Peningamál - 01.05.2010, Síða 52
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
0
•
2
52
flutta rúmlega 16 þúsund. Nokkur óvissa var fram eftir síðasta ári um
viðbrögð erlendra starfsmanna í kjölfar efnahagserfiðleikanna. Þar til
lokatölur fyrir árið 2009 lágu fyrir virtist sem brottflutningur erlendra
ríkisborgara væri óverulegur. Niðurstaðan var hins vegar að um 2.400
fleiri erlendir ríkisborgarar fluttu frá landinu en til þess, eða um 15% af
þeim sem fluttu til landsins í uppsveiflunni.3 Hlutur erlendra ríkisborg-
ara af mannfjölda er nú tæplega 7%. Fjöldi íslenskra ríkisborgara sem
fluttu frá landinu umfram þá sem fluttu til landsins var nánast jafnmik-
ill. Alls fluttu því tæplega 5.000 fleiri frá landinu en til þess á síðasta
ári og má áætla að atvinnuleysi hefði að öðru óbreyttu verið um 2-2½
prósentu meira en ella án brottflutnings frá landinu. Hreint útflæði
fólks í kjölfar efnahagssamdráttar hefur því verið töluvert meira en í
fyrri efnahagskreppum hér á landi, enda samdráttur efnahagslífsins
töluvert meiri og innflæði vinnuafls á tímum uppsveiflunnar sem á
undan fór mun meira en áður.
Fyrirtæki lækka starfshlutfall til að draga úr launakostnaði
Atvinnurekendur sem vilja draga úr kostnaði geta gert það á annan
hátt en með lækkun nafnlauna. Töluvert hefur verið um að fyrirtæki
lækki starfshlutföll í þessari niðursveiflu. Tölur úr Vinnumarkaðskönnun
Hagstofunnar sýna að fólki í hlutastörfum fjölgaði um rúmlega 10%
milli ára og vinnutími fólks í fullu starfi minnkaði um 1,5 klst. á viku.
Meðalvinnutími hefur dregist saman um 2,8 klukkustundir á viku frá
því að hann varð mestur í síðustu uppsveiflu árið 2006. Samdráttur
heildarvinnutíma samsvarar því að fækkað hafi á vinnumarkaði um
u.þ.b. 28 þúsund ársverk á síðasta fjórðungi 2009 frá því að vinnuafls-
notkunin náði hámarki í aðdraganda kreppunnar á öðrum ársfjórð-
ungi 2008, eða sem samsvarar 16½% af vinnuaflinu. Kosturinn við
að draga úr vinnuaflsnotkun með því að draga úr vinnutíma hvers og
eins í stað þess að fækka starfsmönnum er að aðlögun eftirspurnar
verður auðveldari þar sem samdráttur tekna einstaklinga verður minni
en ella. Það leiðir einnig til minna taps á mannauði og minni kostn-
aðar við endurþjálfun þegar eftirspurn tekur við sér á ný. Á móti kemur
að starfsmenn geta festst í atvinnugreinum og störfum sem eiga ekki
framtíð fyrir sér. Það gæti leitt til meira atvinnuleysis en ella eftir að
hagvöxtur hefur tekið við sér. Einnig er líklegt að þetta hafi dregið
nokkuð úr þrýstingi á nafnlaunalækkanir.
Samdráttur vinnuaflsnotkunar töluvert meiri en samdráttur lands-
framleiðslu
Aðlögun að efnahagssamdrættinum hefur haft í för með sér að lands-
framleiðsla á unna stund hefur aukist þar sem heildarvinnustundum
fækkaði töluvert meira á síðasta ári en sem nemur samdrætti lands-
framleiðslu (sjá mynd VI-9). Heildarvinnustundum fækkaði um tæp-
lega 11% á síðasta ári og unnum mannárum um 10% en landsfram-
leiðsla dróst saman um 6,5%. Landsframleiðsla á unna stund jókst því
um tæplega 4,7% milli ára og undirliggjandi framleiðni m.v. ársverk
jókst um 2½%. Framleiðni vinnuaflsins jókst því í kjölfar hrunsins.
3. Flestir voru þegar farnir úr landi en ekki afskráðir úr þjóðskrá fyrr en í lok ársins.
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd VI-7
Brottflutningur, atvinnuleysi og hagvöxtur
1986-2009
Hlutfall af mannafla %
Erlendir ríkisborgarar (v. ás)
Íslenskir ríkisborgarar (v. ás)
Atvinnuleysi (h. ás)
-4
-3
-2
-1
0
1
2
3
4
5
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
8
10
‘86 ‘88 ‘90 ‘92 ‘94 ‘96 ‘98 ‘00 ‘02 ‘04 ‘06 ‘08
Mynd VI-8
Breytingar á vinnuafli
1. ársfj. 2004 - 1. ársfj. 2010
Breyting frá sama fjórðungi fyrra árs (%)
-16
-14
-12
-10
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
8
Heimild: Hagstofa Íslands.
Meðalvinnutími
(klst.)
Heildarvinnu-
stundir
(%)
Fjöldi starfandi
(%)
Atvinnuþátttaka
(prósentur)
1. Tölur vinnumarkaðskönnunar eftir 2003 eru ekki fyllilega
sambærilegar við eldri tölur.
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd VI-9
Hagvöxtur og heildarvinnustundir 1992-20091
Breyting milli ára (%)
Heildarvinnustundir
VLF á unna klst.
Hagvöxtur
-12
-10
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
8
10
‘08‘06‘04‘02‘00‘98‘96‘94‘92