Peningamál - 01.05.2010, Blaðsíða 69

Peningamál - 01.05.2010, Blaðsíða 69
P E N I N G A M Á L 2 0 1 0 • 2 69 ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM Viðauki 2 Skekkjur í spám Seðlabanka Íslands Mat á spáskekkjum yfir lengra tímabil Við mat á verðbólguspám er horft á meðalskekkju (bjögun) og stað- alfrávik spáskekkju. Meðalskekkja sýnir hvert meðalfrávik spánna frá eiginlegri verðbólgu er og þar með hvort verðbólgu hefur kerfis- bundið verið of- eða vanspáð. Neikvætt formerki gefur til kynna að verðbólgu hafi kerfisbundið verið vanspáð. Staðalfrávik er aftur á móti mælikvarði á hversu langt spágildið er frá réttu gildi að meðaltali. Til að hægt sé að draga ályktanir af slíkum mælikvörðum þurfa skekkjur spánna að vera óháðar og fjöldi þeirra að vera nægur. Eftir því sem spáð er lengra fram í tímann má einnig búast við því að spáskekkjan aukist. Tafla 1 sýnir meðalskekkju og staðalfrávik í verðbólguspám Seðlabankans allt að fjóra ársfjórðunga fram í tímann frá árinu 1994 til og með janúarspánni í ár. Samkvæmt töflunni hefur verðbólgu verið vanspáð tvo til fjóra ársfjórðunga fram í tímann og því meira sem lengra er horft fram á veginn. Allar meðalskekkjurnar reyndust vera tölfræðilega marktækar miðað við 5% öryggismörk að undanskildum skekkjunum einn og tvo ársfjórðunga fram í tímann. Frá því að verðbólgumarkmið var tekið upp í mars 2001 hefur Seðlabankinn einnig birt verðbólguspár tvö ár fram í tímann. Tafla 2 sýnir meðalskekkju og staðalfrávik spáskekkja frá því að bankinn tók upp verðbólgumarkmið. Samanburður á töflum 1 og 2 sýnir að staðalfrávik eins árs spáskekkja er meira eftir að bankinn tók upp verðbólgumarkmið (3,3%) í samanburði við allt tímabilið (2,9%). Þó ber að athuga að ekki voru gerðar eigin spár um þróun gengis krón- unnar og stýrivaxta fyrr en á seinni hluta ársins 2006. Spár fram að þeim tíma nýttu því ekki að fullu mat sérfræðinga bankans um líklega þróun þessara stærða, enda kemur í ljós að skekkjur í verðbólguspám virðast nátengdar sveiflum í gengi krónunnar á meginhluta tímabilsins. Frammistaða við að spá verðbólgu til skamms tíma Seðlabankinn hefur undanfarið eitt og hálft ár einnig stuðst við kostn- aðarlíkan, þar sem verðbólga ræðst af sögulegri þróun launakostn- aðar og gengis, og einföld tímaraðalíkön af ARIMA-gerð, sem notast eingöngu við liðna verðbólgu, til að spá fyrir um verðbólgu til skamms tíma. Þessi líkön notast því ekki við aðra hagvísa eða mælikvarða á (%) Einn ársfj. Tvo ársfj. Þrjá ársfj. Fjóra ársfj. Meðalskekkja 0,0 -0,3 -0,8 -1,2 Staðalfrávik 0,6 1,7 2,5 2,9 Tafla 1 Skekkjur í verðbólguspám Seðlabankans frá 1. ársfj. 1994 Fjöldi mælinga Meðalskekkja (%) Staðalfrávik (%) Fjórir ársfjórðungar fram í tímann 30 -1,7 3,3 Átta ársfjórðungar fram í tímann 26 -3,1 5,0 Tafla 2 Skekkjur í verðbólguspám Seðlabankans frá 2. ársfj. 2001
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.