Peningamál - 01.05.2010, Side 75

Peningamál - 01.05.2010, Side 75
Peningastefnan og stjórntæki hennar Markmið og framkvæmd peningastefnunnar Markmið stefnunnar í peningamálum er stöðugt verðlag. Hinn 27. mars 2001 var tekið upp formlegt verðbólgumarkmið sem hér segir:1 • Seðlabankinn stefnir að því að árleg verðbólga, reiknuð sem hækk un vísitölu neysluverðs á 12 mánuðum, verði að jafnaði sem næst 2½%. • Víki verðbólga meira en 1½ prósentu frá settu marki ber bankanum að gera ríkisstjórninni grein fyrir ástæðu fráviksins, hvernig bankinn hyggst bregðast við og hvenær hann telur að verðbólgumarkmið­ inu verði náð að nýju. Greinargerðina skal birta opinberlega. • Seðlabankinn gerir verðbólguspár þar sem spáð er þrjú ár fram í tímann. Spárnar eru birtar í riti bankans Peningamálum. Þar kemur einnig fram mat bankans á helstu óvissuþáttum tengdum spánni. Jafnframt gerir bankinn grein fyrir mati sínu á stöðu og horfum í efnahagsmálum. Peningastefnan miðar að því að halda verðlagi stöðugu og því verður henni ekki beitt til þess að ná öðrum efnahagslegum markmiðum, svo sem jöfnuði í viðskiptum við útlönd eða mikilli atvinnu, nema að því marki sem slíkt samrýmist verðbólgumarkmiði bankans. Helstu stjórntæki peningastefnunnar Seðlabankinn framfylgir peningastefnunni einkum með því að stýra vöxtum á peningamarkaði, fyrst og fremst með ákvörðun nafnvaxta veðlána til fjármálafyrirtækja sem síðan hafa áhrif á aðra vexti. Vextir á peningamarkaði hafa einnig sterk áhrif á gjaldeyrisstrauma og þar með á gengi krónunnar og til lengdar innlenda eftirspurn. Viðskiptum við fjármálafyrirtæki má í grófum dráttum skipta í regluleg viðskipti annars vegar og önnur viðskipti hins vegar. Um viðskipti fjármálafyrir­ tækja við Seðlabankann gilda reglur nr. 553 frá 26. júní 2009. Föst viðskiptaform • Viðskiptareikningar: Á viðskiptareikningum geyma fjármálafyrirtæki ráðstöfunarfé sitt. Viðskiptareikningar eru uppgjörsreikningar í viðskiptum fjármálafyrirtækja og bindiskyldureikningar. Vextir við­ skiptareikninga mynda gólf fyrir daglánavexti á millibankamarkaði með krónur. Viðskiptareikningar verða alltaf að vera með jákvæða stöðu í lok hvers viðskiptadags.. • Daglán: Lán veitt til næsta viðskiptadags. Hlutverk daglána er fyrst og fremst að tryggja fjármálafyrirtækjum aðgang að lausafé til að tryggja að staða viðskiptareiknings sé jákvæð í lok dags og til þess að uppfylla bindiskyldu. Daglán eru veitt gegn tryggingum í verðbréfum. Vextir daglána mynda þak einnar nætur vaxta á milli­ bankamarkaði með krónur. 1. Sameiginleg yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands og Seðlabanka Íslands. Birt m.a. á heimasíðu bankans.

x

Peningamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.