahúsnæði í sveitarfélögum á SV-horninu og á höfuðborgarsvæðinu“,
desember 2009.
1. Myndin sýnir stöðu lána hjá viðskiptabönkunum þremur í lok febrúar
2010. Lán með eftistöðvar umfram 100 m.kr. eru skilgreind sem stór lán.
Heimildir: Fjármálaeftirlitið, Seðlabanki Íslands.
Hlutfall heildarlána að bókfærðu virði í hverjum flokki (%)
Mynd IV-12
Staða lána hjá stóru viðskiptabönkunum
þremur1
Í skilum án endurskipulagningar
Í skilum eftir endurskipulagningu
Í vanskilum (umfram 90 daga)
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
100
Lán til
einstaklinga
Stór lán til
einstaklinga
Smá og
meðalstór
fyrirtækjalán
Stór
fyrirtækjalán
50 40 57 22
14
11
21
31
36
49
22
47
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Breyting frá sama ársfjórðungi fyrra árs (%)
Mynd IV-13
Gjaldþrot fyrirtækja og framlag atvinnugeira
1. ársfj. 2008 - 1. ársfj. 2010
Gjaldþrot alls
Heild- og smásöluverslun
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð
Framleiðsla
Fasteignaviðskipti
Aðrar greinar
-30
-20
-10
0
10
20
30
40
50
60
201020092008